Fréttablaðið - 16.05.2013, Blaðsíða 30
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 30
Allar ákvarðanir eða
ráðstafanir yfirvalda er
varða börn skulu byggð-
ar á því sem er börnum
fyrir bestu (úr 3. grein
Barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna).
Ég á mér draum.
Draum um samfélag
sem býður öllum tæki-
færi til farsældar og
hefur rými fyrir alla.
Þar sem byggt er á
fyrirhyggju við sköpun
raunverulegra úrræða
sem hafa að markmiði
að mæta veikindum og
van líðan. Börnin eru
fjársjóður framtíðar-
innar og ber okkur sem
nú berum ábyrgð á vel-
ferð samfélagsins að
hafa framtíðar sýn og sjá
fyrir okkur hvaða eigin-
leikum við viljum að
þau búi yfir. Það kenn-
um við þeim með okkar
eigin lífs viðhorfum,
samskipta háttum og gild-
um og með því að skapa
samfélag mannrétt-
inda sem grundvallast
á virðingu, hluttekningu og
umhyggju.
Þess konar samfélag leggur
megin áherslu á bæði framúrskar-
andi og öruggt alhliða heilbrigðis-
kerfi sem hefur fagmennsku að
leiðarljósi, og menntakerfi sem
byggir á þeirri meginstefnu að
það sé raunveru lega rými fyrir
alla. Sam félaginu er stjórnað
af hugrökkum og um leið auð-
mjúkum leiðtogum, sem hafa
yfirsýn yfir þarfir samfélags-
þegnanna og búa yfir hæfni til
að forgangsraða þeim. Þeir efla
styrkleika þjónustunnar, sjá fram
á veginn og setja sér raunhæf
markmið í ljósi þarfa þjónustu-
þeganna, kostnaðar og innan fjár-
heimilda.
Eigum langt í land
Það eru því miður mýmörg dæmi
um að við eigum langt í land með
að hafa rými fyrir alla í sam-
félagi okkar. Nægir þar að nefna
úrræðaleysi gagnvart veikindum
barna með geðraskanir, þar sem
skortur á fjármagni og biðlisti
eftir viðeigandi meðferð leiðir
til þess að börnin bíða of oft of
lengi. Það getur haft alvar legar
afleiðingar með tilheyrandi van-
líðan fyrir barnið sjálft, fjöl-
skyldu þess, skólafélaga og aðra
sem að barninu standa.
Fyrstu skrefin í átt að betra
samfélagi felast í að auka þekk-
ingu á aðstæðum og þörfum sam-
félagsþegna, og vilja og löngun til
að bæta hag þeirra. Í nýút kominni
skýrslu UNICEF: Réttindi barna
á Íslandi: ofbeldi og forvarnir, er
sýnt fram á að ofbeldi er helsta
ógnin sem steðjar að íslenskum
börnum. Ofbeldi hefur gríðar-
leg áhrif á líf og velferð barna
og í ljósi þess eru lagðar fram
tillögur að margþættum for-
vörnum í skýrslunni, sem byggja
á því að samfélag okkar líði ekki
ofbeldi. Þó að í þessu sambandi
sem öðru varðandi umönnun
barna gildi að meginábyrgðin
hvílir á herðum foreldra, eru það
skóla- og heilbrigðis kerfið sem
eiga að vera fyrirmynd og leggja
línurnar um hvernig skuli takast
á við ofbeldi gegn börnum, því
það þarf sannar lega heilt þorp til
að ala upp barn.
Til að takast á við aðsteðjandi
vanda barna, hvort sem um er að
ræða ofbeldi eða geð raskanir, er
brýnt að nýta þekkingu og færni
þeirra fagaðila sem nú þegar
starfa að bættum hag barna í
nærumhverfi þeirra og auka sam-
starf milli heilbrigðis- og mennta-
kerfis. Grundvallar atriðið er að
þjónustan byggi á styrkleikum
fjölskyldna, sé veitt af færum
fagaðilum og hafi að markmiði
að stuðla að velferð barna og fjöl-
skyldna þeirra. Mikil vægast er
að viðhorf allra sem að þess-
um málum koma grundvallist á
virðingu og samhygð gagnvart
þjónustu þegunum.
Fjölskylduteymi
Eitt af þeim úrræðum sem eru
þegar til staðar í nær umhverfi
barna er Fjölskylduteymi Heilsu-
gæslunnar í Glæsibæ sem var
sett á laggirnar árið 2008. Í teym-
inu eru fag aðilar frá Barna- og
unglinga geðdeild Land spítalans,
Þjónustu miðstöð Laugardals og
Háa leitis, heimilislæknar, yfir-
hjúkrunarfræðingur og sál-
fræðingur Heilsugæslunnar í
Glæsibæ og skólahjúkrunar-
fræðingar Langholts- og Voga-
skóla. Börnum sem þurfa á þjón-
ustu að halda er vísað á teymið
og þörfum þeirra mætt með
samstarfi allra teymisaðila, sem
hafa þau skýru markmið að búa
börnunum aðstæður sem leiða til
velferðar. Lykillinn að árangri
þjónustunnar felst í viðveru fag-
aðila í nærumhverfi barnanna,
til dæmis að skólahjúkrunar-
fræðingar séu aðgengilegir og til
staðar fyrir börnin í skólanum:
Réttir aðilar, á réttum stað, á
réttum tíma.
Skýrslu UNICEF og sláandi
fréttum af afleiðingum úrræða-
leysis gagnvart börnum með
geðraskanir er ætlað að vekja
almenning til vitundar um hinn
bitra veruleika sem íslensk börn
búa við. Það er samfélagsleg
ábyrgð okkar að bregðast við,
sýna fyrirhyggju og efla þjón-
ustu í nærumhverfi barna og
auka samstarf milli heil brigðis-
og menntakerfis. Til þess þarf
hæft og ástríðufullt starfs-
fólk sem er leitt áfram af hug-
rökkum stjórnendum velferðar-
kerfisins. Stjórnendum sem eru
með vitaðir um ábyrgð sína sem
fyrirmyndir annarra varðandi
lífsviðhorf og samskiptahætti, og
sem byggja ákvarðanir sínar og
forgangs röðun fjármuna á þeirri
framtíðar sýn að á Íslandi njóti öll
börn mannréttinda.
Skólaheilsugæslan: Réttir aðilar á réttum stað
HEILBRIGÐISMÁL
Aðalbjörg
Stefanía
Helgadóttir
skólahjúkrunar-
fræðingur Lang-
holtsskóla
➜ Börnum sem þurfa á
þjónustu að halda er vísað
á teymið og þörfum þeirra
mætt með samstarfi allra
teymisaðila, sem hafa þau
skýru markmið að búa börn-
unum aðstæður sem leiða til
velferðar.
MAÍ
SKOÐU
NARMÁ
N
Er kagginn kominn
með skoðun?
Keyrum örugg inn í vorið og látum skoða
bílinn þar sem reynslan er mest!
- örugg bifreiðaskoðun um allt land
Fax: 570 9002 · Netfang; frumherji@frumherji.is · www.frumherji.is
Það er metnaður okkar hjá
Frumherja að veita góða þjónustu
h t ð kjö á k ðog ags æ r s o unum.
BE
TR
I S
TO
FA
N
LUKKULEIKUR
Komdu með bílinn í skoðun og freistaðu gæfunnar
í Lukkuleik okkar. Eldsneytisvin in ngur að upphæð
kr. 25.000 dreginn ú t í hverri v iku.
32
SKOÐUNAR-
STÖÐVAR UM
LAND ALLT
MARS
APRÍL
MAÍ
MA 3452013