Fréttablaðið - 16.05.2013, Qupperneq 12
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
BEIN ÚTSENDING Í DAG, 16. MAÍ, KL. 8.30–10.00
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
7
8
8
5
Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is
facebook.com/VIB.stofan | @vibstofan | www.vib.is
TÆKIFÆRI Á
NORÐURSLÓÐUM
Fylgstu með fundi VÍB þar sem rætt verður um þau tækifæri sem kunna að bíða þjóðanna á
norðurslóðum. Ýmsar breytingar eru að verða og hafa þegar orðið á norðurheimskautssvæðinu
og á fundinum verður ljósi varpað á ný fjárfestingatækifæri sem þær hafa í för með sér og
möguleika Íslendinga á að nýta þau.
» Svend Hardenberg, athafnamaður og sveitarstjóri í Qaasuitsup,
ræðir um fjárfestingatækifæri og heildarfjárfestingarþörf á Grænlandi.
» Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir, fjallar um tækifæri íslenskra
fyrirtækja í tengslum við uppbygginguna á Grænlandi.
» Haukur Óskarsson, framkvæmdastjóri hjá Mannviti,
fjallar um tækifæri Íslands á norðurslóðum.
Fundarstjóri verður Martha Eiríksdóttir.
» Markmið funda VÍB er að stuðla að upplýstri og faglegri umræðu um mikilvæg mál á sviði
eignastýringar, viðskipta og efnahagsmála.
Á www.vib.is má fylgjast með fundinum í beinni útsendingu
eða horfa á upptöku af honum síðar.
EFNAHAGSMÁL Peningastefnunefnd
Seðlabanka Íslands kynnti í gær-
morgun ákvörðun sína um að halda
vöxtum bankans óbreyttum.
„Tónninn í yfirlýsingu peninga-
stefnunefndarinnar er óbreytt-
ur frá síðustu vaxtaákvörðun.
Kemur það nokkuð á óvart þar sem
með hliðsjón af bæði hægari hag-
vexti og bættum verðbólguhorfum
mátti vænta þess að nefndin myndi
nefna möguleikann á lækkun stýri-
vaxta,“ segir í umfjöllun Greining-
ar Íslandsbanka í gær.
Í yfirlýsingu peningastefnu-
nefndarinnar er bent á að í sam-
ræmi við hægari alþjóðlegan hag-
vöxt hafi dregið úr hagvexti hér á
landi og viðskiptakjör rýrnað.
„Horfur eru á að innlendur hag-
vöxtur verði í ár og yfir spátíma-
bilið heldur minni en Seðlabank-
inn spáði í febrúar, en eigi að síður
nálægt meðalhagvexti undanfar-
inna þriggja áratuga.“ Bati á vinnu-
markaði er sagður halda áfram. Þá
hafi verðbólga hjaðnað í takt við
spár bankans, hún mælist nú 3,3%.
„Mælikvarðar á undirliggjandi
verðbólgu og verðbólguvæntingar
eru þó hærri. Eigi að síður er því
spáð að verðbólgumarkmiðið náist
heldur fyrr en áður var gert ráð
fyrir. Vegast þar á minni hagvöxt-
ur og hærra gengi krónunnar ann-
ars vegar og meiri hækkun launa
og minni framleiðnivöxtur hins
vegar,“ segir í yfirlýsingunni. - óká
Í samræmi við hægari alþjóðlegan hagvöxt hefur hér dregið úr hagvexti og viðskiptakjör rýrnað:
Vöxtum Seðlabankans haldið óbreyttum
Samtök atvinnulífsins segja ákvörðun peningastefnunefndar Seðla-
bankans um óbreytta stýrivexti umdeilanlega. Í tilkynningu SA eru rök fyrir
vaxtalækkun sögð vega þyngra en rök fyrir óbreyttum vöxtum um þessar
mundir. „Stærsti vandi íslensks efnahagslífs eru litlar fjárfestingar og þar
af leiðandi slakar hagvaxtarhorfur. Vextir Seðlabankans skipta miklu máli
um það hvort fjárfestingar atvinnulífsins taka við sér eða ekki,“ segir þar.
Umdeilanleg ákvörðun
MENNTUN Jón Gnarr borgarstjóri
og Oddný Sturludóttir, formaður
skóla- og frístundaráðs, afhentu
í byrjun vikunnar hvatningar-
verðlaun fyrir metnaðarfullt
fagstarf í leikskólum, grunn-
skólum, frístundamiðstöðvum og
skólahljómsveitum borgarinnar.
Athöfnin fór fram í Tjarnarsal
Ráðhússins.
Sigrún Björnsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Ráðhússins, segir markmið
hvatningar verðlaunanna að vekja
athygli á því gróskumikla skóla-
og frístunda starfi sem unnið er af
starfsfólki skóla- og frístundasviðs
og hvetja til nýbreytni og þróunar-
starfs. Þrenn verðlaun voru veitt
á hverju fagsviði; til leikskóla,
grunnskóla og frístundastarfs,
auk tveggja samstarfsverkefna
í hverfum sem hlutu sérstaka
viðurkenningu. - ósk
Hvatningarverðlaun til að vekja athygli á gróskumiklu starfi í skólum borgarinnar:
Hvatt til nýbreytni og þróunar í skólastarfi
VERÐLAUNUÐ Fjölmargir fengu hvatningarverðlaun fyrir metnaðarfullt skólastarf þegar þau voru afhent í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur á mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FERÐAÞJÓNUSTA Í dreifibréfi til
fyrirtækja í ferðaþjónustu segist
Vinnueftirlitið að gefnu tilefni
vekja athygli á gildandi vinnu-
tímaákvæðum. Bréfið, sem sent
var fyrr í mánuðinum, fór einnig
til samtaka atvinnurekenda, stétt-
arfélaga og víðar.
Bent er á að ákvæði sem varða
vinnutíma hafi verið fest í lög til
þess að vernda heilsu vinnandi
fólks. „Rannsóknir hafa sýnt að
næturvinna og óreglulegur vinnu-
tími geta haft áhrif á athyglisgáfu
og viðbragðsflýti. Það er því þýð-
ingarmikið að nætur- og vakta-
vinna sé skipulögð á þann hátt að
sem minnst verði dregið úr eðlileg-
um svefni og hvíld starfsmanns,“
segir í bréfinu. - óká
Ónóg hvíld skerðir viðbragð:
Fólk þarf að ná
nægum svefni
FERÐAMENN Á FERÐ Uppgangur
ferðaþjónustu kallar á mikla vinnu í
greininni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BANDARÍKIN
Ekinn niður með bolta
Seattle-búinn Richard Swanson lést
samstundis þegar ekið var á hann á
hraðbraut skammt frá borgarmörkum
Lincoln City í Oregon. Swanson ætlaði
að rekja fótbolta 16.000 kílómetra vega-
lengd frá heimaborg sinni til Brasilíu
þar sem HM í knattspyrnu verður haldin
2014. Með ferð sinni ætlaði hann að
styrkja fátæk börn með boltagjöfum.