Fréttablaðið - 30.04.2013, Qupperneq 25
BÍLAR 3Þriðjudagur 30. apríl 2013
FRÉTTABLAÐIÐ
skapi fríður og álrenningurinn neðst sem
púströrin tvö koma út úr ljá bílnum sport-
legt og kraftalegt yfirbragð, sem og frek-
ar stór vindskeiðin efst. Gluggarnir eru
samt nægjanlega stórir og því er útsýnið
gott, sem ekki er nú algilt meðal sportbíla.
Auðvitað bætir það enn fremur við fegurð
bílsins að hann kemur á flottum 17 tommu
álfelgum og það myndi kosta skilding-
inn að bæta slíkum felgum við venjulegan
Swift. Smæðin og fegurðin gera hann til
samans að miklu krútti. Að innan, líkt og
við mátti búast, er hvorki mikill íburður
né neitt sem skortir. Framsætin eru mjög
góð og sannkölluð sportsæti með miklum
hliðarstuðningi. Ekki skaðar það sætin að
vera með laglega stöguðum saumi. Aftur-
sætin eru fyrir fullorðna en þá er betra
að reyna ekki að koma þremur slíkum
þar fyrir. Eins og við má búast er skott-
rými ekki af stærri gerðinni, enda Swift
borgar bíll.
Frábær akstursbíll
Aðalmálið við Suzuki Swift Sport er hins
vegar ekki einhver staðalbúnaður. Það
sem öllu máli skiptir er hversu frábær
akstursbíll hann er. Lengi væri hægt að
lýsa því hvernig hann bregst við hinum
ýmsu aðstæðum en einfaldast er að segja
að hann leysir þær allar af stakri snilld.
Bíllinn vill bara alls ekki undirstýra þó
hann sé hreinlega grátbændur um það.
Gott er þó að hafa í huga að bráðnauðsyn-
legt er að leyfa vélinni að snúast mikið
og þannig er best að leita að því afli sem
býðst. Því skal ekki flýta sér að skipta
bílnum upp heldur draga það sem lengst.
Það er líka svo ári skemmtilegt. Beinskipt-
ingin í bílnum er sex gíra og venst vel en í
þeim orðum felst að henni þarf að venjast.
Skiptingin er reyndar það eina sem hægt
er að kvarta yfir. Sú kvörtun snýst um það
að hætt er við að skipta í rangan gír og
gerðist það oftar en einu sinni, bæði þegar
átti að fara í fimmta en endað í þriðja gír
og þegar fara átti í sjötta en endað í fjórða.
Við það öskraði vélin náttúrulega af sárs-
auka og lá við því sama hjá ökumanni.
Swift Sport er ekki með neitt yfirmáta afl,
en það nýtist einkar vel.
Hafa ekki undan við að framleiða
Þýskir verkfræðingar myndu mæra það
verk sem kollegar þeirra í Japan hafa gert
við smíði þessa bíls og þeirra aksturs-
eiginleika sem hann býður upp á. Hann
býður eiganda sínum til veislu á degi
hverjum. Það er kannski helsti ókosturinn
við Swift Sport að svo gaman er að keyra
hann að bensínfóturinn verður alltaf svo
þungur og þá fer þessi bíll að eyða miklu
meira en uppgefið er. Svo vel hefur þess-
um bíl verið tekið að Suzuki hefur engan
veginn undan að smíða hann handa gráð-
ugum kaupendum.
1,6 VVT BENSÍNVÉL, 136 HESTÖFL
FRAMHJÓLADRIF
Eyðsla 6,4 l./100 km
í bl. akstri
Mengun 147 g/km CO2
Hröðun 8,7 sek.
Hámarkshraði 197 km/klst
Verð Frá 3.390.000 kr.
Umboð Suzuki á Íslandi
● Góðir aksturseiginleikar
● Fagurt ytra útlit
● Lágt verð
● Hætt við að skipta
í rangan gír
● Eyðsla við frísklegan akstur
SUZUKI
SWIFT SPORT
LÁTLAUS
INNRÉTTING
En samt
heilmikill
staðalbúnaður
HLJÓÐKERFIÐ
Kom hressilega á
óvart fyrir gæði
SLÉTTIR FLETIR
Það einkennir
ytra útlit bílsins
hve stórir sléttu
fletirnir eru á
svo litlum bíl
Langtímaleiga
Langtímaleiga
– langsniðugust!Frá
49.900 kr.á mánuði!
591-4000 | www.avis.is