Fréttablaðið - 24.04.2013, Page 56
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 40
Keflavík hefur leikið í efstu deild frá árinu 2004
en nú telur Fréttablaðið líkur á því að liðið leiki
í næstefstu deild að ári. Liðið hefur misst
markahæsta leikmann félagsins frá upphafi,
Guðmund Steinarsson, og ólíklegt að ser-
bneskur staðgengill hans fylli í skarðið.
Miðjan er skipuð efnilegum strákum
sem munu þó sakna hörkutólsins
Einars Orra Einarssonar sem
glímir við meiðsli. Liðið mætir
FH og KR í fyrstu leikjum sínum
og hætt við því að slæm byrjun geti
sett liðið út af laginu.
Kefl avík hafnar í 11. sætiSPÁ FRÉTTA-
BLAÐSINS
2013
➜ STJARNAN
Jóhann Birnir
Guðmundsson
➜ ÞJÁLFARINN ➜ NÝJU ANDLITIN
➜ HVAÐ ER LANGT SÍÐAN...
…liðið varð meistari– 40 ár …liðið var inn á topp 3– 5 ár …liðið varð bikar-
meistari– 7 ár … liðið féll úr efstu deild– 11 ár … liðið skoraði flest mörk í
deildinni– 5 ár … liðið skoraði minna en 20 mörk á einu tímabili– 15 ár.
Zoran Daníel Ljubicic
er 46 ára gamall og
lék á sínum tíma
169 leiki í efstu
deild. Á að baki eitt
tímabil sem þjálfari
í efstu deild (22 leikir, 8 sigrar, 43
prósent).
Halldór Kristinn Halldórsson (Valur)
Magnús Þórir Matthíasson (Fylkir)
Ray Anthony Jónsson (Grindavík)
Faed Gazibegovic (Slóveníu)
Marjan Jugovic (Barein)
Fylgstu með þessum:
Sigurbergur Elísson– öflugur miðjumað-
ur sem var loksins meiðslafrír í fyrra.
Mikil ábyrgð hvílir á herðum
Jóhanns sem verður 36 ára
á árinu. Atvinnumaðurinn
fyrrverandi þarf að eiga
topptímabil og vera stoð og
stytta ungu leikmannanna
ef ekki á illa að fara í
Keflavík.hefst eftir
11
daga
➜ EINKUNNASPJALDIÐ VÖRNIN ★★★★★ SÓKNIN ★★★★★ ÞJÁLFARINN ★★★★★ BREIDDIN ★★★★★ íSLANDSMEISTARI: 4 SINNUM (SÍÐAST 1973) BIKARMEISTARI: 4 (2006)
Fáðu þér áskrift
512 5100
stod2.is
MEISTARAR
MÆTAST
Þýsku meistararnir fá þá spænsku í
heimsókn í undanúrslitum Meistara-
deildarinnar.
Baráttuleikur í leiftrandi háskerpu.
DORTMUND
REAL MADRID
Í KVÖLD KL. 18:30
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
I0
14
8
8
1
ÞORSTEINN J. OG GESTIR KL. 18:00
HANDBOLTI Stjarnan vann frækinn
sigur á Íslands-, deildar- og bikar-
meisturum Vals í undanúrslitum
úrslitakeppni N1-deildar kvenna
í fyrrakvöld. Árangurinn er ekki
síst merkilegur í því ljósi að
fyrir tæpum tveimur árum síðan
var tekin ákvörðun um að draga
kvennalið Stjörnunnar úr keppni
í N1-deild kvenna.
Stuttu síðar var hætt við þá
ráðagerð og skipt um hluta af
stjórn handknattleiksdeildarinn-
ar. Ragnheiður Traustadóttir tók
við formannsstarfinu en undir
hennar stjórn hafa bæði karla- og
kvennalið félagsins náð frábærum
árangri.
„Það er svo flókin saga sem
býr þarna að baki að ég veit ekki
hvort ég geti útskýrt í stuttu máli
af hverju það var ákveðið að draga
liðið úr keppni á þessum tíma,“
sagði Ragnheiður í samtali við
Fréttablaðið í gær. „Sennilega
var það bara fyrst og fremst röng
ákvörðun sem var tekin. Engu að
síður stóðum við þá frammi fyrir
því að hafa misst markvörðinn
okkar [Florentinu Stanciu, sem fór
til ÍBV] tveimur vikum fyrir tíma-
bil. Það var stóra málið og þá var
allt í einu farið að velta því fyrir
sér hvort við gætum verið með
samkeppnishæft lið.“
Liðið tók þó þátt í N1-deild
kvenna af fullum krafti í fyrra og
komst þá í úrslitakeppnina eftir að
hafa lent í fjórða sæti deildarinn-
ar, rétt eins og nú. Þá steinlá liðið
hins vegar fyrir verðandi meistur-
um Vals með samtals 36 mörkum í
þremur leikjuum.
Nú gerðu Stjörnustúlkur sér
lítið fyrir og unnu Val í oddaleik
í Vodafone-höllinni, þar sem þær
rauðklæddu hafa vart tapað leik
undanfarin ár.
