Fréttablaðið - 08.05.2013, Page 58
8. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 46
FÓTBOLTI Stuðningsmannasveit
Stjörnunnar, Silfurskeiðin, bað í
gær Bjarna Guðjónsson, fyrirliða
KR, afsökunar á hegðun sinni í
hans garð á leik KR og Stjörn-
unnar í Pepsi-deildinni á mánu-
dag.
Silfurskeiðin söng þá níðsöng
um Bjarna í upphafi leiks sem nú
hefur verið beðist afsökunar á.
„Níðsöngvar um nafngreinda
leikmenn andstæðinga eiga ekkert
skylt við þá umgjörð sem á að vera
í kringum íþróttir. Silfurskeiðin
hefur beðið Bjarna Guðjónsson
afsökunar á hegðun sinni. Fyrir
hönd Stjörnunnar tek ég undir þá
afsökunarbeiðni.
Forráðamenn Stjörnunnar
munu í samvinnu við stuðnings-
menn leitast við að gera umgjörð-
ina líflega og skemmtilega og
koma í veg fyrir að svona lagað
endurtaki sig,“ segir meðal annars
í yfirlýsingu Almars Guðmunds-
sonar, formanns knattspyrnu-
deildar Stjörnunnar, sem hann
sendi frá sér í gær.
Þóri Hákonarsyni, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, var ekki
skemmt er Fréttablaðið heyrði í
honum hljóðið í gær.
„Ég hef heyrt af þessu máli og
ég mun kanna hvernig þetta fór
fram. Mér finnst það ekki vera
sæmandi áhorfendum að vera með
slíkan dónaskap ef þetta fór fram
eins og menn segja. Mér finnst
vera farið yfir strikið með svona
orðbragði,“ sagði Þórir í viðtali
áður en Silfurskeiðin gekkst við
því að hafa sungið níðsönginn.
Eftir leik var lítill afsökunar-
tónn í Silfurskeiðinni. Þá skrifaði
hún á Twitter að menn ættu að
komast yfir þetta og að þetta væri
hluti af leiknum. Annað hljóð var
svo komið í strokkinn í gær. - hbg
Báðu Bjarna afsökunar
Silfurskeiðin bað Bjarna afsökunar á níðsöng.
SILFURSKEIÐIN Er lífleg í stúkunni en viðurkennir að hafa farið yfir strikið í söng
sínum um Bjarna Guðjónsson. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Árni verður 19 ára gamall
á morgun en hann stundar nám við
Menntaskólann í Kópavogi samhliða
því að spila fótbolta með Blikum.
Hann er því á fullu í prófum þessa
dagana og ganga þau ágætlega að
hans sögn.
Prófin voru svo sannarlega ekki
að trufla hann í leiknum gegn Þór
þar sem hann lék á als oddi.
„Þetta var frábær byrjun hjá
okkur og mér. Þetta var nákvæm-
lega það sem bæði ég og liðið ætluð-
um okkur,“ segir Árni og bætir við
að frábær spilamennska Blikaliðs-
ins hafi ekki komið honum á óvart.
„Maður tekur út það sem maður
hefur lagt inn og við höfum lagt
mikið inn. Allir þrír framherjarnir
skoruðu og liðið spilaði vel. Þetta gat
því vart verið betra.“
Árni segist ekki geta lofað því að
hann muni skora tvö mörk í hverjum
leik en hann stefnir á að skora tals-
vert fleiri mörk í sumar.
„Ég setti mér það markmið fyrir
mót að skora í það minnsta tíu mörk.
Ef það gengur upp í sumar verð ég
að setjast niður og setja mér ný
markmið. Markmiðið hjá mér fyrir
sumarið var að byrja alla leiki,
vera lykilmaður í liðinu og skora
tíu mörk,“ segir Árni en eftir því er
tekið hvað hann hefur tekið miklum
framförum milli ára.
