Fréttablaðið - 16.05.2013, Qupperneq 25
FIMMTUDAGUR 16. maí 2013 | SKOÐUN | 25
Ein mesta meinsemd mennta-
kerfis Íslendinga er hversu
fáir nemendur velja starfs- og
iðnnám. Félög atvinnurekanda
hafa svo oft kallað á umbætur
án þess að því hafi verið svarað
að skömm er að. Ríki og sveitar-
félög hafa ekki margar afsak-
anir fyrir skorti á umbótum því
raunin er að í kreppu sem góð-
æri hefur einmitt verið skorið
við nögl í þeim fögum grunn-
skóla sem kynna iðngreinar
fyrir nemendum. Alltaf virðist
samt hægt að bæta við bóknáms-
fögum.
Í mörg ár hefur atvinnulífið
þurft á að halda miklu fleira
iðn- og starfsmenntuðu fólki
en menntakerfið skilar frá sér.
Samkvæmt nýrri menntakönn-
un Samtaka atvinnulífisins og
aðildarfélaga má áætla að fyrir-
tæki landsins þurfi 4.500-7.000
starfsmenn með iðn- og starfs-
menntun á næstu þremur árum.
Alls hyggjast 46% fyrirtækja
bæta við sig starfsmanni með
iðn- eða starfsmenntun á næstu
tólf mánuðum. Um 1.000-1.500
einstaklingar útskrifast árlega
með sveinspróf og/eða starfs-
menntun. Sá fjöldi sem útskrif-
ast árlega stemmir engan veg-
inn við þann fjölda sem iðn- og
tæknifyrirtæki þarfnast. Í
ofanálag hefur hlutfall þeirra
sem fara í iðn- og starfsnám
lækkað talsvert undanfarin ár.
Á sama tíma hefja mun fleiri
nám við bóknámsbrautir fram-
haldsskóla heldur en ljúka. Með-
alaldur er mun hærri hjá þeim
nemum sem fara í iðn- og starfs-
nám heldur en bóknám sem
bendir til þess að iðn- og starfs-
nám sé ekki fyrsta val nemenda.
Bóknám fyrst?
Vandinn er margþættur en
okkur ber fyrst og fremst að
horfa til þess að rannsóknir hafa
sýnt að viðhorf foreldra og sam-
félagsins er einn mikilvægasti
þátturinn í ákvörðun um náms-
val. Mun meiri líkur eru á því
að nemandi hrekist frá skóla ef
foreldrarnir styðja hann ekki í
námi og námsvali. Við foreldrar
verðum að líta í eigin barm.
Getur verið að viðhorf okkar
foreldra sé að það sé betra að
reyna fyrst við bóknám því það
megi alltaf fara í annað nám að
loknu stúdentsprófi? Viðhorf
foreldra til starfa í iðnaði hefur
bein áhrif á hvaða framtíðarnám
börnin sjá fyrir sér. Foreldrar
þurfa að átta sig á því að það
getur verið dýrkeypt að hlusta
ekki vel á val og óskir unglings-
ins þegar starfs- og námsval er
annars vegar. Það getur kostað
brotthvarf úr námi og neikvæða
reynslu af skólakerfinu.
Margar leiðir
Tengingar á milli bóknáms- og
iðnnámsfaga strax á miðstigi
grunnskóla eru mikilvægar.
Dæmi um þetta væri textíl-
kennari og stærðfræðikennari
sem settust niður og byggju til
verkefni fyrir nemendur sem
krefðist þess að þeir notuðu þær
aðferðir sem unnið væri með á
miðstigi í báðum fögum. Börnin
kynnast á þennan hátt að það er
ekkert annað hvort eða í list- og
verkgreinum. Þekking og kunn-
átta í báðum fögum nýtist þeim
best til þess að skila góðri vinnu.
