Fréttablaðið - 08.05.2013, Qupperneq 44
8. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 32MENNING
Steinunn G. Helgadóttir hafði getið sér
orð sem myndlistarmaður þegar hún
vann Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir rúmum
tveimur árum fyrir ljóð sitt Kaf. Síðar
sama ár kom fyrsta ljóðabók hennar út,
Kafbátakórinn, sem hlaut góðar undir-
tektir. Á dögunum kom út önnur ljóðabók
Steinunnar, Skuldunautar og sem fyrr
gefa Uppheimar út.
Það er meiri tregi yfir ljóðunum í
Skuldunautum en Kafbátakórnum. Tónn-
inn er sleginn strax á kápunni, stílhreinn
texti á dökkgráum myndlausum bak-
grunni. Steinunn segir líka að það hafi
verið erfiðara að yrkja þessa bók en þá
fyrstu.
„Þetta er líka spurning um hvernig
maður er fyrirkallaður og það er meiri
blús yfir þessum ljóðum en þeim í Kaf-
bátakórnum.“
Í ljóðunum er glímt við spurningar um
samband manns og nútíðar, um samband
manns og náttúru, tengsl tíma og rúms,
skáldskapar og tungumáls.
„Mig langaði að fara í ferð í gegn-
um tímann án upphafs og endis,“ segir
Steinunn. „Það er að segja að ég var að
leitast við að ná því fram að í rauninni
byrjar engin saga eða endar á ákveðnum
stað. Þess vegna ákvað ég að hafa ljóðin
án titils, því það hefði einfaldlega verið
of íþyngjandi.“
Efnistökin bera bakgrunni Steinunnar
sem myndlistarmanni vitni enda segist
hún ekki gera upp á milli þessara forma.
„Hvort tveggja er mjög heillandi og oft
finnst mér hreinlega erfitt að aðgreina
þau, til dæmis hef ég notað orð í mynd-
listarverkum.“
Hún yrkir þó meðal annars um muninn
á mynd og orði; í ljóði um myndir sem
deyja hver af annarri en „endurfæðast
sem orð útþynnt í helvetica“.
„Það sem ég á við er að þegar við horf-
um í kringum okkur sjáum við svo margt,
en þegar við reynum að túlka það með
orðum grisjum við megnið af því út. Það
tapast því alltaf eitthvað en á móti kemur
að við einbeitum okkur að einhverjum
ákveðnum atriðum í myndinni, sem gerir
hana nýja og sjálfstæða, unna með öðrum
verkfærum.“ bergsteinn@frettabladid.is
Ferðalag um tímann
án upphafs og endis
Steinunn G. Helgadóttir hefur sent frá sér sína aðra ljóðabók, Skuldunauta.
Steinunn lýsir bókinni sem ferðalagi um tímann og glímu við spurningar um
samband manns og náttúru, tungumáls og skáldskapar.
STEINUNN G. HELGADÓTTIR „[Þ]egar við horfum í kringum okkur sjáum við svo margt, en þegar við reynum að túlka það með
orðum grisjum við megnið af því út.“ FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Frost
við hliðið
sót á ísnum
exi heggur
út dagana
inn í kyrrðina
blaðið er
það mýksta
sem hefur
snert
hann
***
Bak við
bláköflóttu
flónelsskyrtuna
slær hjarta þitt
enn
með átta millimetra
filmunni
á veggnum
heima
BÆKUR ★★ ★★★
Hinir réttlátu
Sólveig Pálsdóttir
JPV
Sólveig Pálsdóttir sendi frá sér
sína fyrstu bók, Leikarann, fyrir
tæpu ári. Þar var á ferð nokkuð
hefðbundinn krimmi sem lofaði
góðu um framtíð höfundarins.
Hinir réttlátu standa ekki alveg
undir þeim væntingum, en jafnan
er haft fyrir satt að önnur bók höf-
unda standi þeirri fyrstu nokkuð
að baki, svo vonandi segir það
ekkert um framhald þessarar
glæpasagnaraðar.
Glæpasagnaröð segi ég, enda er
hér sama lögguteymi að störfum
og í Leikaranum. Áherslan hefur
þó flust aðeins til, Guðgeir, stjórn-
andi teymisins, hefur að mestu
stigið til hliðar við kastljósið og
eftirlátið Særós, samstarfskonu
sinni, aðalhlutverkið í þessari
bók. Andrés er hér í algjöru auka-
hlutverki og sömuleiðis Guðrún
sem er fjarri góðu gamni í barn-
eignar leyfi.
