Fréttablaðið - 16.05.2013, Síða 28

Fréttablaðið - 16.05.2013, Síða 28
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 28 Á síðustu dögum hafa birst í fjölmiðlum grein- ar frá foreldrum þroska- hamlaðra barna varðandi inntökureglur í Kletta- skóla, fyrrum Öskju- hlíðarskóla. Í þessum greinum hafa ýmsar fullyrðingar verið sett- ar fram. Af því tilefni er rétt að eftir farandi komi fram: Í grein sem Ágúst Kristmann skrifar á visir.is 16. apríl segir Ágúst að samkvæmt lögum sé það réttur fatlaðra barna að ganga í sinn heimaskóla en í tilvikum þroska- skertra barna sé það skylda. Samkvæmt lögum um grunn- skóla er öllum börnum skylt að sækja grunnskóla, fötluðum og ófötluðum. Á heimasíðu skóla- og frístundasviðs (www.skolarog- fristund.is) kemur fram að lög- heimili nemenda ráði því í hvaða hverfis skóla þau eiga námsvist en engu að síður eigi allir for- eldra kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borg- inni. Í sömu grein Ágústs Krist- manns kemur einnig fram að val foreldra um sérskóla hafi verið tekið frá þeim árið 2010. Ekki er alveg ljóst hvað Ágúst á við en væntanlega hefur það með inn- tökureglur Öskjuhlíðarskóla að gera og sameiningu Safamýrar- skóla og Öskjuhlíðarskóla í nýjan sérskóla, Klettaskóla árið 2011. Haldið hefur verið fram að sett- ar hafi verið nýjar inntöku reglur við Öskjuhlíðar skóla árið 2010. Hið rétta er að í stefnu fræðslu- ráðs frá 2002 (www. skolar ogfristund.is) er kveðið á um að Öskju- hlíðar- og Safamýrarskóli verði sameinaðir og að þeir þjóni fjölfötluðum og mikið þroska hömluðum nemendum. Þróunin hafði þá verið um skeið sú að flestir nemendur með væga þroskahömlun, sér- staklega á yngri stigum, voru í almennum grunn- skólum. Nýr sérskóli Sú þróun hélt áfram á komandi árum og setti starfshópur um kennslu þroskahamlaðra nem- enda fram nánari viðmið um nemendahópinn árið 2008 sem fræðslustjóri lagði til grund- vallar í bréfi til skólastjóra í borginni varðandi nánari skil- greiningu innritunarreglna. Sama ár var sveitarfélögum gert að setja reglur um innritun og útskrift nemenda úr sérskólum og sérúrræðum með reglugerð. Í grein Ástu Kristrúnar Ólafs- dóttur á visir.is 18. apríl sl. segir Ásta að Öskjuhlíðarskóli hafi verið lagður niður árið 2008 og síðan þá hafi sá hópur sem átti inni í Öskjuhlíðarskóla verið þvingaður í almenna skóla. Hið rétta er að þegar Öskjuhlíðar- skóli og Safamýrar skóli voru lagðir niður 2011 héldu allir nemendur skólanna áfram námi í nýjum sérskóla, Klettaskóla. Ráðgjafarhlutverk Klettaskóli er grunnskóli og sérskóli fyrir þroskahamlaða nemendur. Hann þjónar öllu landinu, starfar samkvæmt lögum og setur sér reglur um innritun og útskrift nemenda eins og reglugerð um nemendur með sér þarfir kveður á um. Skól- inn hefur auk þess ráðgjafar- hlutverk við almenna grunnskóla um nám og kennslu þroska- hamlaðra nemenda. Við Klettaskóla starfar fag- ráð sem metur umsókn sér- hvers nemanda um skólavist eins og var í Öskjuhlíðarskóla áður. Tillögur fagráðs taka m.a. mið af fötlun nemandans, stöðu hans í námi og hvort aðstæður og möguleikar í skólanum og náms hópnum séu líklegar til að stuðla að fram förum hans í námi, félagslega og í almennum þroska. Í einstaka tilvikum getur