Náms- og starfsráðgjöf verður
að efla. Ef hún er kynnt til
leiks nægilega snemma, t.d. við
lok miðstigs grunnskóla, með
áhugasviðskönnunum og grein-
ingu á styrkleikum nemenda, er
hægt að kynna þá þegar fyrir
nemendum spennandi leiðir í
náms- og starfsvali. Mikilvægt
er að foreldrar fái líka aðkomu
að þeirri vinnu, bæði til að
heyra um væntingar og styrk-
leika barnsins og til að veita
skólanum stuðning við kynningu
á ólíkum störfum.
Samræmd próf í iðngreinum
Margar hugmyndir eru til um
umbætur og sumar hafa verið
prófaðar. Lítil myndbönd um
störf í ólíkum fyrirtækjum
geta kynnt fjölbreytt störf á
skemmtilegan hátt. Verkfæra-
kistur fyrir iðn- og starfs greinar
á yngstu stigum gætu gert
börnum kleift að kynnast ólík-
um störfum. Samstarf grunn-
skóla og framhaldsskóla um að
sýna nemendum á unglinga-
stigi þær fjölmörgu brautir sem
eru í boði hefur reynst vel hjá
Reykjavíkur borg. Skóla stofur „á
ferð“ fyrir iðngreinar sem erfitt
er að kynna í grunnskólum er
gömul og góð hugmynd sem þarf
að ýta úr vör.
Þrátt fyrir góðan vilja og
fjölmargar hugmyndir er því
miður minna um efndir. Eitt það
mikilvægasta væri að yfirvöld
menntamála viðurkenndu iðn-
nám sem jafn mikilvæga mennt-
un og bóknámsfögin og prófuðu
samræmt í iðnnámi. Það þarf
ekki að vera flókið að hanna
samræmt könnunarpróf í fagi
sem krefst þess af nemendum að
prófstykki sé skilað. Líkur eru á
að samræming á slíku verkefni
á landsvísu krefðist mikillar og
góðrar þekkingar í nær öllum
fögum. Með slíku prófstykki
sæju allir að bóknám og iðnám
eru ekki andstæðir pólar.
Að endingu snýst þetta um
viðhorf. Viðhorf stjórnmála-
manna til að fjármagna fjöl-
breyttari námstækifæri. Viðhorf
foreldra til að sjá þau spennandi,
kröfuhörðu og fjölbreyttu störf
sem finnast í iðnaði. Og viðhorf
kennara til að tengja saman
verkefni með skrúfum, gráðu-
boga, lími og Íslandssögu.
Sá fjöldi sem útskrif-
ast árlega stemmir
engan veginn við þann
fjölda sem iðn- og tækni-
fyrirtæki þarfnast.
Í DAG
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
borgarfulltrúi
Þvingur, lím og stærðfræðijöfnur
Þegar ég hugsa
u m í s l e n s k
stjórnmál verður
mér oft hugsað til
þessa málsháttar.
Nú eru kosning-
ar nýafstaðnar
og tveir flokkar
fengu samtals
meirihluta þing-
manna. Það er
eðlilegt að þess-
ir flokkar hugsi
til samstarfs um
stjórnarmyndun.
En hvað gerist? Formenn þessara
flokka, trúlega í fylgd einhverra
aðstoðarmanna, setjast niður í ein-
hverju sumarhúsi einhvers stað-
ar á landinu og ræða stefnumálin.
Fréttamenn fá af og til einhverjar
ábendingar um hvað sé rætt en allt
virðist þetta á léttu nótunum.
Örlögin ráðin
Mér er spurn: er ekki verið að tala
um framtíð íslensku þjóðarinnar, er
ekki verið að tala um hvernig þjóðin
eigi að forðast gjaldþrot næstu fjög-
ur árin? Hvað vorum við að kjósa?
Kusum við ekki stjórnmálaflokka
eða kusum við bara formennina?
Hafa flokkarnir ekki samninga-
nefndir sem koma að stjórnar-
myndun?
