Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.05.2013, Qupperneq 78

Fréttablaðið - 16.05.2013, Qupperneq 78
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 58 55 Íslandsmeistaratitla má fi nna í verðlaunaskáp Guðmundar. 20 í einliðaleik, 18 í tvíliðaleik og 17 í tvenndarleik. BORÐTENNIS „Ég vildi leyfa ein- hverjum Kínverja að taka þetta. Gefa þeim séns. Það má ekki allt- af jarða þá,“ segir Guðmundur hlæjandi um ástæðu þess að hann gaf ekki kost á sér í tvö verkefni íslenska landsliðsins í mánuðinum. Landsliðið lauk keppni á HM í París á mánudaginn en Smáþjóða- leikarnir fara fram í Lúxemborg í lok júní. „Ég hefði viljað taka þátt í heimsmeistaramótinu en það hent- aði bara ekki,“ segir Guðmundur, sem starfar hjá tengdaforeldr- um sínum í Rafvörumarkaðnum í Síðumúla. Hann segir enn jafn- merkilegt að spila með landsliðinu eftir öll þessi ár. „Það er alltaf gaman að spila en ég hef klárlega gert minna af því undanfarin ár. Þegar maður er alltaf að fara í svona landsliðs- verkefni þarf maður stöðugt að fá frí frá vinnu,“ segir Guðmund- ur. Nóg sé að nota sumarfrísdaga til þess að fara utan og spila með félagsliði sínu í Hollandi. „Það eru styttri ferðir svo ég þarf bara að nota einn sumarfrís- dag í staðinn fyrir kannski tíu sem fara í landsliðsverkefnin.“ Reif sig úr treyjunni Guðmundur varð hollenskur meistari með liði sínu Taverzo frá bænum Zoetermeer á dögunum. Titillinn var langþráður því Guð- mundur og félagar höfðu hafnað í öðru sæti undanfarin tvö ár. Guð- mundur reif sig bókstaflega úr treyju sinni þegar sigurinn var í höfn. „Maður verður að sýna tilfinn- ingar,“ segir Guðmundur hlæj- andi og bætir við að um létt grín hafi verið að ræða í bland við sig- urgleði. Tímabilið í Hollandi er tvískipt að því leyti að leikin er undan keppni og úrslitakeppni bæði fyrir jól og eftir jól. Deildar- meistarar eru krýndir bæði fyrir og eftir jól. Vinni sama liðið báðar deildarkeppnirnar er liðið krýnd- ur hollenskur meistari en ef tvö lið verða deildarmeistarar mætast liðin í hreinum úrslitaleik að vori. Guðmundur og félagar töpuðu þeim úrslitaleik síðustu tvö tíma- bilin en í ár stóðu þeir uppi sem sigurvegarar bæði um jólin og nú í maí. „Þetta er alveg fáránlegt kerfi,“ segir Guðmundur um fyrirkomu- lagið, sem er í flóknari kantinum eins og lesendur línanna hér að ofan hafa mögulega áttað sig á. „Þetta er gert til að fá fleiri alvöru leiki yfir tímabilið. Aðal- leikirnir eru þessir úrslitaleik- ir og pælingin er ágæt. Þetta er samt afar ruglingslegt,“ segir Guð- mundur. Hann bætir við að fyrir- komulaginu verði breytt í hefð- bundnara form á næstu leiktíð. Guðmundur spilar ekki alla leiki Taverzo. Hann þarf að spila þrjá leiki í deildinni til að vera lög- legur í úrslitakeppninni. Hann spilaði því aðeins fjóra leiki á vor- tímabilinu að meðtöldum úrslita- leiknum í síðustu viku. Honum stendur til boða að spila með lið- inu á næsta ári en hefur ekki gert upp hug sinn. Mætir ef einhver er með stæla „Pælingin var að taka mér smá frí fyrir jól og fara að spila aftur eftir jól,“ segir Guðmundur og seg- ist munu spila eitthvað erlendis. „Það er ekki eins og ég sé orðinn eitthvað eldgamall,“ segir íþrótta- maðurinn, sem verður 31 árs í júní. Guðmundur varð Íslandsmeistari í 20. skiptið í röð í mars og vann auk þess þrefalt í sextánda skipti. Hann varð fyrst Íslandsmeistari í karlaflokki aðeins ellefu ára gam- all. Á dögunum kom fram að hann ætlaði að leyfa öðrum að vinna titil inn á næsta ári. „Ég er hættur við það. Mig lang- aði bara í alla athyglina,“ grínast Guðmundur. Hann segir ákvörðun sína standa en segir þó hlæjandi: „Ég gæti samt alveg mætt ef ein- hver er með stæla.