Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 22

Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 22
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 22 „Þáttur hjólamenningar í öryggi hjól- andi er vanmetinn. Í þeim löndum þar sem öryggi hjólandi er mest er ekki bara góður aðbúnaður fyrir hjólandi, heldur er þar líka rík hjólamenning,“ segir Árni Davíðsson, formaður Landssamtaka hjól- reiðamanna. Samtökin hafa útbúið leiðbeiningar fyrir umferð hjólandi á stígum og götum. Markmiðið er að auka öryggi hjólandi í umferðinni og draga úr núningi við aðra vegfarendur. Árni segir að umferð hjólandi hafi ríf- lega tvö- til þrefaldast á fáum árum sam- tímis því sem gangandi vegfarendum hafi fjölgað. „Þetta eru jákvæðar fréttir en aukinni umferð hefur fylgt meiri núningur milli þessara vegfarendahópa. Sveitarfélögin og ríkisvaldið þurfa að bregðast við og ráðast í gerð sérstakra stíga og reina fyrir hjólandi til að tryggja þeim greiða og örugga leið. Þar sem umferð réttlætir ekki slíkt er mikilvægt að lagfæra núverandi stíga.“ Hjólamenninguna á Íslandi þarf að bæta, að sögn Árna. „Við sem hjólum ættum að reyna að tileinka okkur góða hjólamenningu. Stilla þarf hraðanum í hóf á stígunum því að þeir eru oftast hannaðir fyrir hæga gangandi umferð með blindhornum og kröppum beygjum.“ Brögð eru að því að hjólreiðamenn noti ekki bjölluna til að láta gangandi vegfar- endur vita að þeir séu á ferð fyrir aftan þá. „Ég hef heyrt þá skýringu að margir séu ragir við að nota bjölluna þar sem þeim finnist þeir vera að hrekja gangandi vegfarendur frá. Þetta er misskilningur. Það er nauðsynlegt að nota bjölluna og það á að gera með góðum fyrir vara eða í 50 m fjarlægð frá gangandi vegfarend- um,“ segir Árni. ibs@frettabladid.is Ekki hika við að nota bjölluna Hjólreiðar hafa tvö- til þrefaldast á fáum árum. Landssamtök hjólreiðamanna hafa gefið út leiðbeiningar fyrir hjólandi vegfarendur. Þáttur hjólamenningar í öryggi hjólandi er vanmetinn, segir formaður samtakanna. Dekkin Hjólið rúllar betur ef réttur loftþrýstingur er í dekkj- unum og það springur síður. Ef dekkið er orðið gamalt og morkið er rétt að skipta um. Bremsurnar Í upphafi hverrar ferðar ætti að taka í brems- urnar. Þegar púðar slitna er gjarnan hert á þeim með því að skrúfa sérstakar stilliskrúfur við bremsuhandföngin þar sem barkinn kemur úr þeim. Ef púðarnir eru orðnir slitnir og/eða mikið misslit í þeim ætti að skipta um þá. Gírarnir Gírar eiga að skipta auðveldlega og greiðlega á milli. Slitin keðja og tannhjól að aftan geta valdið lélegri skiptingu eða að keðjan hrökkvi úr sumum gírum. Þá ættu menn að láta skipta um keðju og tannhjólakrans. Smurning Hjólið endist betur og það verður léttara að hjóla ef það er vel smurt. Gott er að nota létta smurolíu sem fæst í hjólabúðum. Keðjan er það sem smyrja þarf oftast. Þá er gott að smyrja gírskiptana fram og aftur og í bremsurnar. Fleiri upplýsingar er að finna á fjallahjolaklubburinn. is, lhm.is, hjolreidar.is og hjolafaerni.is. Leiðbeiningar Landssamtaka hjólreiðamanna má sjá á lhm.is. ➜ Hafið hjólið í lagi OFT Á HJÓLINU Árni Davíðsson, formaður Landssamtaka hjólreiðamanna, hjólar tvisvar til þrisvar í viku í vinnuna allan ársins hring. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hagkaup verður að greiða 500 þúsund króna stjórnvaldssekt fyrir brot á eldri ákvörðun Neytenda- stofu. Málið snýr að Tax Free- auglýsingum Hagkaups á síðasta ári, en Neytendastofa kvað þá á um að prósentuhlutfall afsláttar- ins yrði að koma fram á þeim. Auglýsingarnar voru meðal annars birtar í gluggum verslunarinnar í Skeifunni og Smáralind og því var Hagkaup sektað. Fyrirtækið kærði ákvörðunina til áfrýjunarnefndar neytenda- mála og taldi Neytendastofu hafa brotið gegn meðalhófsreglu stjórn- sýslulaga og tjáningarfrelsi sínu. Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur þó úrskurðað að brotið hafi verið gegn fyrri ákvörðun og að fjárhæð sektarinnar skuli standa. Þá fellst nefndin ekki á að með ákvörðuninni hafi verið brotið á tjáningarfrelsi Hagkaup. Frá þessu er greint á vef Neytendastofu. Hagkaup sektað og synjað um sýknu SÆTA SEKT Hagkaup hefur verið dæmt til greiðslu 500 þúsund króna vegna auglýsinga sem birtust í gluggum verslunarinnar. Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu með nöfnum sínum og brúðkaupsdegi ísaumuðum. Íslensk kennslubók í matreiðslu fylgir! Gildir um hrærivélar. FOR THE WAY IT´S MADE Nýjar vörur Þau brúðhjón sem koma við í verslun okkar og skrá sig á brúðargjafalista fá nöfnin sín sjáfkrafa skráð í pott. Í lok sumars verða heppin brúðhjón dregin út og hljóta þau að launum nýju KitchenAid matvinnsluvélina, nýju KitchenAid brauðristina, nýja KitchenAid blandarann og nýja KitchenAid töfrasprotann, samtals að verðmæti um 200 þúsund krónur.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.