Fréttablaðið - 16.05.2013, Blaðsíða 37
| FÓLK | 3TÍSKA
Valdir eru bestu og verstu búningarnir og tískulöggur hika ekki við að gagnrýna
eða hrósa. Sumir búninganna eru
eftirminnilegri en aðrir og margir
þykja hryllilegir. Oftast leggja
keppendur mikið upp úr því að
vekja athygli á sviði, bæði hvað
varðar klæðnað og sviðsfram-
komu þótt lögin skipti auðvitað
öllu máli.
Það má þó með sanni segja
að keppnin speglar yfirleitt tísku
þess tíma þegar lögin eru flutt.
Þannig má glöggt skoða fatastíl
keppenda fyrr á árum með það
fyrir augum að forvitnast um
tískustíl þess árs sem keppnin
fór fram.
Hér má sjá nokkur dæmi
valin af handahófi frá keppninni
undanfarin ár en það virðist
færast í aukana að kvenkepp-
endur klæði sig á kynþokkafullan
hátt til að vekja athygli. Sumir
eru þó í efnismeiri fötum en aðrir
en Jóhanna Guðrún var einmitt
gagnrýnd fyrir bláa kjólinn sem
hún klæddist. Hann þótti minna á
kjóla sem skrautbrúður klæðast.
FÖTIN SKIPTA MÁLI
Í EUROVISION
GLAMÚR Það eru ekki bara lögin sem vekja athygli í Eurovision-keppninni.
Mikið er rætt og ritað um fatastíl keppenda ár hvert og sitt sýnist hverjum.
Kvenkeppendur virðast mun léttklæddari síðustu ár en tíðkaðist áður fyrr.
YFIRGENGILEGT Jóhanna Guðrún
þótti standa sig afar vel á sviðinu en blái
kjóllinn þótti ekki mjög smart og var hún
gagnrýnd fyrir hann. Kjóllinn þótti vera of
„yfirþyrmandi“. Jóhanna keppti í Moskvu
árið 2009.
SENJÓRÍTUR Þessar fáklæddu spænsku stúlkur kepptu
í Úkraínu í maí árið 2005. Þær þóttu djarflega klæddar og
frekar eins og magadansmeyjar en spænskar senjórítur.
PÚKÓ Flytjendur Póllands í keppninni 2007 í Helsinki í Finn-
landi vöktu athygli fyrir búninga sem þóttu hneykslanlegir.
ÖFGAFULL Svetlana Lobodato keppti í
Eurovision árið 2009 í Moskvu. Hún þótti
í djörfum búningi og kynþokkafull á svið-
inu. Öfgafull sviðsframkoma virðist hafa
vakið nokkra athygli á laginu í Moskvu
sem dugði þó ekki til sigurs.
BABÚSKUR
Rússnesku ömmurnar
þóttu krúttlegar á svið-
inu í sínum hræðilegu
búningum þótt ekki
næðu þær árangri
í keppninni í Bakú í
Aserbaídsjan árið 2012.
TÍSKAN 2013
Vel er fylgst með
fatastíl keppenda
þessa árs en á einni
aðdáendasíðunni
mátti lesa að
keppnin væri óvenju
svört og hvít hvað
fötin varðaði að
þessu sinni.
Save the Children á Íslandi
Eurovisionpartý í Flash
30 % afsláttur
af öllum vörum
Fimm-laugard
Breska húðvörulínan NIP+FAB frá Rodial er
náttúruleg og án allra parabena.
Varan er bæði vönduð og ódýr og hentar öllum
húðgerðum. NIP+FAB hefur algjörlega slegið í
gegn og er sem dæmi notað af mörgum helstu
stjörnum Hollywood um þessar mundir meðal
annars leikkonunum Kristen Stewart, Kelly
Brook, Angeliu Jolie og Charlize Theron.
Náttúrulegar húðvörur án parabena bæði fyrir
andlit og líkama sem gefa frábæran árangur
NIP + FAB KYNNING
16. og 17. maí,
í Lyfju Lágmúla, Laugavegi,
Smáratorgi og Smáralind.
20 %
kynningarafsláttur