„Ég tók til í hausnum á sjálfum
mér. Breytti mataræðinu og styrkti
mig. Það er klárlega að hjálpa mér
núna því ég er sterkari og fljótari en
ég var. Það er ekkert mál því þetta
er það skemmtilegasta sem ég geri
Ætla mér að skora tíu mörk
Hinn 18 ára gamli Árni Vilhjálmsson er leikmaður 1. umferðar Pepsi-deildar karla hjá Fréttablaðinu. Þessi
snaggaralegi framherji átti stjörnuleik gegn nýliðum Þórs og skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Hann ætlar
sér stóra hluti í sumar. Stefnan er sett á tíu mörk sem og að vera í lykilhlutverki hjá góðu liði Breiðabliks.
Á FERÐINNI Árni gerði varnarmönnum Þórs lífið afar leitt á Kópavogsvellinum um
síðustu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LIÐ UMFERÐARINNAR
Hannes Þór Halldórsson KR
Eiður Aron Sigurbjörnsson ÍBV
Kristinn Jónsson Breiðablik
Haukur Páll Sigurðsson Valur
Björn Daníel Sverrisson FH
Andri Rafn Yeoman Breiðablik
Víðir Þorvarðarson ÍBV
Elfar Árni Aðalsteinsson Breiðablik
Árni Vilhjálmsson Breiðablik
Atli Viðar Björnsson FH
Í EDRÚHÖLLINNI,
HÚSI SÁÁ
EFSTALEITI 7
Allir velkomnir.
Aðgangur ókeypis!
Á Uppstigningardag fögnum við stofnun Barnahjálpar SÁÁ og bjóðum
öllum börnum og foreldrum á Barnahátíð SÁÁ, klukkan þrjú í Von.
Mikki refur og Lilli klifurmús úr Hálsaskógi mæta og gera allt vitlaust.
Íþróttaálfurinn kemur í heimsókn og Pollapönkararnir spila og sprella.
Risastór hoppukastali verður á staðnum!
FÓTBOLTI Þrjú efstu liðin í árlegri
spá þjálfara, fyrirliða og for-
ráðamanna unnu öll leiki sína í 1.
umferð Pepsi-deildar karla í ár.
FH (spáð 1. sæti) vann Keflavík
2-1, KR (2. sæti) vann Stjörnuna
2-1 og Breiðablik (3. sæti) vann
Þór 4-1. Þetta er í fyrsta sinn
í átta ár þar sem þeim þremur
liðum sem er spáð bestu gengi,
tekst að vinna fyrsta leikinn sinn
í mótinu.
Það hefur ekki gerst síðan
sumarið 2005 þegar FH, KR
og Valur unnu öll leiki sína í 1.
umferðinni. FH varð Íslands-
meistari þetta sumar eins og spáð
var, Valsmenn fóru upp um eitt
sæti og tóku silfrið en KR-ingar
lækkuðu sig um fjögur sæti og
enduðu í sjötta sæti.
Þetta er mikil breyting frá
síðustu sumrum því 2010-2012
tókst aðeins einu liði af topp þrjú
í spánni að vinna sinn leik og það
lið, KR 2011, mætti einmitt öðru
liði af topp þrjú (Breiðablik) í 1.
umferðinni. - óój
Öll þrjú stóðust
pressuna
BYRJAR VEL Í VESTURBÆ KR-ingar
fagna á móti Stjörnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
og ég vil ná árangri. Ég æfi skyn-
samlega og eftir markmiðum í dag.“
Félagarnir ráða hvernig fagnað er
Árni lék ekki bara vel heldur fagn-
aði hann líka skemmtilega, í stíl
við Emile Heskey, fyrrverandi
landsliðsmann Englands, sem varð
frægur fyrir það á sínum tíma.
„Ég er með menn í þessum
málum. Það eru félagar mínir sem
ráða því hvernig ég fagna. Þeir
komu þessa hugmynd og ég hugsaði
bara af hverju ekki þegar ég skoraði.
Þetta var skemmtilegt,“ sagði strák-
urinn og hló dátt en hann á klárlega
eftir að láta mikið að sér kveða á
vellinum í sumar. henry@frettabladid.is