Fréttablaðið - 30.04.2013, Blaðsíða 43
ÞRIÐJUDAGUR 30. apríl 2013 | SPORT | 31
HANDBOLTI „Ég kem ekkert heim
alveg strax. Krakkarnir þurfa
að klára skólann og svona fyrst.
Ég fer svo að taka kassana fram.
Ég er eðlilega ekkert að vaða í
atvinnutilboðum hérna,“ sagði
handboltaþjálfarinn Óskar Bjarni
Óskarsson léttur og hló við.
Hann var á dögunum rekinn frá
kvennaliði Viborg, sem er stór-
veldi í kvennahandbolta. Óskar
Bjarni samdi við karlalið Viborg
fyrir tímabilið en í desember var
hann beðinn um að taka kvenna-
liðið að sér sem hann og gerði. Það
fékk síðan ekki farsælan endi eins
og áður segir.
„Þetta er búið að vera mikið bíó
en hrikalega lærdómsríkt ár. Það
er ekki hægt að segja annað. Ég
sé ekki eftir neinu samt. Margir
ættingjar höfðu áhyggjur af því
að mikið hefur gengið á. Ég hef
upplifað allt á þessu ári. Var fyrst
með lið þar sem voru engar kröfur
og skipti ekki máli þó svo að við
töpuðum yfir í að stýra liði þar
sem kröfurnar voru gríðarlegar.
Ég er búinn að kynnast karla- og
kvennaboltanum á einu ári,“ sagði
Óskar Bjarni.
Fáránleg tímasetning
Þegar hann tók við kvennalið-
inu sleppti hann ekki hendinni af
karlaliðinu strax og hann viður-
kennir að það hafi verið mistök.
„Ég var áfram með strákana
samviskunnar vegna. Þann tíma
hefði ég getað nýtt til þess að
kynna mér kvennaboltann betur
en ég var alls ekki nógu mikið
inni í honum. Tímasetningin á upp-
sögninni var samt fáránleg og ég
var ekki sáttur við hana.“
Það hefur verið mikil keyrsla
á Óskari. Hann valdi að fara með
landsliðinu á Ólympíuleikana eftir
að hann tók við starfinu í Dan-
mörku. Hann varð því að vinna
hratt er hann kom til Danmerkur
og svo þurfti hann aftur að byrja
upp á nýtt. Hann segist því hafa
fundið fyrir því núna að hann væri
orðinn nokkuð þreyttur.
„Ég tek að sjálfsögðu ábyrgð á
mörgu sem þjálfari en liðið var
ekki nógu gott og í raun fjórða
besta liðið í deildinni. Það kom svo
á daginn að liðið komst ekki í úrslit
þrátt fyrir að þeir sögðu mér upp.“
Framtíðin er óráðin hjá Óskari
og fjölskyldu og hann hefur ekki
verið að leita að nýju starfi.
„Hugurinn leitar heim núna.
Í byrjun langaði mig jafnvel að
halda áfram í Evrópu fyrst ég er
kominn út. Jafnvel prófa Þýska-
land eða eitthvað. Fara í harkið. Ég
er til í að ganga í gegnum svona
en ég veit ekki hvort ég nenni að
láta fjölskylduna gera það. Það
er ansi mikið að vera með fjög-
ur börn og standa í þessu öllu. Ég
nenni ekki að vera í hverju sem
er samt,“ sagði Óskar Bjarni sem
hefur engu að síður líkað vistin vel
í Danmörku og þar hefur fjölskyld-
unni liðið vel.
„Þýskaland hefur oft heillað mig
en ég er ótalandi á þýsku og það
er verra. Ég talaði norsk/dönsku
hérna og það var ekki að hjálpa
mér. Maður þarf að vera sterkur
í tungumálinu. Annað er asnalegt.
Þess vegna leitar hugurinn mest
heim núna.“
Óskar Bjarni segist ekki hafa
heyrt frá neinu liði á Íslandi sem
er í leit að meistaraflokksþjálfara.
„Ég hef fengið símtöl að heim-
an en það tengist aðallega yngri
flokkum. Flestir meistaraflokkar
eru búnir að klára sín mál. Mín
stefna er samt að þjálfa áfram
enda hef ég gaman af því og að
vera rekinn styrkti mig bara.“
henry@frettabladid.is
Hugurinn leitar heim núna
Handboltaþjálfarinn Óskar Bjarni Óskarsson gekk í gegnum mikið síðasta vetur og nú þegar tímabilinu er
að ljúka er hann án vinnu. Hann þjálfaði bæði karla- og kvennalið danska liðsins Viborg og var rekinn frá
kvennaliðinu um daginn. Óskar hefur áhuga á því að vera áfram erlendis en býst við því að koma heim.
Á HEIMLEIÐ Óskar Bjarni býst við því að flytja aftur heim í sumar. Hann er í leit að
nýrri vinnu eftir mikið ævintýri í Danmörku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
7
3
6
KEX klikkar ekki
Pétur Marteins og Gunnar kokkur á KEX taka á móti þúsundum erlendra og innlendra ferðalanga í
hverjum mánuði. Sumir ferðast yfir hálfan hnöttinn og vantar afslappaða gistingu meðan aðrir koma
gangandi í mat, drykk eða á tónleika. Það eru alltaf hundrað hlutir í gangi á KEX og þess vegna þurfa
kerfin að vera traust og örugg.
Fyrirtæki
Með Símavist er fyrirtækið
í sterkara sambandi
FÓTBOLTI Real Madrid þarf að
blása til sóknar þegar liðið tekur
á móti Borussia Dortmund í síð-
ari leik liðanna í undanúrslitum
Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Þjóðverjarnir gulklæddu unnu
4-1 sigur í fyrri leiknum þar sem
Robert Lewandowski skoraði öll
mörkin fjögur.
„Við getum uppfyllt draum fjöl-
margra stuðningsmanna okkar.
Við verðum að halda rétt á spilun-
um,“ segir Jürgen Klopp, þjálfari
Dortmund.
Madrid-liðar þurfa að skora að
lágmarki þrisvar en með Portú-
galann Cristiano Ronaldo innan-
borðs getur allt gerst.
„Það vita allir að Cristiano er
alltaf tilbúinn í slaginn. Sama
hvaða leikur það er. Við þurfum
samt sérstaklega mikið á honum
og mörkunum hans að halda í
þessum leik,“ segir liðsfélagi
hans, Sami Khedira.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan
18.45 og er í beinni útsendingu á
Stöð 2 Sport. - ktd
Þurfa mörk frá
Ronaldo
MARKI FAGNAÐ Ronaldo skoraði
markið í fyrri leiknum sem gæti reynst
gulls í gildi. NORDICPHOTOS/AFP