Fréttablaðið - 16.05.2013, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 16. maí 2013 | SKOÐUN | 29
Á tímum óstöðugleika í efnahagsmál-
um verða Norðurlandaríkin að fjárfesta
til framtíðar. Þetta er skoðun norræna
verkalýðssambandsins (NFS). Samstarfs-
hefð norrænu ríkjanna er traust og nýtur
alþjóðlegrar virðingar, en það dugir ekki
til. Norrænar ríkisstjórnir verða að þróa
áfram þessa samstarfshefð og auka aðlög-
unarhæfni vinnumarkaðarins. Til að
styrkja samkeppnishæfni sína þurfa Norð-
urlandaríkin að leggja áherslu á sjálfbær-
an hagvöxt og fulla atvinnu. Sammælast
þarf um framtíðarstefnumótun um inn-
viði samfélagsins, vísindi og menntun
og okkar miklu náttúruauðlindir. Þessar
framtíðarfjárfestingar er brýnt að forsæt-
is- og atvinnumálaráðherrar Norðurlanda-
ríkjanna ræði þegar þeir hittast á vinnu-
markaðsfundi í Stokkhólmi í dag, 16. maí.
Lykillinn er aðlögunarhæfni
Lykillinn að velgengni Norðurlanda-
ríkjanna er aðlögunarhæfni vinnu-
markaðarins. Hugmyndafræðin byggir á
öflugri verkalýðshreyfingu og víðtækri
samvinnu við breytingar sem tryggir að
einstaklingurinn verður ekki fórnarlamb
þeirra. Skipulagið útheimtir velferðarkerfi
sem veitir efnahagslegt öryggi í atvinnu-
leysi og stuðning til atvinnuleitar, mann-
sæmandi framfærslu, möguleika á að sækja
nýja færni til að auðvelda hreyfanleika á
vinnumarkaði, bæði milli atvinnurekenda
og milli landa. Hér eiga ríkisstjórnir okkar
mikið verk óunnið til að auka öryggi og
minnka atvinnuleysi, sem hefur reyndar
náð sögulegum hæðum á sumum svæðum.
Tækifæri gefst á vinnumarkaðs fundinum.
Atvinnuleysi ungs fólks er í brennidepli
og norræna verkalýðs hreyfingin leggur
til ýmsar lausnir til að virkja atvinnulaus
ungmenni. Einnig er þörf á sameiginlegum
norrænum fjárfestingum til sjálfbærrar
framtíðar. Kominn er tími til að taka stefnu-
markandi frumkvæði til að auka atvinnu
og samkeppnishæfni bæði til skemmri og
lengri tíma.
Virkt samgöngukerfi er forsenda
þróunar á Norðurlöndum. Í öllum norrænu
ríkjunum eru innviðir samfélagsins í fjár-
svelti. Hér eru miklir möguleikar til sam-
vinnu og sameiginlega eiga norrænu ríkis-
stjórnirnar að leggja áherslu á að efla
lestar samgöngur, sem eru nauðsynlegar
vegna sameiginlegs vinnumarkaðar þar
sem þær stuðla að aukinni framleiðni og
minnka atvinnuleysi á svæðinu auk þess
sem þær tryggja umhverfisvæna vöru-
flutninga.
Samfélagslegur ávinningur af sameigin-
legum vinnumarkaði getur fyrst orðið að
veruleika þegar innviðir landanna eru
nægilega samtvinnaðir. Sjálfbærir inn-
viðir munu einnig í sjálfu sér skapa störf
þar sem fjármagnskostnaður er lítill og
nægt starfsfólk er fyrir hendi. Væntanleg
fjárfestingar þörf gæti skapað um 100.000
ný störf á Norðurlöndunum. Til mikils er
að vinna.
Dýrmætasti auðurinn
Vel menntað og hæft starfsfólk er dýrmæt-
asti auðurinn og ýtir undir nýsköpun og
þróun. Hvert Norðurlandaríkjanna fyrir sig
er of smátt til að geta eitt og sér verið í for-
ystu menntunar og vísinda, meiri samvinna
eykur möguleikana. Ríkisstjórnir landanna
eiga að leggja áherslu á:
• Sameiginlega norræna áætlun um
vísinda samvinnu, sem einfaldar og eykur
samstarfsmöguleika milli vísindamanna í
fremstu röð.
• Aukna möguleika vísindamanna til að
sækja um styrki í öllum Norðurlanda-
ríkjunum. Til að auka hreyfanleika meðal
þeirra ber að skilyrða að styrkirnir séu
nýttir í því landi sem þeir eru veittir.
• Að auka flæði milli vísindasamfélagsins,
atvinnulífsins og hins opinbera. Tryggja
að opinberir starfsmenn geti einnig
samtvinnað starf á vinnumarkaði og
rannsóknar vinnu.
Náttúruauðlindir og nýtingu þeirra til
framtíðar þarf einnig að ræða. Umhverfis-
áhrif í einu landi hafa áhrif um allt svæðið.
Aukið eftirlit þarf með námugreftri, tryggja
þarf að þungmálmar eitri ekki umhverfið,
þ.m.t. ferskvatn og sjó. Draga verður úr
köfnunarefnis- og fosfórmengun frá land-
búnaði og auka stuðning við vistvænan land-
búnað. Umhverfið verður að vera í forgangi.
Ekki þarf að óttast að tækni sem dregur
úr losun hamli sköpun nýrra starfa, þvert á
móti. Vistvænar, hagkvæmar og sjálfbærar
fjárfestingar eru framtíðin.
Gylfi Arnbjörnsson, ASÍ
Erik Jylling, AC
Elín Björg Jónsdóttir, BSRB
Bente Sorgenfrey, FTF
Lizette Risgaard, LO Danmark
Gerd Kristiansen, LO Norge
Sture Fjäder, AKAVA
Anders Folkestad,Unio
Lauri Lyly, SAK
Jorunn Berland, YS
Mikko Mäenpää, STTK
Karl-Petter Thorwaldsson, LO Sverige
Jess Berthelsen, SIK Grönland
Göran Arrius, Saco
Eva Nordmark, TCO
Lóa Brynjúlfsdóttir, NFS
NFS – Norræna verkalýðssambandið er
samvinnuvettvangur norrænu verkalýðs-
hreyfingarinnar. Í NFS eru sextán heildar-
samtök launafólks á Norðurlöndum sem
eru fulltrúar nærri 9 milljóna launamanna.
www.nfs.net
Þessi grein birtist samtímis í dagblöðum
á öllum Norðurlöndunum.
Sjálfbær umbreyting til aukinna atvinnutækifæra
➜ Ekki þarf að óttast að tækni sem
dregur úr losun hamli sköpun nýrra
starfa, þvert á móti.
utilif. is
FRÍTT Í SUND HJÁ ÍTR MEÐ ÖLLUM SUNDFÖTUM MEÐAN
BIRGÐIR ENDAST