Fréttablaðið - 30.04.2013, Side 37
ÞRIÐJUDAGUR 30. apríl 2013 | MENNING | 25
Við bjóðum 20%
afslátt á Nýdanska
Við bjóðum
góða þjónustu
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Viðskiptavinir Íslandsbanka fá 20% afslátt á tónleikana Fram á nótt með
hljómsveitinni Nýdanskri.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
7
6
4
6
Nýdönsk
Eldborg, Hörpu
21. september kl. 20
Hofi, Akureyri
28. september kl. 20
Misstu ekki af einstakri upplifun þar sem Nýdönsk mun taka öll sín vinsælustu lög sem
hafa tekið sér bólfestu í hjörtum fjölmargra aðdáenda sveitarinnar.
Skemmtu þér Fram á nótt með Nýdanskri!
Forsala fyrir viðskiptavini Íslandsbanka hefst þriðjudaginn 30. apríl
en almenn miðasala 2. maí.
Afslátturinn fæst þegar greitt er með greiðslukorti frá Íslandsbanka eða Byr í miðasölu
Hörpu í síma 528 5050 eða á harpa.is og í miðasölu Hofs í síma 450 1000 eða á
menningarhus.is. Einnig er hægt að nálgast miða á midi.is.
Viðskiptavinir á póstlista Vildarklúbbsins hafa fengið afsláttarkóða í tölvupósti en til að nýta sér tilboðið er einnig hægt að nálgast afsláttarkóða hjá Þjónustuveri bankans
í síma 440 4000 eða í næsta útibúi Íslandsbanka.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 2013
Tónlist
12.15 Hádegistónleikar verða haldnir í
Hafnarfjarðarkirkju. Douglas Brotchie
leikur á bæði orgel kirkjunnar. Boðið
verður upp á kaffisopa eftir tónleikana
og aðgangur er ókeypis.
17.00 Í tilefni af Alþjóðlega djassdegin-
um stendur Íslenska UNESCO-nefndin,
í samstarfi við Tónlistarskóla FÍH, fyrir
viðburði í Hörpu undir yfirskriftinni
Hvað er djass? Einnig verða þennan
dag djasstónleikar á Jómfrúnni, Kexi og
Café Rosenberg. Aðgangur er ókeypis á
alla viðburði.
20.00 Fyrstu tónleikar af fernum þar
sem Karlakórinn Fóstbræður fagnar
vori. Boðið er upp á fjölbreytta söng-
dagskrá. Einsöngvari er Gissur Páll
Gissurarson.
20.30 Hjaltalíndúettinn, Högni Egils-
son og Sigrúður Thorlacius, kemur
fram á tónleikum í Edrúhöllinni, Efsta-
leiti 7 (SÁÁ-húsinu) ásamt tónlistar-
manninum Pétri Ben og hljómsveit.
Aðgangseyrir er kr. 500.
20.30 Kvintett danska Hammond-orgel-
leikarans Kjeld Lauritsen og íslenska
saxófónleikarns Sigurðar Flosasonar
koma fram á jazzkvöldi á KEX. Tón-
leikarnir eru haldnir í tengslum við
Alþjóðlega jazzdaginn 2013 á vegum
UNESCO.
21.00 Hljómsveitin Moses Hightower
leikur á Græna hattinum. Nini Wilson,
betur þekktur sem Árni Vilhjálms úr
FM Belfast, hitar upp.
21.00 Alþjóðlegi djassdagurinn verður
haldinn hátíðlegur á Café Rosenberg
með dagskrá í tilefni dagsins.
21.30 Hr. Halli leikur og syngur á tón-
leikum á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,Frakka-
stíg 8. Á eftir skemmtir DJ. Gunni til
klukkan 03. Aðgangseyrir er 500.kr.
Félagsstarf
20.00 Félagsvist spiluð hjá Félagi eldri
borgara í Reykjavík Stangarhyl 4.
Fyrirlestrar
12.00 Steinunn Guð-
mundardóttir þjóðfræð-
ingur og safnkennari
við Þjóðminja-
safn Íslands
flytur erindi um
Söngvakeppni
evrópskra sjón-
varpsstöðva í
ÞJóðminjasafninu.
Erindið kallar hún
Sameiningartákn
eða sundrungar-
afl? Fyrirlesturinn
er öllum opinn og
ókeypis.
Upplýsingar um
viðburði sendist á
hvar@frettabladid.
is og einnig er
hægt að skrá þá
inni á visir.is.
„Spilaborgin fjallar um það hvað
gerist þegar ungur maður finnur
fulla tösku af peningum, ásamt
dularfullri flösku og illa kveðnu
ljóði,“ segir Ásta Gísladóttir, höf-
undur leikverksins sem Hugleik-
ur er með á fjölunum á Eyjarslóð
9. Aðal persóna verksins er maður
á þrítugsaldri sem býr heima hjá
mömmu sinni. Hann er ekki að
vinna og hún heldur sig við rúmið.
„Þau eru hálfgert í eigin heimi,
eyða öllum dögum saman og hann
býr til spilaborgir í bókstaflegri
merkingu. En einn daginn finnur
hann tösku fulla af peningum og
þá fer í gang atburðarás sem rask-
ar þeirra ró,“ lýsir Ásta. Hún segir
unga konu koma við sögu, tvær
slettirekur úr nágrenninu og ósýni-
legan vin sem sé með puttana í öllu
saman. „Hlutirnir fara ekki eins
og maður ætti kannski helst von
á. Þótt þeir virki einfaldir úr fjar-
lægð þá eru þeir það ekki þegar til
kemur,“ segir hún.
Þetta er fyrsta leikrit Ástu í
fullri lengd en hún skrifaði leik-
ritið Rokk ásamt þremur öðrum
fyrir nokkrum árum. Leikstjórar
eru þeir Sigurður H. Pálsson og
Þorgeir Tryggvason, báðir gamal-
kunnir Hugleiksmenn. Níu leikarar
taka þátt í sýningunni, Ásta segir
þá blöndu nýgræðinga, reynslubolta
og afreksfólks úr öðrum félögum.
Hægt er að bóka miða á vef leik-
félagsins, www.hugleikur.is.
- gun
Þegar peningarnir koma óvænt
Spilaborg er nýjasta leikrit Hugleiks. Það var frumsýtd um liðna helgi og önnur
sýning er í kvöld í húsnæði félagsins að Eyjarslóð 9 í Reykjavík.
HÖFUNDURINN „Verkið gengur út á
það hvernig allt fer úr skorðum þegar
peningar koma óvænt inn í líf fólks,“
segir Ásta. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Save the Children á Íslandi