Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 62
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 46
Breski ljósmyndarinn Tom Mills og fjölskylda
hans eru miklir Íslandsvinir og hafa heimsótt
landið reglulega frá 2004. Tveir synir Mills-
hjóna bera jafnframt rammíslensk nöfn.
„Ég heimsótti Ísland fyrst í janúar árið
2004. Þá var allt á kafi í snjó og þrátt fyrir að
hafa leigt jeppa komumst við ekki á alla þá
staði sem við vildum heimsækja. Ég var ákveð-
inn í að koma aftur og skoða landið betur og sú
tilfinning hefur enn ekki liðið mér úr brjósti
þrátt fyrir fjölda heimsókna,“ segir Tom Mills
um fyrstu heimsókn sína til landsins. Hann
segir íslenskt landslag síbreytilegt og á erfitt
með að gera upp við sig hvaða árstími sé best-
ur fyrir Íslandsheimsókn. „Á veturna er hægt
að sjá norðurljósin og á sumrin gefst manni
kostur á að ferðast um hálendið sem á sér enga
hliðstæðu í heiminum. Íslendingar eru jafn
heillandi og náttúran; vinalegir og glaðværir.
Mér var sagt að vinátta við Íslending myndi
endast út ævina og það hefur reynst satt.“
Synir Mills-hjónanna bera báðir íslensk
goðanöfn og heita Loki Gunnar og Óðinn
Gunnar. Tom viðurkennir að hjónin hafi hug
á að flytja til Íslands í framtíðinni og að það
hafi haft áhrif á nafnavalið. „Það er draum-
ur að flytja til Íslands í framtíðinni og okkur
þótti skemmtilegt að strákarnir hétu íslensk-
um nöfnum í stað nafna á borð við Steve eða
Dave,“ segir hann að lokum. - sm
Íslendingar eru vinalegir og glaðværir
Breski ljósmyndarinn Tom Mills og fj ölskylda hans eru miklir Íslandsvinir. Synir hans bera íslensk nöfn.
ÍSLANDSVINIR Tom og Natasha Mills ásamt börnum
sínum. MYND/TOM MILLS
„Ef þú vilt láta halda fyrir þér vöku, þá mæli
ég með Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardótt-
ur,“ segir Christopher Fowler, gagnrýn-
andi breska viðskiptablaðsins Financial
Times.
Fowler fjallar um Ég man þig í umsögn
um Nordic Noir, yfirlitsriti yfir norrænar
glæpasögur eftir Barry Forshaw.
Bók Forshaw kom nýverið út í Bret-
landi þar sem hann fer yfir þennan
geira bókmenntanna. Gagnrýn-
andinn segir að margir þeirra
sem þekkja ekki til norrænna
glæpasagna byrji á bókum
Maj Sjövall og Per Wahlöö
um Martin Beck og flytji
sig síðan yfir í Stieg Lars-
son. Hann segir For-
shaw fjalla um þríleik Larssons en líka um
keppinauta hans og arftaka og hið myrka
afl sem býr í norrænum sögum.
Þess má geta að Forshaw birti á sínum
tíma ítarlegan dóm um Ég man þig í
blaðinu The Independent. Þar sagði
hann að Yrsa væri „jafnoki höfunda á
borð við Stephen King þegar kemur
að því að skapa óhugnað og ótta“. - fb
Financial Times hrífst af Yrsu
Mælir með draugasögunni Ég man þig ef fólk vill láta halda fyrir sér vöku.
YRSA SIGURÐARDÓTTIR Gagnrýnandi
Financial Times skrifar um Ég man þig.
➜ Yrsa er á ferð um Þýskaland að kynna
Brakið. Hún kom fram í Hamborg í gær-
kvöldi og verður í München í kvöld.
„Ég ætlaði aldrei að verða leik-
ari og stóð fastur á þeirri ákvörð-
un minni þangað til fyrir tveimur
árum,“ segir hinn tvítugi Róbert
Óliver Gíslason, sem hefur fengið
inngöngu í hinn virta leiklistar-
skóla Stella Adler, Academy of Act-
ing and Theater, í Los Angeles.
Róbert heldur út í ágúst en námið
er þriggja ára BA-nám. Hann ætl-
aði aldrei að leiðast út á leiklistar-
brautina þrátt fyrir að vera kom-
inn af mikilli leiklistarfjölskyldu.
Foreldrar hans eru leiklistarfólk-
ið Edda Björgvinsdóttir og Gísli
Rúnar Jónsson og bróðir hans er
leikarinn Björgvin Frans Gíslason.
„Ég hef verið spurður svona átta
billjón sinnum yfir ævina hvort
ég ætli ekki að feta í fótspor fjöl-
skyldunnar en alltaf neitað. Svo
fyrir svona tveimur árum skráði
ég mig á leiklistarnámskeið og þá
varð ekki aftur snúið. Held að ég
geti ekki flúið þetta lengur,“ segir
Róbert, sem vinnur sem vaktstjóri
á Tokyo Sushi í Glæsibæ. „Foreldr-
ar mínir eru voða spenntir fyrir
mína hönd þó að þetta hafi komið
þeim svolítið á óvart.“
Í skólanum fetar Róbert í fót-
spor heimþekktra leikara á borð
við Marlon Brando, Robert De
Niro og Sölmu Hayek. Ekki er hefð-
bundið inntökuferli inn í skólann en
Róbert segir fyrsta árið vera í raun
eitt stórt inntökupróf. „Maður þarf
að vera á tánum allan tímann því
að skólinn getur rekið mann eftir
fyrsta árið. Ég hef farið í eitt viðtal
í gegnum Skype en þar var í raun
bara verið að athuga með tungu-
málið,“ segir Róbert sem er með
bandaríska hreiminn á hreinu þar
sem hann dvaldi eitt ár með föður
sínum í Bandaríkjunum þegar hann
var 14 ára. „Bróðir minn er búsett-
ur með fjölskyldu sinni í Minnea-
polis en það er fínt að vita af honum
þarna því að ég fer út einn.“
Róbert hefur talað inn á um 300
barnaþætti um Dodda í Leikfanga-
landi. alfrun@frettabladid.is
Leiklistarbakterían
fj ölskylduveira
Róbert Óliver Gíslason hefur fengið inngöngu í hinn virta leiklistarskóla Stella
Adler í Los Angeles. Róbert er kominn af mikilli leikarafj ölskyldu þar sem hann
er yngsti sonur Eddu Björgvinsdóttur og Gísla Rúnars Jónssonar.
SPENNTUR Róbert Óliver Gíslason hefur smitast af leiklistarbakteríunni frá for-
eldrum sínum, Eddu Björgvinsdóttur og Gísla Rúnari Jónssyni, en hann heldur til
Los Angeles í leiklistarnám í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
➜ Marlon Brando
➜ Salma Hayek
➜ Robert De Niro
➜ Benicio Del Toro
➜ Antonio Banderas
➜ Melanie Griffith
➜ Richard Dreyfuss
➜ Holland Taylor
Fyrrverandi nemendur í Stella Adler-leiklistarskólanum:
Það er þegar ég finn ilminn af
nýslegnu grasi, þá veit ég að það er
komið vor.
Íris Hrund Þórarinsdóttir tónlistarkona.
VORBOÐINN
Umboðs- og dreifingaraðili Ray Ban á Íslandi
í dag og á morgun
Opið í Smáralind sumardaginn fyrsta frá 13–18