Særós reynist ekki vera eins
áhugaverð persóna og leit út fyrir
í Leikaranum, nánast stöðluð lýs-
ing á barni úr alkóhólískri fjöl-
skyldu sem tekið hefur að sér hlut-
verk hetjunnar og skarar fram
úr í öllu sem hún tekur sér fyrir
hendur. Samskipti hennar við
yngri systur sína, Anitu Rós, sem
fá mikið pláss í sögunni þar sem
Anita tengist grunuðum hópi hval-
friðunarsinna, eru vægast sagt
drepleiðinleg og fyrirsjáanleg.
Öllu verra er þó að glæpamálið
sjálft er óspennandi og illa undir-
byggt, lítill stígandi í framvind-
unni og persónur sem við sögu
koma afar óljósar og illa mótaðar.
Glæpamálin eru reyndar fleira
en eitt því sagan hverfist um tvö
mál; myrtan mann á golfvelli og
mótmælaaðgerðir hvalavina sem
felast í sprengingum og mót-
mælum við veitingahús sem selja
hvalkjöt. Smám saman tengjast
málin tvö þó og grunur lögregl-
unnar beinist að ákveðnum hópi
hvalfriðunarsinna. Lausn málsins
er einnig ansi langsótt og ótrú-
verðug og satt best að segja heldur
sagan lesandanum engan veginn
við efnið, sem er ansi stór ljóður á
ráði spennusögu.
Tískan í spennusagna ritun
ræður hér miklu, þar sem áherslan
hefur smátt og smátt verið að fær-
ast frá glæpunum sjálfum og yfir
á ýmis vandamál rannsóknar-
manna, en engu að síður verður að
undirbyggja ástæður glæpanna á
mun vandaðri hátt en hér er gert
ef glæpasagnaunnendur eiga að
fá hvötum sínum svalað. Sundur-
lausar lýsingar á fólki sem lítið
kemur sögunni við, eins og kaffi-
húsastarfsfólki á Húsavík og ekkju
fórnarlambsins á golf vellinum,
auka enn á samhengis leysið og
þjóna engum tilgangi í framvindu
sögunnar. Betur hefði því blað-
síðuplássi verið varið undir bak-
grunnslýsingar á þeim persónum
sem eru drifkraftar rannsóknar-
innar en um þær fær lesandinn
nánast ekkert að vita fyrr en í síð-
ustu köflunum.
Í heild er sagan ákaflega seig-
fljótandi og óáhugaverð og veldur
miklum vonbrigðum.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Heldur slöpp glæpa-
saga þar sem alltof mikið púður fer
í lýsingar á atriðum sem ekki koma
sögunni við.
Hvalavinir skreppa í golf
ILMUR STE-
FÁNSDÓTTIR
myndlistarmaður og
Davíð Þór Jónsson
tónlistarmaður
komu í gær flygli
fyrir í strætó sem
verður vettvangur
uppákomu þeirra á
Listahátíð í Reykja-
vík. Hún felst í
ökuferð þar sem
Davíð Þór spilar
og Ilmur ekur um
bæinn. „Ég ætla
aðallega að aka
við sjávarsíðuna,“
segir Ilmur, sem
keypti sér strætó
og tók meirapróf
fyrir uppákomuna.
Davíð Þór mun leika
tónlist af ýmsu tagi
en þrennir tónleikar
eru á dagskrá hjá
þeim.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nýtt og spennandi tónlistarævintýri
í bland við þjóðleg rímnadanslög
munu lifna við í höndum Sinfóní-
unnar og Benedikts Erlingssonar
leikara. Myndskreytingum úr ævin-
týrinu verður varpað upp á stórt
tjald meðan á flutningi stendur.
Ævintýrið Veiða vind er komið
út á bók hjá Forlaginu, í íslenskri
þýðingu Þórarins Eldjárns.
Jón Leifs Íslensk rímnadanslög
Kári Bæk Veiða vind
Atli K. Petursen Ólavur riddararós
Bernharður Wilkinson
hljómsveitarstjóri
Benedikt Erlingsson sögumaður
Luttakarar úr Klaksvík
Dansifelagið gestir frá Færeyjum
ÁLFAR OG RIDDARAR
www.sinfonia.is » www.harpa.is » Opið 10-18 virka daga og 12-18 um helgar
Lau. 11. maí » 14:00
Í STRÆTÓ