Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 46

Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 46
Eurovision FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 20136 BBQ vængir fyrir 6 1 kg af kjúklingavængjum 1 lítil dós af kóladrykk ½ bolli heit sósa ¼ tsk. svartur pipar, mulinn ¼ tsk. cayenne-pipar 1 msk. sojasósa Blandið heitu sósunni, kóla- drykknum, kryddinu og soja- sósunni saman í stóran pott og bætið kjúklingavængjun- um út í. Hitið grillið í meðal- hita og setjið pottinn öðrum megin á grillið og látið sós- una malla við óbein- an hita. Þegar sósan byrj- ar að malla skal veiða vængina upp úr með töng, skella þeim beint á grillið og elda í 8-10 mínútur. Setjið þá síðan aftur í sósuna og látið malla í smá stund. Skellið þeim þá aftur á grill- ið og endurtakið þetta á á tíu mínútna fresti í allt að klukkutíma þar til sósan verð- ur þykk. www.bbq.about.com Köld gráðostasósa til að dýfa í 1/3 bolli kotasæla ½ tsk. hvítvínsedik 2 msk. mjólk 1 msk. marinn gráðostur 1/8 tsk. hvítur pipar 1 hvítlauksgeiri saxaður Setjið kotasælu, edik, mjólk og helminginn af gráðostinum í matvinnsluvél ásamt piparn- um og hvítlauknum. Blandið á hægum hraða þar til sósan er mjúk. Hellið í skál og bætið restinni af gráðostinum út í og hrærið. Kælið áður en borið er fram. www.telespoon.com Björn og Benny hafa samið þema lag keppninnar, We Write The Story, sem verður notað sem upphafslag hennar þegar þátttökuþjóðirnar keppa til úrslita á laugardagskvöldið kemur. Lagið vinna þeir í samvinnu við sænska plötusnúðinn og upptökustjórann Avicii, sem aðallega annast útsetn- ingu lagsins. Ekki fór á milli mála að stjórn- endur sænska sjónvarpsins SVT voru ákaflega stoltir þegar þeir til- kynntu fyrr á árinu að Björn og Benny hefðu fallist á að semja þema lag keppninnar í ár. Í tilkynn- ingu frá stofnuninni segir að þegar byrjað var að leggja drög að keppn- inni í Malmö hafi það einmitt verið ofarlega á óskalistanum að þess- ir tveir helstu dægurlagahöfundar Svíþjóðar leiddu saman hesta sína á ný og semdu eitthvað bitastætt sem auka mætti gildi keppninnar. Þeim varð að ósk sinni. Waterloo 1974 Björn Ulvaeus og Benny Anderson hafa látið lítið fyrir sér fara á hinu alþjóðlega dægurtónlistarsviði undan farin ár. Þar hefur Avicii, samstarfsmaður þeirra, hins vegar farið mikinn og átt hvern stórsmell- inn á fætur öðrum í samstarfi við þekkta söngvara. Avicii heitir réttu nafni Tim Bergling, 25 ára Svíi sem gerðist snemma plötusnúður og fór að endurhljóðblanda tónlist um 18 ára aldurinn. Það voru sem sagt enn þá fimm- tán ár í að Avicii liti í fyrsta sinn dagsins ljós þegar ABBA sigraði eftir minnilega í Eurovision-keppn- inni 6. apríl 1974, fyrir hartnær fjór- um áratugum. Hljómsveitin þótti koma með ferskan blæ í keppnina, þótt samanburðarfræðingar popp- tónlistarinnar hafi löngu bent á að sigurlagið Waterloo sverji sig ræki- lega í ætt við breska glitrokkið sem var mjög í tísku á fyrri hluta áttunda áratugar síðustu aldar. Waterloo var þó síður en svo fyrstu afskipti liðsfólks ABBA af Eurov ision-keppninni. Benny sendi til dæmis árið 1969 lagið Hej Clown í Melodifestivalen, undan- keppni Eurovision, en hafði ekki er- indi