mat fagráðs verið að aðstæður sérskólans séu ekki líklegar til að veita viðkomandi nemanda þá námslegu og félagslegu örvun sem hann þarf og meiri mögu- leikar séu til að mæta þeim í öðrum aðstæðum. Hvort sem um er að ræða samþykki eða synjun á umsókn um skólavist eru til- lögur fagráðs ávallt settar fram innan þeirra reglna sem gilda um innritun nemenda og með hagsmuni hans, þroska og náms- legar þarfir að leiðarljósi. Að gefnu tilefni Því hefur verið haldið á lofti á undanförnum árum, undir forystu for- setans, að við yrðum að tryggja matvælaöryggi. Og með hverju? Jú, með því að borga með sauð- fjár- og kúabændum. Takið eftir; ekki kjúk- linga-, svína- eða græn- metisræktendum. Bara með meme og mumu. Munið! Rollubeit stuðl- ar að ofbeit og gróður- og jarðvegseyðingu. Mjólkin virðist viðriðin krabbamein og ofnæmi, svo ekki sé meira sagt. Og hvað kostar þetta þjóðina? Jú, marga milljarða á ári og toll- vernd á innfluttar matvörur. Hvað annað? Jú, styrki alls konar, ár eftir ár. Snjóþyngsli, kal, of þurr sumur, of blaut sumur, ónýtar girðingar, sölutregða á kindakjöti, of hátt áburðarverð og svo framvegis. Munið, ríkið borgar jú í Bjargráðasjóð. Væri nú ekki skynsamlegra að nota þessa peninga í annað, t.d. í landgræðslu, skógrækt og græna geirann? Og væri það ekki líka skynsamlegra að stuðla að auk- inni kjúklinga- og svínakjöts- framleiðslu? Að selja kjötið úr landi er „út úr kú“. Að borga með framleiðslu á kindakjöti, stuðla þar með að ofbeit, gróður og jarðvegseyðingu og flytja það svo síðan úr landi er bara heimska og ekkert annað. Það þarf að fækka kindum svo mikið að nægi bara á innanlands- markað og síðan ætti að velja bestu héruð landsins undir roll- urnar og hafa þær allar í fjár- heldum girðingum, beitarhólf- um. Ef þessi búskapur viðhelst úti um allar jarðir, og ekki í beit- arhólfum, er hætt við að sunnu- dagssteikin týnist á fjöllum. Það sýnir sig að sauðfjárbúskapur er auðsjáanlega mjög óarðbær búgrein og óhagstæður gróðri landsins. Hvers vegna í ósköpun- um eigum við þá að halda áfram að borga með honum? Þar fyrir utan fylgir þessum styrktu búgreinum alveg hroða- leg sjónmengun um allt land, haugar af snjóhvítu, glampandi plasti úti um tún og engi, með- fram þjóðveginum eða upp á bæj- arhólnum. Þarf ekkert leyfi fyrir svona plastbyggingum? Hefur fyrirbærið farið í umhverfis- mat? Ég er reyndar mjög sátt við græna plastið sem þeir eru farnir að nota hér í nærsveitum mínum. Hjá hvíta plastinu vildi ég óska að væru manir í kring með gróðri efst sem neðst. Það væri flott. Stokkum upp í landbúnaðinum! Hið meinta matvælaöryggiMENNTUN Ragnar Þorsteinsson sviðsstjóri skóla- og frístundaráðs LANDBÚNAÐUR Margrét Jónsdóttir eft irlaunaþegi í Norðvesturkjör- dæmi ➜ Við Klettaskóla starfar fagráð sem metur umsókn sérhvers nemanda um skólavist eins og var í Öskjuhlíðarskóla áður. ➜ Það þarf að fækka kindum svo mikið að nægi bara á innan- landsmarkað og síðan ætti að velja bestu héruð landsins undir rollurnar og hafa þær allar í fjárheldum girðingum, beitar- hólfum. GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND Á R N A S Y N IR STINGDU þÉR AF ÖLLU fyrir sundið til mánudags20%
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.