Fréttablaðið - 08.05.2013, Side 8
8. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
LEIGJENDANÁMSKEIÐ
Neytendasamtökin standa fyrir
námskeiði fyrir leigjendur
Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað leigjendum en einnig þeim sem
leigja út íbúðarhúsnæði. Kynnt verða helstu atriði húsaleigulaga og
nokkur algeng vandamál sem upp geta komið skoðuð sérstaklega:
Hvernig leigusamning er best að gera ?
Hvað eru húsaleigubætur?
Hver á að sjá um viðhald og framkvæmdir?
Hvernig er best að kvarta við leigusala?
Hvernig er hægt að segja leigusamningi upp?
Námskeiðið fer fram 15. maí nk. frá kl. 19.30-21.30 hjá
Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7.
Þátttökugjald er kr. 2.000 -
Nánari upplýsingar og skráning á www.ns.is.
Betl ekki bannað í Noregi
1 NOREGUR „Við getum ekki bannað fátækt og hungur og
við verðum að sætta okkur við
að sjá betlara á götunum.“ Þetta
segir dómsmálaráðherra Noregs,
Grete Faremo, í grein í Dagbladet í
Noregi. Betlarar eiga hins vegar að
gera grein fyrir sér hjá lögreglunni.
Samkvæmt nýrri áætlun stjórn-
valda á að verja tíu milljónum
norskra króna til að reisa snyrti-
aðstöðu fyrir betlara. Auðveldara á
að verða að vísa úr landi borgurum
Evrópusambandsríkja sem framið
hafa afbrot.
Seld mansali til Svíþjóðar
2 SVÍÞJÓÐ Talið er að 166 börn hafi verið seld mansali í Svíþjóð
á árunum 2009 til 2011. Erfitt
þykir þó að segja til með vissu um
fjöldann þar sem mörg barnanna
hverfa áður en mál þeirra koma
til rannsóknar. Yngstu börnin eru
þriggja til fjögurra ára og hafa þau
verið notuð í þjófn aðar leiðöngrum.
Táningsstúlkur hafa verið látnar
stunda vændi.
Þjóðaratkvæði mögulegt
3 DANMÖRK Þjóðaratkvæða-greiðsla verður kannski haldin
í Danmörku vegna þátttöku Dana
í sameiginlegum evrópskum
Einkaleyfadómi. Þetta tilkynnti
Helle Thorning-Schmidt forsætis-
ráðherra í gær. Dómsmálaráðu-
neytið hefur úrskurðað að þátttaka
Dana í slíkum dómstól sé fullveldis-
framsal samkvæmt 20. gr. stjórnar-
skrárinnar. Þjóðaratkvæðagreiðsla
verður haldin verði þátttakan ekki
samþykkt á þingi með ákveðnum
meirihluta á þingi.
SÓMALÍA Sjóránum undan
ströndum Sómalíu hefur fækkað
mikið á síðustu misserum en sjó-
rán á svæðinu voru mikið vanda-
mál á árunum 2008 til 2010. Árin
2009 og 2010 áttu sér stað um
50 sjórán hvort ár en nú er svo
komið að skipi hefur ekki verið
rænt á svæðinu í tólf mánuði.
Samkvæmt skýrslu Samein-
uðu þjóðanna er bætt ástand á
svæðinu einkum rakið til þriggja
þátta: aukinnar gæslu herskipa,
aðgerða keníska hersins gegn
herskáum íslamistum í Sómalíu
og meiri aðgátar skipaeigenda.
Þá hefur árásum á skip á svæð-
inu einnig fækkað, úr ríflega 100
árið 2011 í 24 í fyrra. - mþl
Sjórán við Sómalíu:
Sjóræningjar
stöðvaðir
SJÓRÁN ÁRIÐ 2009 Franska skipinu
Tanit var rænt af sómölskum sjóræn-
ingjum í apríl 2009. NORDICPHOTOS/AFP
DANMÖRK Lögreglan í Hjörring á
Sjálandi fann þrjátíu dauða hunda
í frysti í íbúðarhúsi einu á mánu-
dag. Lögregla kom þangað til að
fjarlægja fjóra hunda sem hús-
ráðandi hélt án leyfis, að því er
segir í dönskum miðlum.
