Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 4
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
LÖGREGLUMÁL Tíu ára stúlka úr Vestur bænum
sýndi á þriðjudag einstaka yfirvegun með því
að vísa lögreglu á slóð manns sem neyddi hana
með valdi upp í bíl sinn og hún segir hafa brot-
ið á henni kynferðislega.
„Stúlkan var á heimleið úr skóla á þriðja
tímanum eftir hádegi þegar ókunnugur maður
tók hana með valdi og setti í aftursæti bifreið-
ar sem hann var á. Ekið var með stúlkuna á
afvikinn stað í útjaðri höfuðborgarsvæðisins,
en þar er maðurinn talinn hafa brotið gegn
stúlkunni,“ segir í frétt lögreglunnar í gær.
Eftir að hafa brotið á stúlkunni er maðurinn
sagður hafa ekið með hana aftur í Vesturbæ
Reykjavíkur og hleypt henni þar út en þó
fjarri heimili hennar. „Þaðan gekk hún til síns
heima. Á meðan frelsissviptingin stóð yfir
hafði maðurinn í frammi grófar hótanir við
stúlkuna,“ segir lögreglan.
Þakka stúlkunni handtökuna
Þegar stúlkan náði loks heim til sín og gat
skýrt foreldrum sínum frá því sem hafði
gerst hringdu þeir á lögreglu, sem síðar flutti
telpuna til skoðunar á sjúkrahús.
„Bíllinn fannst nokkru síðar við heimili
mannsins í austurborginni, en maðurinn var
innandyra í húsinu,“ segir lögreglan, sem
handtók manninn og fékk í gær úrskurðaðan í
tveggja vikna gæsluvarðhald.
Lögreglan segir að handtöku mannsins
megi þakka stúlkunni sjálfri, sem þrátt fyrir
hræðilega lífsreynslu hafi gefið greinargóða
lýsingu á manninum, bílnum sem hann var
á og leiðinni sem hann ók. Hann hafi áður
komið við sögu lögreglu, þó ekki vegna mála
af þessum toga.
Þá undirstrikar lögreglan að mál eins og
þessi séu afar fátíð. „Mikilvægt er að foreldr-
ar ræði yfirvegað við börn sín um þessi mál
og kenni þeim hvernig bregðast á við ef þau
lenda í slíkum aðstæðum,“ segir í fréttinni.
gar@frettabladid.is / hanna@frettabladid.is
Braut gegn stúlku sem felldi
hann síðan á bílnúmerinu
Tíu ára stúlku var rænt og misþyrmt kynferðislega af karlmanni í Vesturbænum í fyrradag. Stúlkan tók eftir
bílnúmeri kvalara síns svo hann náðist. Lögregla hvetur fórnarlömb til að muna atriði varðandi ofbeldismenn.
Í VESTURBÆNUM Foreldrar í Vesturbænum eru slegnir vegna ofbeldismannsins sem nam tíu ára stúlku á brott í
bíl og braut gegn henni og hótaði á grófan hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVÍÞJÓÐ Lagt er til í nýju nefndar-
áliti að reglur vegna húsbygginga
í Svíþjóð verði rýmkaðar. Ein-
staklingar geta mögulega stækkað
hús sitt eða sumarbústað um 15
fermetra án þess að fá til þess sér-
stakt byggingarleyfi. Nefndinni
var falið að kanna hvort í núver-
andi reglum væru ónauðsynlegar
hindranir fyrir húsbyggingum.
Ferlið í sambandi við húsbygg-
ingar í Svíþjóð hefur þótt of langt
og menn hafa haft áhyggjur af því
hversu lítið er byggt. - ibs
Nýtt nefndarálit í Svíþjóð:
Rýmri reglur
um byggingar
BANDARÍKIN
Candy Crush vinsælastur
Candy Crush Saga hefur velt Angry
Birds úr sessi sem vinsælasti tölvu-
leikur heims. Visir.is segir frá. Leikurinn
trónir nú á toppi meðal tölvuleikja
á Facebook, iOS og í sölu á Android
Play-búðinni. Um 15 milljónir manna
spila Candy Crush á Facebook á degi
hverjum.
➜ Í kjölfar ábendingar lögreglunnar um að
ræða við börn um hugsanleg viðbrögð við því ef
reynt er að nema þau á brott veltu margir for-
eldrar fyrir sér hver skilaboðin til barnanna ættu
að vera. Þessu svarar lögreglan á Facebook-síðu
sinni. „Eitt af því sem gert hefur verið í fræðslu
til barna um viðbrögð í slíkum tilvikum er að
benda þeim á að taka vel eftir öllu og reyna til
dæmis að muna bílnúmer eða taka eftir öðrum
auðkennum,“ segir lögreglan og bætir við:
„Í raun er engin rétt leið til að bregðast hér
við. Aðalmálið er ef til vill að ræða við börnin
sín um þessi mál á yfirveguðum nótum til að
gera börnin ekki skelkuð. Hvernig það er gert er
væntanlega undir hverju og einu foreldri komið.“
Þeir formenn foreldrafélaga grunnskóla í
Vesturbænum sem rætt var við í gær segja alla
slegna yfir tíðindunum. Þau snerti alla foreldra.
