Fréttablaðið - 16.05.2013, Síða 40

Fréttablaðið - 16.05.2013, Síða 40
KYNNING − AUGLÝSINGKrakkar FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 20132 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Varðan býður upp á tvær frá-bærar gerðir af barnarúmum frá Mamas & Papas. Annars vegar Pebble-rúm sem er 60x120 sentímetrar og fáanlegt í þremur litum; hvítu, glærlökkuðu og gull- inni eik, og hægt er að kaupa skipti- borð sem passar ofan á rúmið. Hins vegar Hayworth-rúm sem er 70x140 sentímetrar. Þar er sömuleiðis hægt að velja um þrjá liti; hvítt, gullna furu og hnotu. Rúmið fæst eitt og sér eða í pakka með rúmfataskúffu og skiptiborði sem lagt er ofan á rúmið. Þá er hægt að breyta rúminu þegar barnið stækkar en þá eru hliðarnar og neðri hlutarnir af göflunum fjar- lægðir og úr verður barnarúm sem hentar barninu fram á skólaaldur. Regnbogalitir Hókuspókus-stólar Um síðustu jól ákvað Varðan að prófa að bjóða upp á Hókuspókus- stóla þar sem hver flötur hefur sinn lit. Hver stóll hefur því sjö liti. Stól- arnir eru mjög líflegir og skemmti- legir og tilvaldir fyrir þá sem vilja poppa aðeins upp þessa frábæru klassík. Til þess að gera þetta mögu- legt var sjö stólum púslað saman sem gerir það að verkum að ekki er boðið upp á slíka stóla nema það séu að minnsta kosti fjórir ákveðn- ir í að kaupa þá hverju sinni. Fyrsta settið seldist upp og er hægt að skrá sig á lista fyrir næsta sett. Nánari upplýsingar er að finna á Facebook- síðu Vörðunnar (www.facebook. com/vardan.barnavorur). Emmaljunga súkkulaðisætur Mondial Emmaljunga býður upp á vand- aða vagna og kerrur sem byggja á gömlum grunni enda var fyrirtæk- ið stofnað árið 1925. Hvítu Mondial- vagnarnir frá Emmaljunga eru senuþjófar sem henta einstaklega vel þeim sem kjósa dekkri liti. Í ár er hægt að fá Mondial í dökkbrúnu og er hann engu síðri senuþjófur en sá hvíti. Þá eru líka til Edge-vagnar í mjög mörgum fallegum litasam- setningum. Sem dæmi má nefna Black Carbon, sem er svartur með svörtu einlitu mynstri og svört- um endurskinsröndum og gerast vagnar varla meira töff. Varðan er barnavöruverslun sem byggir á þekkingu þriggja k y nslóða sömu f jölsk yldu. Markmið verslunarinnar er að veita góða þjónustu og gæðavör- ur. Í Vörðunni er mikið úrval af f lestu því sem þarf við umönn- un lítilla gullmola. Þó er ekki lögð mikil áhersla á fatnað en engu að síður fást ullarsamfell- ur, leggings, heilgallar, sundgall- ar, kuldagallar og húfur frá Dill- ing, Kivat og Trespass. Sem dæmi um önnur vöru- merki en þau sem hér hefur verið fjallað um má nefna, Chicco, Clippasafe, Dreambaby, Nuby, Lamaze og Weleda. Varðan er til húsa í Bæjarlind 14-16 í Kópavogi. Rúm sem vex með barninu Í barnavöruversluninni Vörðunni má finna barnarúm, barnavagna og barnastóla í úrvali ásamt öðru sem þarf við umönnun barna. Þar fást meðal annars Hayworth-barnarúm, sem vex með barninu, og marglitir Hókuspókus-stólar. Hayworth- rúmið vex með með barninu og getur dugað fram á skóla- aldur. Pebble-rúmin fást í þremur litum. Hayworth-rúmið fæst eitt og sér eða í pakka með rúmfataskúffu og skiptiborði. Nú er hægt að fá Mondial-vagn frá Emmaljunga í dökkbrúnu. Vagninn er alger senuþjófur. Krakkar hafa margir gaman af því að baka og er um að gera að byrja snemma að hvetja þau til dáða í eldhúsinu. Hins vegar er ekki ráðlegt að þau kveiki á ofni eða hellum nema undir eftirliti. Það er því gott að leyfa þeim að spreyta sig á kókoskúlum fyrst um sinn. Reyndar þarf að hita smjörið en fleira þarf ekki að aðstoða þau við. Ekki spillir fyrir að kúlurnar eru sætar og bragðgóðar og flestum krökkum finnst þær algert lostæti. Þeir geta sömu- leiðis leikið sér að því að velta þeim upp úr ólíku skrauti og þannig fengið útrás fyrir sköpunarkraftinn. Einföld uppskrift 1 ½ dl kókosmjöl 3 dl haframjöl 1 tsk. vanillusykur (eða vanilludropar) 1 ½ dl flórsykur 2 msk. kakó 2 msk. kalt vatn (eða kaffi ef mamma og pabbi eiga það til kalt) 100 g smjör Blandið þurrefnunum saman. Hitið smjör (í potti eða örbylgjuofni) og blandið öllu saman ásamt vatni. Látið deigið stífna í ísskáp í 30 mínútur. Mótið kúlur. Hellið kókosmjöli í skál eða poka. Setjið kúlurnar út í og hristið vel þar til þær eru þaktar skrauti. Með sama hætti má skreyta þær með kakódufti, hnetu- kurli eða kökuskrauti. Kúlurnar geymast best í lokuðu íláti í ísskáp. Auðvelt fyrir upprennandi bakara 20% afmælisafsláttur af öllum vörum fram á laugardag. Barnafataverslunin Róló Glæsibæ. Sími 8948060 • www.rolo.is • Facebook Við erum 3 ára Á Vísi er hægt að horfa myndskreyttan upplest úr þessum sígildu ævintýrum. Hlustaðu á Dísu ljósálf og Alfinn álfakóng á Vísi á ur Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna hollenska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.