Fréttablaðið - 16.05.2013, Qupperneq 40
KYNNING − AUGLÝSINGKrakkar FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Varðan býður upp á tvær frá-bærar gerðir af barnarúmum frá Mamas & Papas. Annars
vegar Pebble-rúm sem er 60x120
sentímetrar og fáanlegt í þremur
litum; hvítu, glærlökkuðu og gull-
inni eik, og hægt er að kaupa skipti-
borð sem passar ofan á rúmið. Hins
vegar Hayworth-rúm sem er 70x140
sentímetrar. Þar er sömuleiðis hægt
að velja um þrjá liti; hvítt, gullna
furu og hnotu. Rúmið fæst eitt og sér
eða í pakka með rúmfataskúffu og
skiptiborði sem lagt er ofan á rúmið.
Þá er hægt að breyta rúminu þegar
barnið stækkar en þá eru hliðarnar
og neðri hlutarnir af göflunum fjar-
lægðir og úr verður barnarúm sem
hentar barninu fram á skólaaldur.
Regnbogalitir Hókuspókus-stólar
Um síðustu jól ákvað Varðan að
prófa að bjóða upp á Hókuspókus-
stóla þar sem hver flötur hefur sinn
lit. Hver stóll hefur því sjö liti. Stól-
arnir eru mjög líflegir og skemmti-
legir og tilvaldir fyrir þá sem vilja
poppa aðeins upp þessa frábæru
klassík. Til þess að gera þetta mögu-
legt var sjö stólum púslað saman
sem gerir það að verkum að ekki
er boðið upp á slíka stóla nema það
séu að minnsta kosti fjórir ákveðn-
ir í að kaupa þá hverju sinni. Fyrsta
settið seldist upp og er hægt að skrá
sig á lista fyrir næsta sett. Nánari
upplýsingar er að finna á Facebook-
síðu Vörðunnar (www.facebook.
com/vardan.barnavorur).
Emmaljunga súkkulaðisætur
Mondial
Emmaljunga býður upp á vand-
aða vagna og kerrur sem byggja á
gömlum grunni enda var fyrirtæk-
ið stofnað árið 1925. Hvítu Mondial-
vagnarnir frá Emmaljunga eru
senuþjófar sem henta einstaklega
vel þeim sem kjósa dekkri liti. Í ár
er hægt að fá Mondial í dökkbrúnu
og er hann engu síðri senuþjófur en
sá hvíti. Þá eru líka til Edge-vagnar
í mjög mörgum fallegum litasam-
setningum. Sem dæmi má nefna
Black Carbon, sem er svartur með
svörtu einlitu mynstri og svört-
um endurskinsröndum og gerast
vagnar varla meira töff.
Varðan er barnavöruverslun
sem byggir á þekkingu þriggja
k y nslóða sömu f jölsk yldu.
Markmið verslunarinnar er að
veita góða þjónustu og gæðavör-
ur. Í Vörðunni er mikið úrval af
f lestu því sem þarf við umönn-
un lítilla gullmola. Þó er ekki
lögð mikil áhersla á fatnað en
engu að síður fást ullarsamfell-
ur, leggings, heilgallar, sundgall-
ar, kuldagallar og húfur frá Dill-
ing, Kivat og Trespass.
Sem dæmi um önnur vöru-
merki en þau sem hér hefur verið
fjallað um má nefna, Chicco,
Clippasafe, Dreambaby, Nuby,
Lamaze og Weleda.
Varðan er til húsa í Bæjarlind
14-16 í Kópavogi.
Rúm sem vex með barninu
Í barnavöruversluninni Vörðunni má finna barnarúm, barnavagna og barnastóla í úrvali ásamt öðru sem þarf við umönnun barna.
Þar fást meðal annars Hayworth-barnarúm, sem vex með barninu, og marglitir Hókuspókus-stólar.
Hayworth-
rúmið vex með
með barninu
og getur dugað
fram á skóla-
aldur.
Pebble-rúmin fást í þremur litum.
Hayworth-rúmið fæst eitt og sér eða í pakka með rúmfataskúffu og skiptiborði.
Nú er hægt að
fá Mondial-vagn
frá Emmaljunga
í dökkbrúnu.
Vagninn er alger
senuþjófur.
Krakkar hafa margir gaman af því að
baka og er um að gera að byrja snemma
að hvetja þau til dáða í eldhúsinu. Hins
vegar er ekki ráðlegt að þau kveiki á
ofni eða hellum nema undir eftirliti. Það
er því gott að leyfa þeim að spreyta sig á
kókoskúlum fyrst um sinn. Reyndar þarf að
hita smjörið en fleira þarf ekki að aðstoða
þau við. Ekki spillir fyrir að kúlurnar eru
sætar og bragðgóðar og flestum krökkum
finnst þær algert lostæti. Þeir geta sömu-
leiðis leikið sér að því að velta þeim upp úr
ólíku skrauti og þannig fengið útrás fyrir
sköpunarkraftinn.
Einföld uppskrift
1 ½ dl kókosmjöl
3 dl haframjöl
1 tsk. vanillusykur (eða vanilludropar)
1 ½ dl flórsykur
2 msk. kakó
2 msk. kalt vatn (eða kaffi ef mamma og pabbi
eiga það til kalt)
100 g smjör
Blandið þurrefnunum saman. Hitið smjör (í potti eða
örbylgjuofni) og blandið öllu saman ásamt vatni.
Látið deigið stífna í ísskáp í 30 mínútur. Mótið kúlur.
Hellið kókosmjöli í skál eða poka. Setjið kúlurnar út
í og hristið vel þar til þær eru þaktar skrauti. Með
sama hætti má skreyta þær með kakódufti, hnetu-
kurli eða kökuskrauti.
Kúlurnar geymast best í lokuðu íláti í ísskáp.
Auðvelt fyrir
upprennandi bakara
20% afmælisafsláttur
af öllum vörum fram á
laugardag.
Barnafataverslunin Róló Glæsibæ.
Sími 8948060 • www.rolo.is • Facebook
Við erum 3
ára
Á Vísi er hægt að horfa
myndskreyttan upplest
úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
á
ur
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928
í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað.
Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna hollenska meistarans
G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.