Ég veit ekki betur en samn-
inganefndir atvinnurekenda og
verkalýðs félaga búi til kjara-
samning að loknu verkfalli og að
allir viti hverjir sitji í þessum samn-
inganefndum. Fundir þeirra geta
verið langir og harðir og tekið heilu
næturnar enda er gert ráð fyrir að
farið verði eftir þessum samning-
um. Með stjórnar myndun á Íslandi
virðist þessu allt öðruvísi farið.
Hér setjast ein hverjir höfðingjar
saman á af viknum stað, hvort sem
er úti í Viðey, í Þingvalla bænum eða
í sumar húsi einhvers staðar í vor-
blíðunni og gera samning sem skipt-
ir engu máli því að það ætlar hvort
sem er enginn að fara eftir honum.
Aðalatriðið er að foringjarnir
setji upp sitt fallegasta bros fyrir
myndavélarnar þegar þeir standa
úti á einhverjum tröppum og til-
kynna þjóðinni að örlög hennar séu
nú ráðin næstu fjögur árin. Flokk-
arnir sem að stjórninni eiga að
standa munu svo samþykkja sátt-
málann án þess að segja múkk því
að það er ekki siður á Íslandi að
gagnrýna það sem höfðingjarnir
segja. Hnípin þjóð í vanda mun svo
halda út næstu árin. Í mesta lagi
verður eitthvað bankað á tunnur á
Austurvelli en það er aldrei tekið
mark á slíku enda ekki ástæða til.
Stjórnmálaflokkur er stefna
Alþingi Íslendinga virðist vera
furðulegur vinnustaður. Í einfeldni
minni hélt ég að þar sætu full trúar
fólksins sem væru kosnir til að
fylgja þeirri stefnuskrá sem flokk-
ur þeirra lagði fyrir kjósendur. Ég
sem kjósandi hef engan áhuga á að
kjósa einhverja sérstaka persónu,
það eina sem ég get gert með kross-
inn minn er að setja hann við þá
stefnu sem mér er mest að skapi.
En stjórnmálaflokkur er fyrir mig
ígildi ákveðinnar stefnu. En nú
gerist það að alþingismaður skipt-
ir um flokk á miðju kjörtímabili.
Hver kaus hann til þess? Á hann
ekki frekar að segja af sér ef hann
getur ekki fylgt stefnunni lengur?
Það er kannski ekki furða að marg-
ir Íslendingar treysta ekki Alþingi.
Margt er
skrítið í kýr-
hausnum
STJÓRNMÁL
Reynir
Vilhjálmsson
eðlisfræðingur og
kennari á eft ir-
launum
➜ Hér setjast einhverjir
höfðingjar saman á afvikn-
um stað, hvort sem er úti
í Viðey, í Þingvallabænum
eða í sumarhúsi einhvers
staðar í vorblíðunni og gera
samning sem skiptir engu
máli því að það ætlar hvort
sem er enginn að fara eftir
honum.
opnihaskolinn.is
opnihaskolinn@opnihaskolinn.is
Sími 599 6200
SKAPAÐU ÞÉR
SÉRSTÖÐU
Á VINNUMARKAÐI
Kynningarfundur um lengri námskeið
Opna háskólans í HR á haustönn
föstudaginn 17. maí kl. 9–10.
LENGRI NÁMSKEIÐ
HAUSTIÐ 2013:
Ábyrgð og árangur stjórnarmanna
Markþjálfun
Rekstrar- og fjármálanám
PMD-stjórnendanám
Stjórnun aðfangakeðjunnar NÝTT
Stafræn markaðssetning NÝTT
Verðbréfamiðlun
Verkefnastjórnun
Viðurkenndir bókarar
Þróun viðskiptaferla
Hvar: Opni háskólinn í HR, Menntavegi 1, 2. hæð.
Opið fyrir umsóknir
til 5. júní