Ragnheiður segir að ákvörðun-
in á sínum tíma hafi verið ákveð-
ið skipsbrot fyrir handboltann í
Garðabæ. En eftir skjót viðbrögð
hafi starfið gengið mjög vel.
„Það hefur verið mikil aukning
í iðkendafjölda, um 20-30 prósent,
og þá sérstaklega í kvennaflokk-
unum sem ég hef haft sérstakan
áhuga á. Mér finnst kvennabolt-
inn hafa staðið víða í stað en und-
anfarið hefur verið breyting á því.
Við vorum til dæmis með 40 pró-
senta aukningu í 5. flokki kvenna
en það eru ótrúlegar tölur,“ segir
Ragnheiður.
Hún bætir við að margt hafi
komið til og stuðlað að þessum
góða árangri. Til dæmis hafi liðið
styrkt sig með öflugum leikmönn-
um og sé að toppa á réttum tíma. Þá
hafi ráðning Skúla Gunnsteinsson-
ar í starf þjálfara verið happaskref
en Skúli, sem er gamall og gegn
Garðbæingur, sneri aftur í þjálfun
í fyrsta sinn í tólf ár, eftir að hann
hætti með Aftureldingu árið 2000.
„Skúli flutti aftur heim til
Íslands í fyrra eftir að hafa búið í
Svíþjóð um árabil og okkur fannst
spennandi að prófa hann. Hann
var auðvitað farsæll þjálfari og
leikmaður á sínum tíma. Svo erum
við með sterkan aðstoðarþjálfara
í Ingu Fríðu Tryggvadóttur auk
þess sem Roland Eradze hefur
verið markvarðaþjálfari í fimm
ár. Við höfum verið með gott fólk
í kringum okkur sem hefur skipt
höfuðmáli,“ segir Ragnheiður.
Stjarnan mætir nú Fram í loka-
úrslitum N1-deildar kvenna en
rimman hefst í Safamýrinni á
morgun kl. 15. eirikur@frettabladid.is
Var röng ákvörðun
Í ágúst árið 2011 gaf handknattleiksdeild Stjörnunnar út tilkynningu um að
draga kvennalið sitt úr N1-deild kvenna. Nú, innan við tveimur árum síðar, er
liðið komið í lokaúrslit um Íslandsmeistaratitilinn eft ir fj ögurra ára fj arveru.
FAGNAÐ Hanna G. Stefánsdóttir er lykilmaður í liði Stjörnunnar. Í bakgrunni er
þjálfarinn Skúli Gunnsteinsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPORT
KÖRFUBOLTI Í kvöld fer fram annar
leikur KR og deildarmeistara
Keflavíkur um Íslandsmeistara-
titilinn í körfubolta kvenna. Kefla-
vík er með 1-0 forystu eftir sigur á
heimavelli um helgina en leikurinn
fer fram í vesturbæ Reykjavíkur
í kvöld.
„Við dvöldum ekki lengi við
þetta tap,“ sagði Finnur Freyr
Stefánsson, þjálfari KR. „Þetta var
bara fyrsti leikurinn. Við ætlum að
vinna okkar leiki á heimavelli og
taka svo einn í Keflavík.“
Eftir leik á laugardaginn kvart-
aði Finnur Freyr undan Keflvík-
ingum og sakaði þá um að hafa
spilað of hart á Shannon McCall-
um, helstu stjörnu KR-liðsins.
„Hún var hökkuð í spað og
henni var ýtt og haldið frá bolt-
anum allan leikinn. Það var samt
ekki ein einasta villa dæmd á það,“
sagði Finnur við Vísi eftir leik.
Hann sagði svo í gær að þetta hefði
ekki verið neitt nýtt.
„Þetta hafa liðin gert síðustu
mánuði eða tvo. Þau hafa komist
upp með að spila fullfast á hana
miðað við aðra leikmenn í deild-
inni,“ sagði Finnur.
Sigurður Ingimundarson, þjálf-
ari Keflavíkur, gaf lítið fyrir þess-
ar ásakanir. „Það er bara hlægi-
legt,“ sagði Sigurður sem var
vitanlega ánægður með sigurinn,
þó svo að það sé ávallt hægt að
gera betur.
„Við getum spilað betur, sérstak-
lega miðað við sóknarleik okkar í
fyrri hálfleik. Fráköst og tapað-
ir boltar hafa líka verið að stríða
okkur og við getum bætt okkur
þar líka.“
Finnur segir vandamál KR-inga
vera fyrst og fremst í hugarfarinu.
„Við þurfum að halda haus betur
en við gerðum síðast. Þá vorum
við í séns í 28 mínútur en misst-
um þá hausinn og komumst ekki til
baka. Keflavík er með gríðarlega
vel mannað lið en ég hef fulla trú
á sigri,“ sagði Finnur. - esá
Kvartanir KR-inga hlægilegar
KR og Kefl avík eigast við í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn.
LYKILMAÐUR Shannon McCallum í leik
með KR. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN