Fréttablaðið - 30.04.2013, Page 24
BÍLAR2 Þriðjudagur 30. apríl 2013
FRÉTTABLAÐIÐ
ENGIN ÓVÆNT ÚTGJÖLD
Bílaleigan Avis býður upp á vetrar- og langtímaleigu. Þannig borgar fólk aðeins
fasta greiðslu mánaðarlega en Avis sér um rekstur bílsins. Reynir Ólafsson hefur
verið með bíl á vetrarleigu frá Avis og segir reynsluna afar góða.
„Þetta kemur mjög vel út fyrir budduna,” segir Reynir sem hefur haft bíl á
vetrarleigu og ætlar nú að skipta yfi r í langtímaleigu. MYND/DANÍEL
AUGLÝSING: AVIS KYNNIR
Um næstu helgi mun Bílgreina-
sambandið standa fyrir mikilli
bíla- og tækjasýningu í Fífunni
Kópavogi. Sambandið endurvakti
bílasýningar sínar árið 2011, en
sýningar þess nutu mikilla vin-
sælda hjá almenningi hér á árum
áður. Að sögn Özurar Lárusson-
ar, framkvæmdastjóra Bílgreina-
sambandsins, stefnir í glæsilega
og veglega sýningu að þessu sinni.
„Þegar við endurvöktum bílasýn-
ingu Bílgreinasambandsins árið
2011 brydduðum við upp á þeirri
nýbreytni að sýna ekki einvörð-
ungu bíla heldur einnig vörur og
þjónustu sem tengdust bílgrein-
inni. Bílgreinasambandið er sam-
tök atvinnurekenda í sölu öku-
tækja, vöru og þjónustu sem þeim
tengjast og m.a. er eitt af hlut-
verkum sambandsins að stofna
til, skipuleggja og halda sýning-
ar á bifreiðum, hlutum tengdum
þeim og iðnaðinum í heild, en í Bíl-
greinasambandinu eru 155 fyrir-
tæki í bílgreininni.“
Meira en bílar
Enn fremur segir Özur að á sýn-
ingunni verði nýjar gerðir af
bílum frumsýndar, auk þess sem
fjöldi bíla hefur verið sérstaklega
fluttur til landsins vegna sýn-
ingarinnar. Þá munu verða á um
4.000 fm sýningarfleti Fífunnar,
auk bílaumboðanna, aðilar tengd-
ir bílgreininni, s.s. fjármögnunar-
aðilar, olíufélag, bílaleigur, sölu-
aðilar á hjól- og fellihýsum og
aðilar með rekstarvörur og vara-
hluti fyrir bíla og tæki svo eitt-
hvað sé nefnt. Sýnendur margir
hverjir munu, ásamt því að kynna
þjónustu sína, bjóða sýningar-
gestum að taka þátt í ýmsum get-
raunum og vera með uppákomur
af ýmsu tagi á sýningarsvæðum
sínum. Sýningin er opin laugar-
daginn 4. maí frá kl. 11-18 og
sunnudaginn 5. maí frá kl. 12-17.
Aðgangur er ókeypis, bætir Özur
við í lokin, og hvetur almenn-
ing og bílaáhugamenn til að fjöl-
menna í Fífuna á sýninguna.
Bílasýning Bílgreinasambandsins
næstu helgi í Fífunni
Þegar fyrir lá að við þyrftum að
fá okkur annan bíl á heimilið fór
ég að skoða þá kosti sem voru
í boði. Einn þeirra var að leigja
bíl. Mér fannst það heldur frá-
leit hugmynd til að byrja með
en þegar ég skoðaði skilmálana
nánar komst ég að því að þetta
er mjög sniðug lausn,“ segir
Reynir Ólafsson, sem hefur verið
með Volkswagen Polo frá Avis á
leigu í vetur. „Þetta hefur komið
mjög vel út og ég stefni á að taka
annan bíl á leigu til lengri tíma.“
Reynir ákvað að byrja á vetrar-
leigu en sú leið hefur verið afar
vinsæl hjá Avis. Þá fær fólk bílinn
í upphafi vetrar en skilar honum í
maí. Sú leið hentar vel þeim sem
eru í árstíðabundnum störfum
eða þá sem kjósa heilsusamlegri
lífsstíl yfir sumartímann.
