Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 58

Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 58
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38 Veruleikinn getur tekið á sig ýmsar myndir og ég lít á þetta sem hreint og beint raunsæi. Þetta gengur ekki út á einhverjar brellur; baráttan í bókinni er raunveruleg en ekki af öðrum heimi. ÚR BRÚNNI Jón Atli vinnur með framleiðundum þáttanna vinsælu. ➜ Spurður út í myndina sem hann er að vinna með fram- leiðendum dansk-sænsku spennuþáttanna Brúin, sem voru sýndir hér á landi í fyrra við miklar vinsældir, verst Jón Atli frekari frétta. „Þetta er enn á því stigi að það er best að segja sem minnst í bili.“ Börnin í Dimmuvík segir frá aldr-aðri konu sem sem fer á æsku-slóðirnar í ónefndu plássi úti á landi til að fylgja bróður sínum til grafar. Um leið reikar hugur hennar aftur til ársins 1930, þegar sultur svarf að heimilinu í miklu harðæri. Voveiflegir atburðir taka að gerast eftir að móðirin fæðir andvana fyrirbura, sem er dysjaður í grennd við smábýli fjöl- skyldunnar í Dimmuvík. Jón Atli segir að hugmyndin að bókinni hafi sprottið út frá öðru verkefni, kvikmynd sem hann vinnur að með framleiðendum Brúarinnar. „Umfjöllunarefnið þar er allt annað en varð engu að síður til þess að ég fékk áhuga á þessu efni, harðindunum og neyðinni sem fólk bjó við. Það var svo móðir vinar míns sem sagði mér frá því hvernig fólk hefði komið hvert öðru til hjálpar þegar hungur eða aðrir erfiðleikar steðjuðu að, en gætti sín á að gera það á þann hátt að fólk gat haldið áfram reisn sinni. Og þessi fortíð er ekki svo langt undan, innan við manns- aldur. Það er enn á lífi fólk sem fæddist í torfbæjum.“ Til að ljá bókinni trúverðugleika segist Jón Atli hafa leitast við að fanga sér tungu- tak þess tíma sem bókin gerist á. „Ég vildi líka ná fram ákveðinni skynjun sem mætir manneskjunni þegar hún hefur takmarkaðar upplýsingar; þegar hún hefur ekki aðgang að veröldinni heldur er heimur- inn bundinn við afmarkaðan stað, í þessu tilfelli lítinn fjörð.“ Það er dimmur og ísjárverður andi yfir bókinni. Jón Atli þvertekur þó fyrir að þetta sé draugasaga. „Alls ekki. Veruleikinn getur tekið á sig ýmsar myndir og ég lít á þetta sem hreint og beint raunsæi. Þetta gengur ekki út á einhverjar brellur; baráttan í bókinni er raunveruleg en ekki af öðrum heimi.“ Börnin í Dimmuvík er nóvella, eða stutt skáldsaga. Jón Atli á að baki fleiri bækur en hefur fyrst og fremst gert sig gildandi sem leikskáld og handritshöfundur. Hann segir nóvelluformið henta sér. „Það liggur mjög nálægt því sem kallað er „treatment“ og eru eins konar drög að kvikmyndahandriti. Enda hafa óteljandi kvikmyndir verið gerðar eftir nóvellum; þær eru að mörgu leyti mjög hentugar til þess.“ bergsteinn@frettabladid.is MENNING Hvað kom fyrir börnin í Dimmuvík? Jón Atli Jónasson sendir frá sér bókina Börnin í Dimmuvík, ískyggilega nóvellu sem gerist að mestu árið 1930. Bókin spannst út frá vinnu Jóns Atla með framleiðendum sjónvarpsþáttanna Brúin, sem sýndir voru á Íslandi í fyrra. ➜ Aðrar bækur Jóns Atla Brotinn taktur (smásögur) 2004 Í frostinu (skáldsaga) 2005 Ballaðan um Bubba Morthens (svipmynd) 2006 JÓN ATLI Hugmyndin að bókinni börnin í Dimmuvík spratt upp úr öðru verkefni. www.facebook.com/OpticalStudio Umboðs- og dreifingaraðili Ray Ban á Íslandi Ný sending komin af Ray•Ban sólgleraugum Mikið úrval Sýningarnar Huglæg landakort/ mannshvörf og Gersemar verða opnaðar í Listasafni Íslands á föstudag. Sú fyrrnefnda dregur upp mynd af hinni miklu fjöl- breytni, sem finna má í tjáningu listamanna frá smáríkjum Evrópu, þjóðum með innan við milljón íbúa, óháð landfræðilegri legu og stærð landa þeirra. „Með blað- og bóklist að vopni takast þessir listamenn á við langa hefð einstæðrar útgáfustarfsemi, sem miðlun skapandi samskipta,“ segir í tilkynningu safnsins en fjörutíu listamenn frá fimmtán löndum eiga verk á sýningunni. Sú síðarnefnda, Gersemar, er sýning úr safneign sem standa mun í sumar. Undir samheitinu Gersemar verður hægt að sjá íslensk málverk og teikningar frá 19. öld og fyrri hluta 20. aldar – árdögum nútímalistar í landinu. Listamenn smáþjóða sýna HUGLÆG LANDAKORT/MANNS- HVÖRF Opnun í Listasafni Íslands á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.