Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 50
KYNNING − AUGLÝSINGKrakkar FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 20134
Rathlaup er hlaupaíþrótt sem gengur út á að nota kort og áttavita til að fara á milli
stöðva sem merktar eru inn á kort.
Málið snýst síðan um að vera sem
fljótastur að fara á milli,“ segir Gísli
Örn Bragason í Rathlaupsfélaginu
Heklu. Félagið mun í sumar bjóða
upp á ókeypis námskeið í rathlaupi
í Öskjuhlíð.
Námskeiðið er ætlað krökkum á
aldrinum 10 til 14 ára. „Við byrjum
á að kenna krökkunum hvernig
maður les af korti og smáþyngjum
síðan verkefnin,“ upplýsir Gísli en
fyrir utan að skemmta sér í skóg-
inum í Öskjuhlíð læra krakkar að
ferðast öruggir og bjarga sér úti í
náttúrunni.
Rathlaup á sér ekki langa sögu
á Íslandi en það er upprunnið í
Skandinavíu. „Þar kallast íþrótt-
in orientering og er afar vinsæl,
sérstaklega í Noregi og Svíþjóð,“
segir Gísli og bætir við að keppt sé
í íþróttinni og meðal annars hald-
in heimsmeistaramót.
Rathlaupsfélagið Hekla kynnti
Íslendingum sportið árið 2010.
„Við höfum verið að byggja upp fé-
lagið síðan. Höfum byggt upp kort
og þekkingu en ætlum nú að auka
starfið og fjölga iðkendum,“ segir
Gísli en einn liður í því er að kynna
sportið fyrir ungu fólki með fyrr-
greindum námskeiðum.
Í boði verða þrjú námskeið. Þau
standa yfir í fjóra daga í tvo tíma
hvern dag, frá klukkan 16.30 til
18.30. Námskeiðið er ókeypis en
nauðsynlegt er að skrá sig því 16
til 20 krakkar komast á hvert nám-
skeið.
Nánari upplýsingar og skrán-
ingar eru á www.rathlaup.is.
Einnig er hægt að skrá sig gegnum
netfangið gbragason@gmail.com.
Frítt námskeið
í rathlaupi
Rathlaupsfélagið Hekla heldur rathlaupsnámskeið
fyrir krakka í Öskjuhlíð í sumar. Rathlaup er nýleg
íþrótt á Íslandi en hefur lengi verið stunduð í
Skandinavíu.
Rathlaup er íþrótt.
Í rathlaupi fá iðkendur kort sem á eru merktir nokkrir staðir. Þegar komið er á vissan stað
er klippt í kortið með sérstakri klemmu til að staðfesta að sá staður sé búinn.
Krakkarnir munu læra að rata um skóginn í Öskjuhlíð með korti og áttavita.
Sumarið í Kaldárseli verður ævintýri. Við ætlum að sprey ta ok kur á stult-
um, hjóla á einhjólum og gera
hressandi æfingar á fjölbreytt-
um sirkus leiktækjum,“ upplýsir
Hreiðar Stefánsson, formaður
stjórnar sumarbúða hjá KFUM
og KFUK í Kaldárseli.
Að venju bjóðast vönduð og
skemmtileg námskeið og sumar-
búðir á vegum KFUM og KFUK
í sumar. Hæst ber nýtt sirkus-
leikjanámskeið sem unnið er í
samvinnu við Cirkus Flik-Flak,
stærsta barnasirkus Norður-
landa.
„Si rk usná mskeiði n verða
haldin í Kaldárseli þar sem for-
ingjar okkar njóta leiðsagn-
ar þjálfara Cirkus Flik-Flak frá
Óðins véum,“ útskýrir Hreiðar
sem árið 1979 kynntist Tommy
Harding, stofnanda Cirkus Flik-
Flak.
„Þá vorum við Tommy á nor-
rænu KFUM-móti í Noregi þar
sem mikill vinskapur myndað-
ist á milli danskra og íslenskra
ungleiðtoga. Síðar, þegar Tommy
stofnaði sirkusinn, óskaði hann
eftir aðstoð við undirbúning að
heimsókn til Íslands og hefur
hópurinn tvisvar áður komið til
landsins, árin 2003 og 2007.“
Í þriðju heimsókn Cirkus Flik-
Flak til Íslands í sumar mun
sirkusinn sýna listir sínar víða
um land, meðal annars á Húsa-
vík, Akureyri, Sauðárkróki, Snæ-
fellsbæ, Mosfellsbæ og Reykjavík.
„Í Kaldárseli gefst okkur tæki-
færi til að læra sirkusfræðin af
reyndum þjálfurum og í fram-
haldi verða haldin sérstök sirkus-
námskeið með leikjaformi í sum-
arbúðunum í Kaldárseli,“ upp-
lýsir Hreiðar um námskeiðin sem
haldin verða í júlí til viðbótar við
hefðbundna sumarbúðadagskrá.
„Á námskeiðunum leggjum
við áherslu á vináttu, kærleika
og virðingu barnanna fyrir hvert
öðru. Dagskráin er fjölbreytt;
leikir, útivist, stuttar ferðir um
nágrennið og fræðsla um lífið og
tilveruna út frá kristilegu sjónar-
miði. Sérstök áhersla verður á
leiki og æfingar í sirkusleiktækj-
um, eins og einhjólum, stultum,
jafnvægisleiktækjum, trúðagríni
og öðrum sirkustengdum leikj-
um,“ segir Hreiðar.
Rúta fyrir námskeiðin legg-
ur upp frá Lækjarskóla í Hafnar-
firði k lukkan 8 en foreldrar
sækja börnin daglega í Kaldár-
sel klukkan 17.
„Í lok námskeiðs höldum við
sirkussýningu þar sem börn-
in sýna fjölskyldum sínum hvað
þau hafa lært,“ segir Hreiðar.
Sirkus-leikjanámskeið fyrir
sex til níu ára börn hefst 8. júlí og
fyrir níu til tólf ára þann 19. júlí.
Skráning í sumarbúðir og
námskeið KFUM og KFUK fer
fram á www.kfum.is eða í síma
588 8899.
Nánar á www.kfum.is
Sirkus í Kaldárseli
Spennandi sirkus-leikjanámskeið í samvinnu við Cirkus Flik-Flak, stærsta
barnasirkus Norðurlanda, verða í sumarbúðum KFUM og KFUK í sumar.
Það verður ósvikið fjör og gaman á sirkus-leikjanámskeiðum KFUK og KFUM í Kaldárseli
í sumar.
Kostir Donna-frjósemisprófsins
■ Án aukaverkana
■ Hefur ekki áhrif á kynlíf
■ Þarf ekki að nota flóknar líkamshita-
töflur
■ Auðvelt og snyrtilegt í notkun
■ Er fyrirferðarlítið og hægt að nota
hvar sem er og hvenær sem er
■ Eykur öryggi við að ákvarða frjósam-
asta tíma konunnar og eykur líkur á
þungun
■ Einfalt, hraðvirkt og ódýrt
■ Gefur möguleikann á að fylgjast með
hormónamagninu daglega (estró-
genmagni) og hvort egglos á sér stað
eða ekki
Donna-frjósemisprófið er auðvelt í
notkun og hægt að nota hvar og hvenær
sem er. Fæst eingöngu í apótekum.
Nánari upplýsingar á www.icecare.is
icecare@icecare.is
Handhæg smásjá til að
kanna egglos og frjósemi
út frá munnvatni