Fréttablaðið - 24.04.2013, Page 51

Fréttablaðið - 24.04.2013, Page 51
MIÐVIKUDAGUR 24. apríl 2013 | MENNING | 35 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Listasmiðja 09.00 Ferðaflækja á flakki er leiðsögn og listasmiðja í Mjódd í Breiðholti þar sem leikskólabörnum verður boðið að fræðast og skapa. Sýningar 11.00 Flökkusýningin Kjarval og Gull- mávurinn/Ferðalag listmálara verður sett upp í Árbæjarsafni. 15.00 Leikskólabörn á Sæborg opna sýningu á verkum sínum á Kjarvalsstöð- um. Yfirskrift sýningarinnar er Maður málar bara eins og manni sýnist. 15.30 Sýning opnar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15. Í apríl hefur verið starfrækt ljósmyndasmiðja í þremur frístundaheimilum í Reykjavík og þátttakendur á aldrinum 9 til 11 ára bjuggu til nálargatsmyndavélar (e. pinhole) úr gosdósum, límbandi og álpappír. Þau tóku svo myndir af nán- asta umhverfi sínu með myndavélunum og eru myndirnar nú til sýnis. Aðgangur er ókeypis. 20.00 Sýningin Úr djúpunum verður opnuð í Listasafni Sigurjóns Ólafs- sonar. Á sýningunni eru skúlptúrar eftir Sigurjón Ólafsson og málverk eftir Guðmundu Andrésdóttur, Kristján Davíðsson, Nínu Tryggvadóttur, Svavar Guðnason og Þorvald Skúlason. Söngskemmtun 21.00 Söngfjelagið stendur fyrir söng- skemmtun og dansleik í Iðnó við Reykjavíkurtjörn. Þar verður vetur kvaddur með stæl og tekið fagnandi á móti sumri. Miðaverð er kr. 1.500. Kvikmyndir 15.00 Kvikmyndahátíð heldur áfram á Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15, þar sem sýndar verða stuttar sjón- varpsmyndir byggðar á hinum klass- ísku Grimms-ævintýrum. Fyrsta mynd dagsins er Mjallhvít (Schneewittchen), klukkan 16 verður sýnd myndin um Þyrnirós (Dornröschen)og klukkan 17 er það myndin Veðurnornin (Frau Holle). Uppákomur 12.00 Hjólaratleikur fjölskyldunnar við styttur bæjarins verður haldinn í tilefni Barnamenningarhátíðar. Leikurinn hefst við Hörpu og lýkur í höggmyndagarði Ásmundar Sveinssonar við Sigtún. Þátt- tökuspjöld fást í afgreiðslu Hörpu. 20.00 Meistaranemar í ritlist og hagnýtri ritstjórn standa fyrir Bók- menntahátíð stúdenta í Stúdentakjallar- anum. Nemendur í ritlist lesa úr verkum sínum og Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og ritstjóri stýrir barsvari (pubquiz) með spurningar úr heimi bók- menntanna í fyrirrúmi. Bókmenntir 20.00 Jón Björnsson hefur umsjón með bókakaffi í Borgarbókasafni Reykjavíkur, Gerðubergssafni. Gluggað verður í sam- ískar bókmenntir og bækur um Sama. Málþing 08.45 Haldin verður ráðstefna um menningarlega minnihlutahópa í barna- og unglingabókum í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Öllum er vel- komið að sitja fyrirlestra ráðstefnunnar endurgjaldslaust. Nánari upplýsingar á heimasíðunni conference.hi.is/campus- culturae Dans 14.00 Síðdegisdans verður hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík, Stangarhyl 4. Stjórnendur eru Matthildur og Jón Freyr. Tónlist 20.00 Samkór Reykjavíkur verður með tónleika í Norðlingaskóla. Fjölbreytt efnisskrá og boðið upp á hressingu í hléi. Aðgangseyrir er kr. 2.000 en frítt fyrir 16 ára og yngri í fylgd með full- orðnum. 21.00 Robert the Rommate spilar á Café Rosenberg. 22.00 Oddur Ingi, Mystery Boy & the Mystery Boyband og The Big Band Theory spila á efri hæð Faktorý. Aðgang- ur er ókeypis. 22.00 Plötusnúðateymið Dusky stígur á svið á Volta, Tryggvagötu 22. Dusky til halds og trausts verður landslið íslenskra plötusnúða, þeir Óli Ofur, BenSol og CasaNova. Miðaverð er kr. 1.500 fyrir miðnætti en kr. 2.000 eftir miðnætti. 23.00 Hljómsveitin Úlfarnir leikur á Sumardansleik Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1000. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is. ÁRBÆJARSAFN Flökkusýningin Kjarval og Gull- mávurinn/Ferða- lag listmálara verður sett upp á Árbæjarsafni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.