Dalla Jóhannsdóttir, formaður foreldrafélags
Vesturbæjarskóla, bendir á hversu vandmeðfarið
sé að leiða ung börn í sannleika um slíka hluti.
„Auðvitað á að ræða
þetta við börn en þau
geta orðið ofsahrædd
og varla treyst sér til að
ganga eðlilega heldur
hreinlega hlaupa í og úr
skólanum.“ Hún kveður
Vesturbæjarskóla hafa
leitað til lögreglu fyrir
áramót vegna manns sem
sagt var að reynt hefði að
lokka börn í bíl sinn. „Þau
vildu fá einhvern frá lögreglunni til að tala við
krakkana en fengu þær upplýsingar að lögreglan
hefði engan til að ræða slík mál við börn.“
Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðis-
brotadeildar lögreglunnar, segir málið litið mjög
alvarlegum augum. Málið sé í rannsókn og það
eigi eftir að tala við stúlkuna. „Dómari fær beiðni
frá okkur mjög fljótlega um dómsviðtal,“ segir
Björgvin.
Ekki gera börnin skelkuð
DALLA
JÓHANNSDÓTTIR
VIÐ ÞEKKJUM
TILFINNINGUNA
216,4796
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,94 123,52
187,15 188,05
158,29 159,17
21,234 21,358
20,999 21,123
18,42 18,528
1,1966 1,2036
183,27 184,37
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
15.05.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
LEIÐRÉTT
Ofsagt var í frétt Fréttablaðsins á
þriðjudag að fara ætti fram á Land-
spítalanum rannsókn á því hvort „stað-
göngudúkka“ kynni að „auka lífslíkur
og efla þroska fyrirbura“. Leyfi hefur
hins vegar fengist til þess að kanna
hvort dúkkan hafi róandi áhrif á börn.
LÖGREGLUMÁL Ríkissaksókn-
ari hefur ekki tekið ákvörðun
um hvort ákært verður í máli
Barkar Birgissonar og Annþórs
Kristjáns Karlssonar sem grun-
aðir eru um að hafa valdið dauða
fanga á Litla-Hrauni sem lést í
klefa sínum þann 17. maí 2012.
Lögreglan á Selfossi sendi
málið til Ríkissaksóknara þann
18. apríl síðastliðinn eftir eina
umfangsmestu sakamálarann-
sókn síðustu ára. Helgi Magnús
Gunnarsson vararíkissaksókn-
ari segir málið vera í vinnslu hjá
embættinu. - hó
Mál Barkar og Annþórs:
Engin ákvörð-
un um ákæru
Í HÉRAÐSDÓMI Vararíkissaksóknari
segir málið í vinnslu.
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
Strekkingur vestast.
MILT FRAM UNDAN Í dag ríkja norðlægar áttir með úrkomu norðaustanlands en á
morgun snýst vindur í suðlægar áttir. Þá þykknar heldur upp sunnantil og um helgina
lítur út fyrir rigningu sunnan- og vestanlands en bjartara veðri norðanlands.
2°
7
m/s
6°
8
m/s
10°
7
m/s
11°
9
m/s
Á morgun
3-8 m/s en hvessir heldur síðdegis.
Gildistími korta er um hádegi
9°
6°
7°
14°
10°
Alicante
Aþena
Basel
21°
24°
15°
Berlín
Billund
Frankfurt
26°
20°
20°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
19°
18°
18°
Las Palmas
London
Mallorca
22°
15°
18°
New York
Orlando
Ósló
24°
28°
21°
París
San Francisco
Stokkhólmur
17°
17°
14
9°
8
m/s
7°
15
m/s
3°
6
m/s
2°
10
m/s
3°
9
m/s
4°
8
m/s
1°
8
m/s
10°
5°
7°
4°
5°
UMHVERFISMÁL Heilbrigðiseftir-
lit Reykjavíkur telur að skýring-
in á mengun í settjörn í Mjódd
og Kópavogslæk sé fundin og sé
afleiðing af viðhaldsframkvæmd-
um á þaki bílageymslu í Selja-
hverfi. Ummerki eru um að tölu-
vert af óhreinindum hafi farið út
í regnvatnskerfið við þá aðgerð.
Mengunarefnið var blanda af við-
gerðaefni, fíngerðu dufti og vatni.
Heilbrigðiseftirlitið fékk ábend-
ingu frá borgarbúa um að þegar
það rigndi föstudaginn 10. maí
hafi vatn sem skolaðist af planinu
í ofanvatnsniðurföll verið mjólkur-
litað. Vatnið hefur síðan skilað sér
í settjörn sem tekur við ofanvatni
en vegna þess hve auðleyst duftið
er barst mengunin í Kópavogslæk.
Heilbrigðiseftirlitið vill vekja
athygli á að óheimilt er að valda
mengun í ofanvatni. Því þurfa
verktakar og aðrir sem standa í
framkvæmdum utandyra að gæta
varúðar og gera það sem í þeirra
valdi stendur til að valda ekki
mengun í regnvatnslögnum. - shá
Kópavogslækur litaðist af viðgerðaefni frá framkvæmdum í Seljahverfi:
Mengun rakin til bílageymslu
KÓPAVOGSLÆKUR Vatnið var snjóhvítt
í þó nokkuð langan tíma vegna meng-
unar.