Í frystigeymslunni fundust
25 hvolpar og fimm full vaxnir
hundar. Síðustu ár hafa ná-
grannar margoft kvartað undan
miklum fjölda af hundum, allt
upp í 27 í einu, og var maðurinn
sviptur leyfi til hundahalds í síð-
asta mánuði.
Ekki er enn ljóst hvernig hund-
arnir voru aflífaðir, en rannsókn
stendur yfir. - þj
Sláandi fundur í Hjörring:
Þrjátíu dauðir
hundar í frysti
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður-
nesjum hafði um helgina afskipti
af tæplega fertugri konu sem ók
um án þess að hafa endurnýjað
ökuskírteini sitt. Var þetta í átt-
unda skiptið sem lögregla stöðv-
ar akstur konunnar vegna þessa.
Þá var sautján ára stúlka
stöðvuð þar sem hún ók í
umdæminu. Hún reyndist vera
án ökuréttinda og viðurkenndi
brot sitt. Að auki hafði hún tekið
bílinn ófrjálsri hendi. - kh
Lögreglan stöðvaði konu:
Án ökuréttinda
í áttunda sinn
FÓLK Aðstandendur kaffihússins GÆS biðla til
almennings um að leggja þeim til kaffibolla. Þeir
taka fegins hendi á móti bollum af öllum stærðum
og gerðum frá þeim sem vilja hjálpa til við að koma
kaffihúsinu af stað.
Þessa dagana er unnið hörðum höndum að því að
undirbúa opnun kaffihússins sem verður 1. júní
næstkomandi. Ráðgert er að kaffihúsið verði opið í
sumar og hugsanlega lengur ef vel gengur.
Fimm starfsmenn verða á kaffihúsinu en þeir hafa
þróað hugmyndina og undirbúið stofnun kaffihússins
í námi sínu í Háskólanum. Verkefnið byggir á samn-
ingi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og
á félagslegum skilningi á fötlun. Lögð verður áhersla
á að hæfileikar hvers og eins fái að njóta sín og
manngerðum hindrunum í samfélaginu rutt úr vegi.
Tekið verður á móti kaffibollunum í Ráðhúsi
Reykjavíkur milli klukkan 14 og 16, á uppstign ingar-
dag, fimmtudaginn 9. maí, og eru allir hvattir til að
leggja verkefninu lið. - hó
Undirbúningur opnunar kaf ihússins GÆS í fullum gangi:
Fólk beðið um að leggja til bolla
GÆS Fimmmenningarnir sem standa að kaffihúsinu. Frá
vinstri: Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, Unnur Jónsdóttir, María Þ.
Hreiðarsdóttir, Gísli Björnsson og Lára Steinarsdóttir.
MENNTAMÁL Stundakennarar við
Háskóla Íslands hafa fengið nóg af
langvarandi aðgerðaleysi skólans og
búa sig undir aðgerðir næstu skóla-
önn. Þetta staðfestir Eiríkur Valdi-
marsson, formaður Hagstundar,
hagsmunafélags stundakennara.
„Við erum að hugsa okkar gang og
höfum velt fyrir okkur að gerðum,“
segir Eiríkur og á þá við í formi
vinnustöðvunar eða verkfalls.
„Krafan er einföld en við viljum að
komið sé fram við stundakennara
líkt og aðra kennara Háskólans,“
segir Eiríkur.
