Fréttablaðið - 30.04.2013, Page 22

Fréttablaðið - 30.04.2013, Page 22
FÓLK|HEILSA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Árið 2000 fóru 300 konur í Bandaríkjunum í lýtaaðgerð en á síðasta ári voru aðgerð- irnar fimmtán þúsund talsins. Aðgerðin er vinsælust meðal kvenna yfir fertugu en nokkur hundruð karlmenn fóru í slíka aðgerð á síðasta ári. Læknar segja enga eina ástæðu fyrir auknum áhuga kvenna á að losna við upp- handlegsspik. Sumar fara í slíkar aðgerðir til að losna við mikla umframhúð eftir mikið þyngdartap, aðrar sækjast hins vegar bara eftir því að líkjast frægum konum með tónaða upphandleggi. Nýleg könnun sýnir að flestar konur dást mest að höndum forsetafrúarinnar Michelle Obama en í öðru sæti yfir gæða- lega upphandleggi er leikkonan Jennifer Aniston. Kostnaður við aðgerð af þessu tagi er í kringum fjögur þúsund dollarar eða nærri hálf milljón króna. Aðgerðin er þó langt í frá auðveld eða sjálfsögð enda þarf oft bæði fitusog og skurðaðgerð til að fjarlægja slappa húð. Skera þarf frá olnboga og upp í holhönd sem skilur eftir sig þó nokkurt ör. Því þurfa konur að vega og meta vel kosti og galla við slíka aðgerð. STÓRSÓKN GEGN BINGÓVÆNGJUM Aðgerðum lýtalækna sem felast í því að fjarlægja fitu eða húð af neðanverðum upphandleggjum hefur stórfjölgað í Bandaríkjunum. FLOTTAR KONUR Konur dást mest að höndum Mich- elle Obama og Jennifer Aniston. Þetta sýnir ný rannsókn á vegum kristilega háskólans í Texas. Fengnir voru 300 sjálfboðaliðar á aldrinum 18 til 30 ára og þeim skipt í þrjá hópa. Sá fyrsti fékk matseðla án nokkurra upplýsinga, annar hópurinn matseðla með upplýsingum um hitaeiningafjölda og sá þriðji matseðla sem sýndi hitaeiningafjölda og upplýsingar um hversu mikla hreyfingu þyrfti til að brenna hverri máltíð. Á matseðlunum voru sömu réttirnir; hamborgarar, samlokur, salöt, franskar, gosdrykkir og vatn. Þátttakendur vissu ekki eftir hverju verið var að leita. Niðurstöður sýndu að þeir sem fengu ítarlegustu upplýsingarnar pöntuðu og borð- uðu mun minna en hópurinn sem fékk engar upplýsingar og innbyrtu að meðaltali hundrað færri hitaeiningar. Rannsakendur hyggja nú á enn frekari rannsóknir en British Heart Foundation bendir á að heilsusamlegt mataræði snúist um meira en hitaeiningar þótt vegvísir um heilsusamlegri valkost hjálpi fólki að taka upplýsta ákvörðun. Veitingahús mættu minnka skammtana og draga úr notkun salts, sykurs og mettaðrar fitu. Hvort sem borðað er heima eða að heiman sé rétt samsett máltíð með gnótt grænmetis og ávaxta allra besta leiðin til að vernda hjartað og stuðla að betri heilsu. BRUNI Á MATSEÐLUM Matseðlar sem sýna hitaeiningafjölda rétta og hversu lengi þarf að ganga rösklega til að brenna matnum geta hjálpað fólki að velja hollari fæðu og borða minna í einu. FREISTANDI EN DÝR- KEYPT Það kostar fólk um tveggja tíma röskan göngu- túr að brenna tvöföldum ostborgara. Endurskoða á vinnureglur á breskum sjúkrahúsum sem segja að klippa eða klemma eigi naflastreng eins fljótt og auð- ið er eftir fæðingu. Nýjar rann- sóknir sýna að við þetta missa nýburar af mikilvægu blóði og geta jafnvel þjáðst af járnskorti. Frá þessu er greint af fréttavef BBC. Talið er að við fæðingu sé þriðjungur af blóði nýburans enn í naflastrengnum og fylgjunni. Með því að bíða nokkra stund færist þetta blóð aftur til barns- ins. Þetta getur skipt miklu, sér- staklega fyrir fyrirbura. Núverandi reglur voru birtar 2007 en þá hafði í áratugi verið viðtekin venja að klippa á nafla- strenginn strax eftir fæðingu á breskum sjúkrahúsum. Í ritgerð frá konunglegum háskóla fæð- ingar- og kvensjúkdómalækna, Royal College of Obstetricians and Gynaecologists (RCOG), sem gefin var út árið 2009, er greint frá því að tengsl hafi fundist milli barna þar sem klippt var strax á naflastrenginn og lágs járnbú- skapar í allt að sex mánuði frá fæðingu. Lágur járnbúskapur geti síðan leitt til annarra vandamála. Í ritgerðinni er lagt til að strengur- inn sé ekki klipptur fyrr en sláttur í honum hættir af sjálfu sér en það geti tekið frá tveimur upp í fimm mínútur. Sumir spítalar í Bretlandi hafa þegar breytt sínum vinnureglum en til stendur að endurskoða opinberar reglur hvað þetta varðar. En hvernig er staðan hér á landi? „Verklagsreglur okkar mæla með að skilja á milli barns og fylgju eftir 2-5 mínútur. Ef barni er haldið 30 cm fyrir neðan fylgju er nóg að bíða í tvær mín- útur en ef barn er í fangi móður þarf að bíða í fimm mínútur til þess að fá hámarksblóð úr fylgjunni,“ segir Guðrún Sigríður Ólafsdóttir, ljósmóðir á fæðingar- deild Landspítala Íslands. Í regl- unum kemur einnig fram að með því að seinka því að skilja á milli fái fyrirburar blóð frá fylgjunni sem minnki líkur á öndunarerfið- leikum, blóðgjöf, heilablæðing- um og síðkominni blóðsýkingu. EKKI SKAL KLIPPA STRENGINN STRAX HEILSA Mikilvægt er að klippa ekki á naflastrenginn strax eftir fæðingu. Með því að bíða nokkrar mínútur fær barnið mikilvægt blóð úr fylgjunni. NÝBURI Þriðjungur af blóði nýbura er enn í naflastreng og í fylgju við fæðingu. Með því að klippa strax á strenginn fær nýburinn ekki þetta blóð í líkamann. NORDICPHOTOS/GETTY Sæktu þér nýja appið í snjallsímann þinn og hlustaðu á FM957, Bylgjuna og X977 hvar og hvenær sem er. Fáðu okkur í símann þinn! Ný tt ap p Farðu á visir.is/utvapp eða skannaðu QR kóðann og sæktu Útvappið fyrir iOS eða Android.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.