Fréttablaðið - 24.04.2013, Síða 42
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 26
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð,
vináttu, hlýhug og styrk vegna andláts
og útfarar elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
LOVÍSU GUÐRÚNAR
JÓHANNSDÓTTUR
Heiðarvegi 21a, Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki D-deildar á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir hlýhug og góða umönnun.
Ingólfur Arnarson
Linda Arnardóttir Sveinn Sveinsson
Pétur Jónsson Rósa Johansen
Signý Arnardóttir Sigurður Heimisson
Elín Arnardóttir Bjarni Gunnólfsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÓSK GUÐJÓNSDÓTTIR
Nykhól, Mýrdalshreppi,
síðast til heimilis á Dvalarheimilinu
Hjallatúni í Vík,
andaðist miðvikudaginn 17. apríl sl.
Útförin fer fram frá Skeiðflatarkirkju í Mýrdal
laugardaginn 27. apríl klukkan 13.00.
Hörður Þorsteinsson
Guðjón Harðarson Jóhanna Jónsdóttir
Jóhanna Þórunn Harðardóttir Guðmundur Oddgeirsson
Guðbjörg Klara Harðardóttir Hlynur Björnsson
Sigurlaug Linda Harðardóttir Gunnar Vignir Sveinsson
Steina Guðrún Harðardóttir Jóhannes Gissurarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
ÁSTVALDUR KRISTINSSON
Greniteigi 26, Keflavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík
mánudaginn 1. apríl. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur
þakka auðsýnda samúð og hlýhug.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Víðihlíð í Grindavík.
Kristinn Ástvaldsson Ólöf Jónsdóttir
Elísabet Ástvaldsdóttir Bragi Eyjólfsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSTA AÐALHEIÐUR SIGURÐARDÓTTIR
frá Melbæ, Eskifirði,
Víðilundi 15, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar þann 13. apríl.
Útförin fer fram frá Glerárkirkju í dag,
miðvikudaginn 24. apríl kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast Ástu er bent á Krabbameinsfélag
Akureyrar og nágrennis. Sérstakar þakkir fyrir yndislega
umönnun til starfsfólks lyflækningadeildar Sjúkrahúss Akureyrar
og Heimahlynningar.
Þór Árnason
Jóna Dóra Þórsdóttir Arnoddur Guðmannsson
Örn Þórsson Mattý Einarsdóttir
Alfreð Þórsson Aðalheiður Þórhallsdóttir
Helgi Þór Þórsson Jóna María Júlíusdóttir
Anna Katrín Þórsdóttir Halldór Baldursson
Sveinar Þórsson
Helga Stefanía Þórsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTÍN JÓNA KRAGH
Álftamýri 26, Reykjavík,
lést sunnudaginn 14. apríl sl. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sólborg Ósk Kragh Kristján Ágúst Gunnarsson
Íris Helga Valgeirsdóttir Auðunn Trampe
Valgeir Ólafur Kragh Erla Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR ÞORBERGUR HANNESSON
málmsmíðameistari,
Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi,
lést laugardaginn 20. apríl á Elliheimilinu
Grund. Jarðarförin auglýst síðar.
Guðrún Sigurðardóttir
Sigurður Gunnarsson Ólöf G. Ásbjörnsdóttir
Helga Árnadóttir
Óli Ragnar Gunnarsson Ragnheiður Júlíusdóttir
Heimir Gunnarsson Ragnhildur Birgisdóttir
barnabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir mín,
HULDA SIGRÚN
SNÆBJÖRNSDÓTTIR
Hringbraut 50,
áður til heimilis að Holtsgötu 6,
lést sunnudaginn 14. apríl. Sálumessan fer
fram frá Kristskirkju, Landakoti, föstudaginn
26. apríl, klukkan 15.00.
Ragnheiður Jóhanna Eyjólfsdóttir
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GÍSLI HALLDÓRSSON
í Króki,
sem andaðist á Landspítalanum við
Hringbraut þriðjudaginn 16. apríl,
verður jarðsunginn frá Villingaholtskirkju
laugardaginn 27. apríl kl. 15.30.
Lilja María Gísladóttir Páll Óskarsson
Ingvar Hreinn Gíslason Lynn Ann Gíslason
og barnabörn.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR
frá Stóru-Hildisey,
til heimilis að Engjavegi 14, Selfossi,
lést þriðjudaginn 16. apríl. Útförin fer fram
þann 27. apríl kl. 13.30 frá Selfosskirkju.
