Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 73
FIMMTUDAGUR 16. maí 2013 | MENNING | 53
Jennifer Aniston er kynþokka-
fyllsta kona allra tíma, ef marka
má bandaríska tímaritið Men‘s
Health. Á lista tímaritsins er
Aniston talin kynþokkafyllri en
margar af frægustu og vinsæl-
ustu leikkonum sögunnar eins og
Raquel Welch, Marilyn Monroe
og Angelina Jolie. Sú síðast-
nefnda keppti einmitt við Aniston
um ást og athygli leikarans Brads
Pitt svo eftir var tekið um allan
heim fyrir nokkrum árum.
Þegar Aniston sjálf, sem er 42
ára gömul, var spurð hverja hún
teldi kynþokkafyllstu konu allra
tíma nefndi hún tvær til sögunn-
ar, frönsku leikkonuna Brigitte
Bardot og bandaríska femínist-
ann Gloriu Steinem.
Aniston valin
kynþokkafyllst
JENNIFER ANISTON Leikkonan úr
Friends þykir heitari en Raquel Welch
og Marilyn Monroe.
R&B-tónlistarmaðurinn R. Kelly
hefur samið mikið af kántrí-
lögum að undanförnu. Þessu
greindi söngvarinn frá í viðtali
við Vibe.
Kelly, sem sendi frá sér sína
elleftu plötu, Write Me Back, á
síðasta ári, útskýrði í viðtalinu
að þetta flakk á milli tónlistar-
tegunda væri tilraun til að sýna
almenningi fram á að hæfi-
leikar hans væru ekki einungis á
sviði „kynferðislegra“ laga. „Ég
er ánægður með að hafa fengið
gjöf sem leyfir mér að skipta á
milli akreina,“ sagði
söngvarinn.
R. Kelly semur
kántrílög
R. KELLY Vill
sýna fram á
að hæfileikar
hans liggi
víða.
Ásgeir Trausti hitar upp fyrir Of
Monsters and Men á tónleikaferð hljóm-
sveitarinnar um Evrópu í sumar. Um er
að ræða níu tónleika í París, Bretlandi,
Danmörku, Þýskalandi og Belgíu.
Ásgeir verður meira og minna á ferð og
flugi um Evrópu í sumar. Auk þess að hita
upp fyrir Of Monsters and Men kemur
hann fram á hátíðunum Hróarskeldu og
Wonderfestiwall í Danmörku, Pohoda
í Slóvakíu, G! Festival í Fær eyjum og
Haldern Pop Festival í Þýskalandi. Hér
heima fá gestir Bræðslunnar, Keflavík
Music Festival og Þjóðhátíðar í Eyjum
að njóta tóna þessa unga tónlistarmanns.
Ásgeir Trausti er núna staddur á tón-
leikaferðalagi um Bretland þar sem
hann hitar upp fyrir John Grant á tíu tón-
leikum. Í gær spiluðu þeir í Manchester
og í kvöld verða þeir á tónleikastaðnum
Shepherds Bush Empire í London. Ásgeiri
hefur verið vel tekið í Bretlandi og feng-
ið góða dóma hjá þarlendum vefmiðlum.
Platan Dýrð í dauðaþögn kemur út á
ensku í haust erlendis. Tónleikaferð verð-
ur farin til að fylgja henni eftir og hafa
þrennir tónleikar í Danmörku verið stað-
festir í október.
Ásgeir hitar upp fyrir Monsters
Ásgeir Trausti hitar upp fyrir Of Monsters and Men í tónleikaferð um Evrópu.
UPPHITUN Ásgeir
Trausti hitar upp fyrir
Of Monsters and Men í
Evrópu.
Nýtt
Fatabúð Hjálpræðishersins
Garðastræti 6, Reykjavík
Nytjamarkaður
á Eyjarslóð 7 út á Granda
Opið alla virka daga
kl. 13.00 – 18.00
... af notuðum fötum ...
MIKIÐ ÚRVAL