Fréttablaðið - 08.05.2013, Síða 33

Fréttablaðið - 08.05.2013, Síða 33
KYNNING − AUGLÝSING Stór eldhús8. MAÍ 2013 MIÐVIKUDAGUR 5 Þegar fest eru kaup á atvinnueldhúsi er mikilvægt að velja réttu tólin og tækin. „Gæði og ending tækjanna eru mikil- væg auk þess sem þau þurfa að henta þeirri starfsemi sem fram á að fara á viðkomandi stað. Ekki er gott að keypt séu tæki sem eru mjög flókin nema þess sé þörf,“ segir Örn Guð- mundsson, deildarstjóri fyrirtækjasviðs Fas- tus, en sala á búnaði til atvinnueldhúsa er stór hluti af starfsemi fyrirtækisins. Örn segir einnig mikilvægt að kennsla á tækin fylgi í kjölfar uppsetningar. Hjá Fastus starfar fjöldi reynslumikilla starfsmanna með ólíkan bakgrunn sem geta aðstoðað og leiðbeint viðskiptavinum við val á tækjum. „Hér starfa meðal annars matreiðslu- meistarar og tæknimenn við bæði sölustörf og ráðgjöf sem kemur sér vel fyrir fjölmarga við- skiptavini okkar. Einnig er hönnun og ráðgjöf í samstarfi við arkitekta, veitingamenn og aðra hönnuði stór hluti af starfi sölumanna Fastus.“ Viðskiptavinir Fastus eru mjög fjölbreyttir og koma úr ólíkum atvinnugreinum, allt frá skipaútgerðum og þvottahúsum til bakaría og matvælafyrirtækja. „Skólamötuneyti og önnur mötu neyti eru einnig fjölmennur og mikilvægur viðskiptamanna hópur hjá okkur sem og hótel og önnur starfsemi tengd ferða- þjónustu,“ upplýsir Örn. „Fastus hefur þó lengstum sérhæft sig í hótel- og veitingageir- anum ásamt mötuneytum og atvinnueldhús- um.“ Meðal þeirra fyrirtækja sem nýtt hafa sér þjónustu Fastus má nefna Grillmarkað- inn, Nauthól, Háskólann í Reykjavík, Marina Hótel, ISS, Krydd og kavíar, Rauðku, ÁTVR, Arion banka, Baðhúsið Mývatni, Hörpuna og Ikea. „Ekki má gleyma heilbrigðis geiranum en stór hluti starfsemi okkar snýst um að þjóna honum. Þar höfum við á að skipa úrvals starfsfólki eins og annars staðar en í þeirri deild starfa meðal annars hjúkrunarfræð- ingar, líffræð ingur, sjúkraþjálfari, iðjuþjálfi og fleiri sem sérhæfðir eru á þeim markaði,“ segir Örn. Fastus býður upp á fjölbreytt úrval gæða- vara frá leiðandi framleiðendum á sviði eld- unartækja. Þar má meðal annars nefna eld- hústæki frá Convo therm, Hounö, Metos, Ilsa, Wexiödisk, Hobart, Taylor og fleiri aðilum. „Fastus býður einnig upp á fjölbreytt úrval af borðbúnaði frá mörgum birgjum. Þar má nefna fremstan í flokki glasaframleiðandann Arc International og postulín frá RAK og Figgjo, sem eru þekkt gæðamerki, auk þess sem við seljum einnig hnífapör frá ýmsum gæðaframleiðendum,“ segir Örn og nefnir að húsögn, innréttingar, þvottavélar og annar búnaður fyrir þvottahús séu einnig mikil- vægar söluvörur hjá Fastus. „Eins og sjá má komum við víða við og bjóðum upp á breitt vöruúrval fyrir ólíkar gerðir fyrirtækja.“ Að sögn Arnar er viðgerða- og varahluta- þjónusta Fastus mjög mikilvægur hluti starf- seminnar. „Það er mjög mikilvægt að fólk geti treyst slíkri þjónustu. Við erum í samstarfi við fyrirtækið X-Tækni ehf. sem hefur á að skipa úrvalsmannskap með áratuga reynslu í þjón- ustu á þessum markaði. Viðskiptavinir okkar eru því í góðum höndum þar.“ Allar nánari upplýsingar um vörur og þjón- ustu Fastus má nálgast á vef fyrirtækisins, www.fastus.is. Fastus – gæði og góð ending Fastus býður upp á gott úrval af eldunartækjum og borðbúnaði frá vönduðum framleiðendum. Reynslumiklir starfsmenn Fastus veita ráðgjöf við val á réttu tækjunum en viðskiptavinir Fastus eru fjölbreyttir; allt frá hótelum og veitingahúsum til skipaútgerða og þvottahúsa. Stílhrein eldhúsinnrétting hjá ÁTVR. Innrétting frá Fastus í Dimmuborgum. Eldhúsið hjá Hjallastefnunni. Í eldhúsinu á veitingahúsinu Nauthóli. Afar falleg innrétting á veitingahúsinu Nauthóli. Starfsmenn fyrirtækjasviðs Fastus geta veitt góð ráð við val á stóreldhúsi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.