Yfir 2.000 stundakennarar starfa
við Háskóla Íslands. Stéttin er hins
vegar ekki fastráðin og nýtur því
ekki almennra réttinda á vinnu-
markaði. Kennararnir hafa engan
veikindarétt og búa við mjög ótraust
vinnuumhverfi, þar sem þeim getur
verið skipt út fyrirvaralaust.
Nemendum
við Háskóla
Íslands hefur
fjölgað talsvert
eftir hrun. Kenn-
urum við stofn-
unina hefur þó
ekki fjölgað í
sama hlutfalli
svo notast er við
þjónustu stunda-
kennara til að
brúa bilið. Stundakennarar sinna
nú um þriðjungi allrar kennslu við
skólann. Þetta segir Eiríkur að sé
ekki lengur viðunandi. „Við höfum
því fengið aukna ábyrgð við kennslu
og ástæða þess er í sjálfu sér ein-
föld, við erum ódýrt vinnuafl en á
sama tíma afar hæft starfsfólk og
oftar en ekki einstakir sérfræðingar
á þeim sviðum sem við kennum á.“
Eiríkur segir engan stuðning að
finna meðal stjórnenda skólans.
Málefni stundakennara hafi verið
borin undir umboðsmann Alþingis
fyrir rúmu ári en þaðan hafi verið
lítið um viðbrögð. Nú segir Eiríkur
að mælirinn sé fullur og þörfin á
aðgerðum aukist dag hvern. Komi
til þess að stundakennarar leggi
niður vinnu sína er ljóst að það gæti
haft djúpstæð áhrif á skólastarfið.
„Hvers kyns aðgerðir sem við
grípum til munu koma til með
að vekja mikla athygli, þar sem
kennsla og yfirferð prófa fjöl-
margra nemenda er í okkar höndum.
Stundakennarar sem eru aðeins á
tímakaupi gætu hæglega hætt að
kenna án nokkurra skuldbindinga.
Sömuleiðis hyggjumst við jafnvel
sleppa því að fara yfir próf, sleppt
því að skila einkunnum. Við munum
mögulega grípa til slíkra aðgerða.“
maria@frettabladid.is
Stundakennarar
íhuga vinnustöðvun
Langvarandi kurr meðal stundakennara við Háskóla Íslands gæti brotist út í verk-
falli á næstu önn ef ekki verður hlustað á kröfur þeirra. Yfir 2.000 stundakennarar
eru við skólann og komi til aðgerða mun það hafa djúpstæð áhrif á skólastarfið.
STUNDAKENN-
ARAR HUGSA
SINN GANG
Yfir tvö þúsund
stundakenn-
arar kenna við
Háskóla Íslands.
EIRÍKUR
VALDIMARSSON
DANMÖRK Tveir baldnir drengir,
sex og sjö ára gamlir, voru s taðnir
að verki í Nykøbing á Falstri
snemma í gærmorgun þar sem
þeir höfðu tekið bifreið traustataki
og ekið nokkurn spöl. Frá þessu
segir í dönskum miðlum.
Drengirnir, sem búa á stofnun,
læddust út um miðja nótt og tóku
með sér lykla að Toyota Aygo. Þeir
höfðu komist um þrjá kílómetra að
heiman þegar veg farandi stöðv-
aði þá.
Piltarnir báru í samtali við lög-
reglu að þeir hefðu fylgt umferðar-
reglum í hvívetna og alltaf stöðvað
á rauðu ljósi. Þeim var ekið heim,
en málið mun víst ekki hafa nein
frekari eftirmæli en gott tiltal. - þj
Ævintýrahugur ungra pilta:
Barnungir bíl-
þjófar gómaðir
HEILSA
Sýking veldur bakverk
Rannsóknir danskra sérfræðinga
sýna að lækna má bakverk fólks í 40
pró sentum tilvika með sýklalyfjameð-
ferð og dragar þar með úr dýrum og
áhættusömum aðgerðum. Niðurstöð-
urnar hafa vakið heimsathygli.
NORÐURLÖND
1
2
3