Fréttablaðið - 16.05.2013, Qupperneq 48
Eurovision FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 20138
SÖNGVAKEPPNIN Í SAMFÉLAGSMIÐLUM
Aðdáendur Eurovision-keppninnar þurfa ekki lengur að stóla á sjónvarps-
útsendingar og dagblöð til að fylgjast með keppninni og uppáhalds flytjendum
sínum. Nú geta þeir fylgst með keppninni allan sólarhringinn á flestum stærri
samfélagsmiðlum. Opinbera Facebook-síðu keppninnar má finna undir Euro-
visionSongContest þar sem stöðugt er verið að setja inn nýjar fréttir, myndbönd
og ljósmyndir. Twitter-notendur geta kíkt á síður keppninnar Eurovision og
Eurovisionpress til að sjá skemmtileg tíst. Opinber Instagram-síða keppninnar er
undir heitinu Eurovision og þar má finna mikið magn skemmtilegra ljósmynda af
keppendum og úr undankeppnum. Myndavefurinn Pinterest býður einnig upp
á sérstaka síðu fyrir keppnina undir Eurovision 2013. Auk þess halda ýmsir kepp-
endur úti eigin síðum á ýmsum samfélagsmiðlum. Opinberan vef keppninnar
má svo finna á www.eurovision.tv en hann fékk metaðsókn á síðasta ári. Nú er
búið að uppfæra vefinn og gera hann aðgengilegri snjallsímum og spjaldtölvum.
Ríkissjónvarpið heldur einnig úti vefnum www.ruv.is/eurovision.
SANDRA KIM VERÐUR
ALLTAF YNGST
Sandra Kim er enn yngsti
keppandinn sem unnið hefur
Eurovision en hún var 13 ára
þegar hún vann árið 1986. Hún
mun halda þeim titli hér eftir þar
sem árið 1990 voru settar reglur
um aldurstakmark í keppnina,
þátttakendur verða að vera orðnir
16 ára. Reglan var sett eftir að tvö
börn, 11 og 12 ára, tóku þátt í
keppninni árið áður.
Emil Ramsauer er aftur á móti
elsti keppandi í sögu Eurovision
en hann er 95 ára gamall. Hann
leikur á bassa með svissneska
keppnisliðinu í ár. Rússnesku
ömmurnar sem kepptu á síðasta
ári áttu aldursmetið fram að
þessu en sú elsta þeirra var 86
ára.
HIN ÓBORGANLEGA
LYNDA WOODRUFF
Þeir sem fylgjast með skemmti-
atriðum Eurovision-keppninnar
munu ekki komast hjá því að
kynnast afar skemmtilegum
sjónvarpskarakter. Sá heitir Lynda
Woodruff og er leikin af Söruh
Dawn Finer.
Finer er fædd og uppalin í Sví-
þjóð en á enskumælandi foreldra.
Hún er söngkona, lagahöfundur
og leikari.
Persónu Lyndu Woodruff, sem
á að vera bresk og talar með
afar breskum og tilgerðar-
legum hreim, mótaði Finer fyrir
sænska Melodifestivalen árið
2012 en Finer var einmitt kynnir
keppninnar. Lynda kom fyrst
fram í skopatriði á lokakvöldi
keppninnar. Lynda er uppskrúf-
aður og litríkur persónuleiki, kann
lítið fyrir sér og fer ítrekað vitlaust
með staðreyndir.
Hin skondna persóna Lyndu er
nú tengd Eurovision sterkum
böndum, í það minnsta í hugum
Svía. Hún kynnti til að mynda nið-
urstöður sænsku kosninganna í
aðalkeppni Eurovision í fyrra. Hún
var áberandi á Melodifestivalen í
ár og kemur fram í skopatriðum
bæði í kvöld og á laugardaginn.
Sarah Dawn Finer í gervi Lyndu
Woodruff sem skemmtir áhorfendum
Eurovision í ár með skemmtilegum
skopatriðum.
BAYERN VS. DORTMUND
ÚRSLITIN RÁÐAST Í ÞRÍVÍDD Í SMÁRABÍÓI
LAUGARDAGINN 25. MAÍ KL. 18:45
Húsið opnar kl. 16:00 og að sjálfsögðu verður barinn opinn.
Miðaverð 2.500 kr, 3D gleraugu ekki innifalin.
MIDASALAN HEFST
Í DAG KL. 10!
Miðasala fer fram á Miði.is og eMiði.is.