Guðjón Jónsson
Auðbjörg Guðröðardóttir
Jón Pétur Róbertsson
Baldur Már Róbertsson Jill Renea Róbertsson
Guðmundur Þór Róbertsson Þórdís Grímheiður Magnúsdóttir
Halldór Ingi Róbertsson
Rúnar Valur Róbertsson Ragnheiður Arnardóttir
Róbert Benedikt Róbertsson Diljá Mist Einarsdóttir
og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HREFNA JÓNSDÓTTIR
lést á Dvalarheimilinu Hlíð Akureyri
hinn 21. apríl. Útför hennar fer fram
frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
30. apríl kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Dvalarheimilið Hlíð.
Sólveig Erlendsdóttir Magnús Ingólfsson
Guðrún Erlendsdóttir Hilmir Jóhannsson
Lovísa Erlendsdóttir Árni Magnússon
Snæbjörn Erlendsson Sólveig Rögnvaldsdóttir
Hörður Erlendsson Hafdís Stefánsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Meistaranemar í ritlist og hagnýtri rit-
stjórn og útgáfu við HÍ standa fyrir
bókmenntaglensi í Stúdentakjallar-
anum í kvöld. Þar ætla þeir að kynna
bókina Hvísl sem þeir hafa verið með í
smíðum frá áramótum og kemur út 15.
maí. „Nú erum við að sleppa próförk-
inni í prentun og til að fá ekki fráhvörf
ákváðum við að halda bókmenntahá-
tíð og lesa aðeins upp,“ segir Halla
Margrét Jóhannesdóttir, leikari og einn
ritlistar nemanna, glaðlega. Hún tekur
fram að stjarna kvöldsins verði Guð-
mundur Andri sem hafi verið svo elsku-
legur að útbúa spurningar í barsvar
fyrir kvöldið. „Mér skilst að farið verði
um víðan völl svo það verði ekki bara
fornbókagúrúar sem koma með réttu
svörin heldur geti það eins orðið þeir
sem þekkja til Andrésar Andar,“ segir
hún og bætir við að Stúdentakjallarinn
sé kósý staður fyrir budduna, því kaffi
og bjór sé á hagstæðu verði.
Halla Margrét kveðst eiga eina
sögu í bókinni Hvísl. „Sumir eru með
smásögur, aðrir nokkrar örsögur, ein-
hverjir með brot úr lengri verkum og
svo eru ljóð innan um,“ lýsir hún. „Það
er misjafnt hvort menn eiga þarna lang-
hlaup eða nokkrar styttri vegalengdir.“
Útgáfa bókarinnar er hluti af kúrs sem
heitir Á þrykk að sögn Höllu Margrétar.
„Hann er hugsaður þannig að ritlistar-
nemar vinni verk til útgáfu sem rit-
stjórnarnemar ritstýri. Það er ekki inni
í námskeiðslýsingunni að verkið eigi að
koma út á bók en okkur fannst að þegar
búið væri að búa það til prentunar væri
skrítið að prenta það ekki svo við gerð-
umst bara útgefendur og bæði bloggið
okkar og þessi bókmenntahátíð er á
vegum útgáfunnar,“ segir hún.
Fyrstu meistaranemar í ritlist á
Íslandi útskrifast nú í vor. Fleiri bæt-
ast í hópinn í haust, þeirra á meðal
Halla Margrét. „Það er frábær hópur
í þessu námi og innan hans hefur skap-
ast gjöfult samstarf. Við erum alltaf
hvert að skoða texta annars og rýna í
þá, þannig að við höfum eignast bóka-
vini hvert í öðru.“ gun@frettabladid.is
Barsvar og upplestur
Bókmenntahátíð verður í Stúdentakjallaranum í kvöld klukkan 20. Nemar í ritlist við
Háskóla Íslands lesa upp og Guðmundur Andri rithöfundur stýrir barsvari.
HALLA MARGRÉT „Nú erum við að sleppa próförkinni í prentun og til að fá ekki fráhvörf ákváðum við að halda bókmenntahátíð,“ segir hún.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
1898 Spænsk-bandaríska stríðið hefst
þegar Spánn lýsir yfir stríði gegn Banda-
ríkjunum.
1914 Síðasti líflátsdómur er kveðinn upp
á Íslandi. Dómnum er síðar breytt í ævi-
langt fangelsi.
1916 Páskauppreisnin hefst á Írlandi.
1953 Elísabet II Bretadrottning slær Win-
ston Churchill til riddara.
1970 Fjöldi háskólastúdenta sest að á
göngum og í skrifstofum menntamála-
ráðuneytisins til þess að leggja áherslu á
kröfur námsmanna erlendis.
1980 Bandaríkjamenn reyna að frelsa 52
bandaríska gísla sem eru í haldi í Teher-
an, höfuðborg Írans. Leiðangurinn mis-
tekst og engum gísl er bjargað en átta
bandarískir hermenn láta lífið.
1982 Jón Páll Sigmarsson setur tvö Evr-
ópumet í lyftingum, lyftir 362,5 kg í rétt-
stöðu og 940 kg samtals.
MERKISATBURÐIR 24. APRÍL