Helsta kostinn við bílaleig-
una segir Reynir vera fyrirsjáan-
leikann. „Ég borga visst gjald í
hverjum mánuði en þarf ekki að
hafa áhyggjur af neinu öðru en
að kaupa bensín. Ég slepp við
bifreiðagjöld, tryggingar, dekk,
dekkjaskipti, þjónustuskoðanir og
almennt viðhald,“ segir hann og
bendir á að frábært sé að sleppa
við öll óvænt útgjöld. Ef svo
óheppilega vildi til að bíllinn lenti
í árekstri er hann kaskótryggður
og Reynir þarf aðeins að borga
sjálfsábyrgðina ef svo ber undir.
„Það er mér afar mikilvægt að
kostnaðurinn liggi fyrir,“ segir
Reynir og hrósar Avis fyrir góða
þjónustu. „Það er frábært að fara
í smurningu hjá þeim og ef bíll-
inn þarf að fara í þjónustuskoð-
un hef ég fengið annan bíl lánað-
an á meðan.“
Reynir velti því líka fyrir sér
á sínum tíma að að kaupa bíl.
Þegar hann hins vegar reiknaði
út lántökukostnað og alla aðra
rekstrarliði sem fylgja því að
eiga bíl komast hann að þeirri
niðurstöðu að mun hagstæðara
væri að leigja bíl hjá Avis. „Þetta
kemur mjög vel út fyrir budduna
en auk þess er frábært að vera á
nýlegum bíl sem er í góðu lagi.“
Frá bílasýningunni í Fífunni árið 2011.
SUZUKI SWIFT SPORT
Finnur Thorlacius Reynsluakstur
Þ
að þarf ekki stóran bíl eða
stóra vél til að skemmta öku-
mönnum rækilega og það
sannast einna best í Suzuki
Swift Sport. Þessi snagg-
aralegi og gullfallegi bíll
felur geysiöfluga 1,6 lítra vél
undir húddinu sem skilar 136 hestöflum til
framhjólanna. Það er ekki ýkja há hest-
aflatala en þau hestöfl eru ekki að drattast
með neina aukaþyngd því bíllinn er ekki
nema ríflega tonn að þyngd. Þessi smái
og ódýri bíll er eitt best geymda leyndar-
málið í sýningarsölum landsins, svo góður
er hann. Suzuki Swift hefur reyndar allt-
af verið góður bíll og því er það sem fersk-
ur sunnanvindur að bæta smá dínamíti
í hann. Swift í sportútfærslu er talsvert
harðari bíll en sá hefðbundni og fjöðrunin
er eins stíf og nafnið bendir til. Þrátt fyrir
allt skemmtilega aflið eyðir þessi bíll ekki
nema 6,4 lítrum í blönduðum akstri og 5,2
í utanbæjarakstri. Eins og sönnum sport-
bíl sæmir liggur hann eins og pönnukaka
á vegi og hendist um göturnar eins og lipr-
asti fimleikamaður. Svo haldið sé áfram
að mæra bílinn þá skal fullyrt að hann sé
ein óvæntasta og skemmtilegasta upplifun
sem undirritaður hefur prófað í formi bíls
síðustu misserin.
Haganlegar línur og mikill staðalbúnaður
Að ytra útliti fær Suzuki Swift Sport topp-
einkunn. Þrátt fyrir smæð bílsins eru
flennistórir flekar í hurðunum og aftur-
bretti og það færir honum fágaðan svip.
Þær fáu línur sem brjóta upp bílinn eru
svo á hárréttum stað og bíllinn samsvarar
sér allur svo vel. Afturendinn er að sama
HÆFILEIKARÍKT KRÚTT
Suzuki Swift Sport er óhemju skemmtilegur akstursbíll. Hann er öflugur, límist við veginn og er sætur
Suzuki Swift
er laglegur
enn lítill bíll
með krafta
í kögglum
og hagar
sér eins og
sannur fi m-
leikamaður á
götunum.
www.visir.is/bilar
BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Sverrir Birgir
Sverrisson
sverrirbirg-
ir@365.is
Sími 5125432
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is