sem erfiði. Tveimur árum síðar sendu þeir Björn og Benny tvö lög í viðbót í undankeppnina og enn eitt árið 1972, en eitthvað voru Svíar seinir að kveikja á hæfileikum þess- ara tilvonandi vonarstjarna sinna á dægur flugusviðinu. Leiðin til heimsfrægðar Árið 1973 var kvartettinn ABBA orðinn til og enn einu sinni skyldi reynt við Eurovision-frægðina. Það var einkum Stikkan Ander- son, umboðsmaður sveitarinnar, sem hafði á því óbilandi trú að leið- in til heimsfrægðar lægi í gegnum sigur í Euro vison-keppninni. Það ár reyndi ABBA fyrir sér með laginu Ring Ring. Enn voru Svíar seinir að kveikja. Lagið náði einungis þriðja sæti í Melodifestivalen og heims- frægðin lét bíða eftir sér. Stikkan hóf þegar eftir með ófar- irnar með Ring Ring að leggja drög að þátttöku ABBA í keppninni næsta ár. Síðla árs 1973 bauð sænska sjón- varpið ABBA síðan að verða fulltrúi Svía í keppninni vorið 1974, ef rétt lag fyndist. Þeir Björn og Benny sömdu nokkur lög og var ákveðið að Waterloo yrði sent í keppnina. Lagið var útsett í svipuðum anda og Ring Ring og nú var ekki að sökum að spyrja: Waterloo sigraði með glæsibrag. Útgáfufyrirtækið var til- búið með samninga við erlend fyrir- tæki þannig að lagið kom út víða um heim og æddi upp vinsældarlista strax um vorið. Ferill ABBA, helstu „útflutningsvöru“ Svía um árabil, og lagahöfundanna Björns og Bennys var tryggður um alla framtíð. Björn og Benny í Eurovision á ný Svíarnir Björn Ulvaeus og Benny Anderson, sem gerðu garðinn frægan með ABBA í eina tíð, ætla að endur nýja kynnin við Eurovision-söngvakeppnina í ár. Á næsta ári eru fjörutíu ár frá því að ABBA-flokkurinn kom, sá og sigraði í Eurovison- söngkeppninni. MYND/GETTY ABBA-flokkurinn náði heimsfrægð eftir sigurinn í Eurovision 6. apríl 1974. Á myndinni eru Agnetha Faltskog og Björn Ulvaeus, Anni-Frid Lyngstad og Benny Andersson. MYND/GETTY Naslað yfir Eyþóri Grillaðir kjúklingavængir eru ljúffengir með kaldri gráðostasósu og tilvalið partísnakk yfir Eurovision. Eins hentar sósan vel með niðurskornu grænmeti, selleríi og gulrótum. www.gengurvel.is Ég er einn þeirra manna sem tóku þátt í að reyna ProStaminus á sínum tíma og sé ekki eftir því. Ég tók 2 töflur á kvöldmatartíma í einn mánuð. Ég fann smátt og smátt að þvagbunan styrktist til muna og salernisferðum á nóttunni fækkaði verulega. ProStaminus virkaði sem sagt vel á mig en samt sem áður ákvað ég að taka ekki meira inn að sinni. Eftir að ég tók mér hlé fór bunan versnandi og næturferðum á salernið fjölgaði aftur með tilheyrandi svefntruflunum og orkuleysi og þá ákvað ég að hefja aftur inntöku á ProStaminus og árangurinn lét ekki á sér standa. Bunan styrktist strax og salernisferðum á nóttunni fækkaði og ég hef lofað sjálfum mér því að halda áfram að taka ProStaminus því líðanin er miklu betri og árangurinn framar vonum. Pétur Maack Pétursson - 69 ára fyrrum sendibílsstjóri og nú parkinssonsjúklingur er spennandi nýjung sem er fyrst og fremst ætluð karlmönnum sem hafa einkenni góðkynja stækkunar á blöðruhálskirtli sem getur valdið vandræðum við þvaglát. P R E N T U N .IS fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaða

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.