Fréttablaðið - 16.05.2013, Síða 29

Fréttablaðið - 16.05.2013, Síða 29
FIMMTUDAGUR 16. maí 2013 | SKOÐUN | 29 Á tímum óstöðugleika í efnahagsmál- um verða Norðurlandaríkin að fjárfesta til framtíðar. Þetta er skoðun norræna verkalýðssambandsins (NFS). Samstarfs- hefð norrænu ríkjanna er traust og nýtur alþjóðlegrar virðingar, en það dugir ekki til. Norrænar ríkisstjórnir verða að þróa áfram þessa samstarfshefð og auka aðlög- unarhæfni vinnumarkaðarins. Til að styrkja samkeppnishæfni sína þurfa Norð- urlandaríkin að leggja áherslu á sjálfbær- an hagvöxt og fulla atvinnu. Sammælast þarf um framtíðarstefnumótun um inn- viði samfélagsins, vísindi og menntun og okkar miklu náttúruauðlindir. Þessar framtíðarfjárfestingar er brýnt að forsæt- is- og atvinnumálaráðherrar Norðurlanda- ríkjanna ræði þegar þeir hittast á vinnu- markaðsfundi í Stokkhólmi í dag, 16. maí. Lykillinn er aðlögunarhæfni Lykillinn að velgengni Norðurlanda- ríkjanna er aðlögunarhæfni vinnu- markaðarins. Hugmyndafræðin byggir á öflugri verkalýðshreyfingu og víðtækri samvinnu við breytingar sem tryggir að einstaklingurinn verður ekki fórnarlamb þeirra. Skipulagið útheimtir velferðarkerfi sem veitir efnahagslegt öryggi í atvinnu- leysi og stuðning til atvinnuleitar, mann- sæmandi framfærslu, möguleika á að sækja nýja færni til að auðvelda hreyfanleika á vinnumarkaði, bæði milli atvinnurekenda og milli landa. Hér eiga ríkisstjórnir okkar mikið verk óunnið til að auka öryggi og minnka atvinnuleysi, sem hefur reyndar náð sögulegum hæðum á sumum svæðum. Tækifæri gefst á vinnumarkaðs fundinum. Atvinnuleysi ungs fólks er í brennidepli og norræna verkalýðs hreyfingin leggur til ýmsar lausnir til að virkja atvinnulaus ungmenni. Einnig er þörf á sameiginlegum norrænum fjárfestingum til sjálfbærrar framtíðar. Kominn er tími til að taka stefnu- markandi frumkvæði til að auka atvinnu og samkeppnishæfni bæði til skemmri og lengri tíma. Virkt samgöngukerfi er forsenda þróunar á Norðurlöndum. Í öllum norrænu ríkjunum eru innviðir samfélagsins í fjár- svelti. Hér eru miklir möguleikar til sam- vinnu og sameiginlega eiga norrænu ríkis- stjórnirnar að leggja áherslu á að efla lestar samgöngur, sem eru nauðsynlegar vegna sameiginlegs vinnumarkaðar þar sem þær stuðla að aukinni framleiðni og minnka atvinnuleysi á svæðinu auk þess sem þær tryggja umhverfisvæna vöru- flutninga. Samfélagslegur ávinningur af sameigin- legum vinnumarkaði getur fyrst orðið að veruleika þegar innviðir landanna eru nægilega samtvinnaðir. Sjálfbærir inn- viðir munu einnig í sjálfu sér skapa störf þar sem fjármagnskostnaður er lítill og nægt starfsfólk er fyrir hendi. Væntanleg fjárfestingar þörf gæti skapað um 100.000 ný störf á Norðurlöndunum. Til mikils er að vinna. Dýrmætasti auðurinn Vel menntað og hæft starfsfólk er dýrmæt- asti auðurinn og ýtir undir nýsköpun og þróun. Hvert Norðurlandaríkjanna fyrir sig er of smátt til að geta eitt og sér verið í for- ystu menntunar og vísinda, meiri samvinna eykur möguleikana. Ríkisstjórnir landanna eiga að leggja áherslu á: • Sameiginlega norræna áætlun um vísinda samvinnu, sem einfaldar og eykur samstarfsmöguleika milli vísindamanna í fremstu röð. • Aukna möguleika vísindamanna til að sækja um styrki í öllum Norðurlanda- ríkjunum. Til að auka hreyfanleika meðal þeirra ber að skilyrða að styrkirnir séu nýttir í því landi sem þeir eru veittir. • Að auka flæði milli vísindasamfélagsins, atvinnulífsins og hins opinbera. Tryggja að opinberir starfsmenn geti einnig samtvinnað starf á vinnumarkaði og rannsóknar vinnu. Náttúruauðlindir og nýtingu þeirra til framtíðar þarf einnig að ræða. Umhverfis- áhrif í einu landi hafa áhrif um allt svæðið. Aukið eftirlit þarf með námugreftri, tryggja þarf að þungmálmar eitri ekki umhverfið, þ.m.t. ferskvatn og sjó. Draga verður úr köfnunarefnis- og fosfórmengun frá land- búnaði og auka stuðning við vistvænan land- búnað. Umhverfið verður að vera í forgangi. Ekki þarf að óttast að tækni sem dregur úr losun hamli sköpun nýrra starfa, þvert á móti. Vistvænar, hagkvæmar og sjálfbærar fjárfestingar eru framtíðin. Gylfi Arnbjörnsson, ASÍ Erik Jylling, AC Elín Björg Jónsdóttir, BSRB Bente Sorgenfrey, FTF Lizette Risgaard, LO Danmark Gerd Kristiansen, LO Norge Sture Fjäder, AKAVA Anders Folkestad,Unio Lauri Lyly, SAK Jorunn Berland, YS Mikko Mäenpää, STTK Karl-Petter Thorwaldsson, LO Sverige Jess Berthelsen, SIK Grönland Göran Arrius, Saco Eva Nordmark, TCO Lóa Brynjúlfsdóttir, NFS NFS – Norræna verkalýðssambandið er samvinnuvettvangur norrænu verkalýðs- hreyfingarinnar. Í NFS eru sextán heildar- samtök launafólks á Norðurlöndum sem eru fulltrúar nærri 9 milljóna launamanna. www.nfs.net Þessi grein birtist samtímis í dagblöðum á öllum Norðurlöndunum. Sjálfbær umbreyting til aukinna atvinnutækifæra ➜ Ekki þarf að óttast að tækni sem dregur úr losun hamli sköpun nýrra starfa, þvert á móti. utilif. is FRÍTT Í SUND HJÁ ÍTR MEÐ ÖLLUM SUNDFÖTUM MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.