Fréttablaðið - 08.05.2013, Page 33
KYNNING − AUGLÝSING Stór eldhús8. MAÍ 2013 MIÐVIKUDAGUR 5
Þegar fest eru kaup á atvinnueldhúsi er mikilvægt að velja réttu tólin og tækin. „Gæði og ending tækjanna eru mikil-
væg auk þess sem þau þurfa að henta þeirri
starfsemi sem fram á að fara á viðkomandi
stað. Ekki er gott að keypt séu tæki sem eru
mjög flókin nema þess sé þörf,“ segir Örn Guð-
mundsson, deildarstjóri fyrirtækjasviðs Fas-
tus, en sala á búnaði til atvinnueldhúsa er
stór hluti af starfsemi fyrirtækisins. Örn segir
einnig mikilvægt að kennsla á tækin fylgi í
kjölfar uppsetningar.
Hjá Fastus starfar fjöldi reynslumikilla
starfsmanna með ólíkan bakgrunn sem geta
aðstoðað og leiðbeint viðskiptavinum við val á
tækjum. „Hér starfa meðal annars matreiðslu-
meistarar og tæknimenn við bæði sölustörf og
ráðgjöf sem kemur sér vel fyrir fjölmarga við-
skiptavini okkar. Einnig er hönnun og ráðgjöf
í samstarfi við arkitekta, veitingamenn og aðra
hönnuði stór hluti af starfi sölumanna Fastus.“
Viðskiptavinir Fastus eru mjög fjölbreyttir
og koma úr ólíkum atvinnugreinum, allt frá
skipaútgerðum og þvottahúsum til bakaría
og matvælafyrirtækja. „Skólamötuneyti og
önnur mötu neyti eru einnig fjölmennur og
mikilvægur viðskiptamanna hópur hjá okkur
sem og hótel og önnur starfsemi tengd ferða-
þjónustu,“ upplýsir Örn. „Fastus hefur þó
lengstum sérhæft sig í hótel- og veitingageir-
anum ásamt mötuneytum og atvinnueldhús-
um.“ Meðal þeirra fyrirtækja sem nýtt hafa
sér þjónustu Fastus má nefna Grillmarkað-
inn, Nauthól, Háskólann í Reykjavík, Marina
Hótel, ISS, Krydd og kavíar, Rauðku, ÁTVR,
Arion banka, Baðhúsið Mývatni, Hörpuna og
Ikea. „Ekki má gleyma heilbrigðis geiranum
en stór hluti starfsemi okkar snýst um að
þjóna honum. Þar höfum við á að skipa úrvals
starfsfólki eins og annars staðar en í þeirri
deild starfa meðal annars hjúkrunarfræð-
ingar, líffræð ingur, sjúkraþjálfari, iðjuþjálfi
og fleiri sem sérhæfðir eru á þeim markaði,“
segir Örn.
Fastus býður upp á fjölbreytt úrval gæða-
vara frá leiðandi framleiðendum á sviði eld-
unartækja. Þar má meðal annars nefna eld-
hústæki frá Convo therm, Hounö, Metos, Ilsa,
Wexiödisk, Hobart, Taylor og fleiri aðilum.
„Fastus býður einnig upp á fjölbreytt úrval
af borðbúnaði frá mörgum birgjum. Þar má
nefna fremstan í flokki glasaframleiðandann
Arc International og postulín frá RAK og
Figgjo, sem eru þekkt gæðamerki, auk þess
sem við seljum einnig hnífapör frá ýmsum
gæðaframleiðendum,“ segir Örn og nefnir að
húsögn, innréttingar, þvottavélar og annar
búnaður fyrir þvottahús séu einnig mikil-
vægar söluvörur hjá Fastus. „Eins og sjá má
komum við víða við og bjóðum upp á breitt
vöruúrval fyrir ólíkar gerðir fyrirtækja.“
Að sögn Arnar er viðgerða- og varahluta-
þjónusta Fastus mjög mikilvægur hluti starf-
seminnar. „Það er mjög mikilvægt að fólk geti
treyst slíkri þjónustu. Við erum í samstarfi við
fyrirtækið X-Tækni ehf. sem hefur á að skipa
úrvalsmannskap með áratuga reynslu í þjón-
ustu á þessum markaði. Viðskiptavinir okkar
eru því í góðum höndum þar.“
Allar nánari upplýsingar um vörur og þjón-
ustu Fastus má nálgast á vef fyrirtækisins,
www.fastus.is.
Fastus – gæði
og góð ending
Fastus býður upp á gott úrval af eldunartækjum og borðbúnaði frá
vönduðum framleiðendum. Reynslumiklir starfsmenn Fastus
veita ráðgjöf við val á réttu tækjunum en viðskiptavinir Fastus eru
fjölbreyttir; allt frá hótelum og veitingahúsum til skipaútgerða og
þvottahúsa.
Stílhrein eldhúsinnrétting hjá ÁTVR.
Innrétting frá Fastus í Dimmuborgum. Eldhúsið hjá Hjallastefnunni.
Í eldhúsinu á veitingahúsinu Nauthóli.
Afar falleg innrétting á veitingahúsinu Nauthóli.
Starfsmenn fyrirtækjasviðs Fastus geta veitt góð ráð við val á stóreldhúsi.