Fréttablaðið - 30.04.2013, Blaðsíða 38
30. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 26
Við bjóðum
góða þjónustu
Við bjóðum
námsstyrki
www.facebook.com/ Islandsbanki.Namsmenn
cebook.ndu okkur á FaFin
Tveir styrkir til framhaldsskólanáms hvor 100.000 kr.
Fjórir styrkir til háskólanáms (BA/ BS/ B.Ed) hver 300.000 kr.
Fjórir styrkir til framhaldsnáms á háskólastigi hver 500.000 kr.
Árlega veitir Íslandsbanki tíu félögum í Námsvild
námsstyrki. Tekið er á móti umsóknum til 3. maí 2013
Sótt er um á vef Íslandsbanka, www.islandsbanki.is.
Johnny Depp er í viðræðum
um að leika í söngvamyndinni
Into The Woods í leikstjórn
Robs Marshall. Myndin verður
gerð eftir ævintýrasöngleik
þeirra Stephens Sondheim og
James Lapine.
Depp á að leika mann sem
ferðast inn í skóg með eigin-
konu sinni í leit að norninni
sem lagði á þau álög.
Á ferðalaginu hitta þau
ýmsar persónur úr Disney-
ævintýrunum, þar á meðal
Öskubusku, Jóa úr Jóa og
baunagrasinu og Rauðhettu.
Meryl Streep hefur verið
orðuð við hlutverk nornar-
innar.
Johnny Depp í söngvamynd
CLINT EASTWOOD Leikstjórinn og fyrr-
verandi leikarinn ætlar ekki að setjast í
helgan stein. NORDICPHOTOS/GETTY
JOHNNY DEPP Leikarinn er í viðræðum
um að leika í Into The Woods.
Clint Eastwood vill halda áfram að
leikstýra kvikmyndum þangað til
hann verður 105 ára gamall.
Eastwood, sem er 82 ára, hefur ekki
í hyggju að setjast í helgan stein í
náinni framtíð. Helst vill hann halda
áfram að gera kvikmyndir næstu
tuttugu árin.
„Hvaða portúgalski leikstjóri
er 105 ára og enn að gera myndir?
Það hlýtur að vera draumur allra.
Væri það ekki frábært að vera 105
ára og enn að búa til myndir?“ sagði
Eastwood á kvikmyndahátíðinni
Tribeca í New York og átti þar við
Manoel de Oliveira.
Kappinn segist aldrei nota orðið
„action!“ þegar hann byrjar tökur á
atriðum í myndum sínum. „Ég segi
alltaf „af stað þegar þú ert tilbú-
inn“ í staðinn fyrir hið hefðbundna
„action!“. Orðið „action!“ er of nei-
kvætt. Það er eins og flugeldur sem
er sprengdur til að koma öllum af
stað,“ sagði hann.
Eastwood bætti við að leikstjór-
ar væru dálítið eins og þjófar. Þeir
reyndu að herma eftir öðrum varð-
andi tökur á atriðum. „Maður verð-
ur að stela miklu. Maður verður að
hafa glæpsamlegan hugsunarhátt
ef maður ætlar að verða leikstjóri.“
Vill verða 105 ára leikstjóri
Clint Eastwood er ekki á þeim buxunum að hætta að leikstýra á næstunni.
Sóttust eft ir sviðsljósinu
Fjölmargir krakkar lögðu leið sína í Þjóðleikhúsið í gær er það var opnað fyrir skráningar í áheyrnarprufur fyrir leikritið Óvitarnir. Sýningin verður
sett upp í haust en á dögunum var auglýst eft ir krökkum á aldrinum 8-14 til að fara með hlutverk. Gunnar Helgason, leikstjóri sýningarinnar, bjóst
við að um tvö þúsund krakkar myndu skrá sig til leiks enda eft irsóknarvert að leika í þessu klassíska leikriti eft ir Guðrúnu Helgadóttur.
SPENNTIR Hallgrímur Ingi Ólafsson og Hallgrímur Haraldsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FYLLTU ÚT EYÐUBLÖÐ Ágúst Beinteinn Árnason og Svava Þóra
Árnadóttir voru einbeitt að fylla út eyðublöð.
BROSANDI Birta Björnsdóttir, Aldís Óska Davíðsdóttir og Lára Kristín
Jensdóttir.
GLAÐIR Ingibjörg Magnúsdóttir fylgdi þeim Sigurjóni Birni og Rúnari
Torfasyni í skráninguna.
VINIR Arnþór Páll Hafsteinsson og Jóhann Egill
Jóhannsson.
BEÐIÐ Í RÖÐ Fjölmargir spenntir krakkar skráðu sig til leiks í áheyrnarprufur fyrir
Óvitana, en leikritið verður sett upp í Þjóðleikhúsinu í haust.