“ kolbeinntumi@365.is Vildi gefa Kínverjunum séns Guðmundur Stephensen gaf hvorki kost á sér í íslenska landsliðið á HM í París né Smáþjóðaleikana sem fram fara í lok mánaðar. Borðtenniskappinn þrítugi, sem varð á dögunum hollenskur meistari með liði sínu Taverzo, er ekki tilbúinn að fórna öllu sumarfríi sínu í landsliðsverkefni. AUGUN Á KÚLUNNI Guðmundur í kunnuglegri stellingu í uppgjöf á Íslandsmótinu í mars. Hann verður að óbreyttu á meðal áhorfenda á Íslandsmótinu í TBR-húsinu að ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GOLF Í vikunni var undirritað samkomulag á milli Golfsambands Íslands og Íslandsbanka um barna- og unglingastarf sambandsins í sumar. Barna- og unglingamótar- aðir sumars ins munu því bera nafn Íslandsbanka en fyrstu mótin fara fram um helgina, bæði í aðal- mótaröðinni og áskorendamóta- röðinni. Mikill uppgangur hefur verið í golfíþróttinni á meðal barna og unglinga hér á landi og komast aðeins 144 bestu kylfingar landsins í aðalmótaröðina. Þar er skipt í karla- og kvennaflokk, sem og þrjá aldursflokka. Meðal þeirra fjölmörgu ungu og efnilegu kylfinga sem Ísland á er Saga Traustadóttir (á mynd), 15 ára kylfingur úr GR. Hún var viðstödd undirritun samstarfsins ásamt Herði Þorsteinssyni frá GSÍ og Hólmfríði Einarsdóttur frá Íslands- banka. Fyrsta mótið í aðalmótaröðinni fer fram í Þorlákshöfn um helgina en alls fara fram sjö mót í sumar, það síðasta í byrjun september- mánaðar. Keppt verður í áskor- endamótaröðinni á Húsatóftarvelli í Grindavík á morgun. Golfvertíðin hefst um helgina Þróttur R. - ÍBV Leiknir R. - Ármann Magni - Þróttur V. Valur - Fram Fylkir - Völsungur Álftanes - Víkingur Ó. FH - Keflavík HK - Breiðablik KV - Víkingur Reykjavík SIndri - Ýmir Hamar - Tindastóll Grótta - Höttur ÍA - Selfoss KR - Grindavík BÍ/Bolungarvík - Reynir S. Þór - Stjarnan 32 liða úrslitin FÓTBOLTI Dregið var í 32-liða úrslit Borgunarbikarkeppni karla í gær en liðin tólf úr Pepsi-deild karla voru þá í fyrsta sinn í hatt- inum. Alls verða þrír innbyrðis- slagir á meðal liðanna í efstu deild, þar af mætast Reykjavíkur- stórveldin Fram og Valur. Þá munu einnig eigast við grannliðin og erkifjendurnir í Kópavogi, HK og Breiðablik. Staða liðanna er þó ólík í Íslands- mótinu en Blikar þykja til alls líklegir í Pepsi-deildinni á meðan HK-ingar eru í 2. deild. Grannaslagir í bikarnum BORGARSLAGUR Úr leik Vals og Fram í Pepsi-deildinni í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í íslenska kvenna- landsliðinu í körfubolta ætla ásamt KKÍ að halda stelpubúðir í Keflavík á laugardaginn en þá er öllum körfuboltastelpum, 10 ára og eldri, boðið að koma á æfingu sem verður skipulögð og stjórnað af leikmönnum og þjálfurum landsliðsins. Æfingin mun taka um tvo tíma og eftir hana fá stelpurnar bæði pitsuveislu í boði Dominos og svo tækifæri til að fylgjast með æfingu A-landsliðsins. Eftir þá æfingu munu landsliðsstelpurnar síðan vera til taks til að svara spurningum en kvennalandsliðið er á leiðinni á Smáþjóðaleikina í Lúxemborg. Æfingin hefst klukkan 10.00 en skráning fer fram á kkk@kki.is og í síma 514-4100. Stelpubúðir í Kefl avík á laugardaginn FÓTBOLTI Víkingar úr Ólafsvík hafa samið við spænska varnarmanninn Kiko Insa og króatíska varnarmanninn Mate Jujilo sem báðir verða löglegir fyrir leikinn á móti Keflavík í Pepsi-deildinni í kvöld. Framherjinn Arnar Már Björgvinsson er einnig kominn á láni frá Blikum. Þetta þýðir að leikmenn af tíu þjóðernum eru nú í leikmannahópi Ólsara. Auk Íslendinga hafa spilað með liðinu tveir Bosníumenn, einn Pólverji, einn Slóveni, einn Serbi, einn Letti og einn Tógómaður auk þess að Færeyingurinn Karl Lökin var á bekknum í báðum leikjunum. - óój Tíu þjóðir eiga mann í Víkingi DAMIR MUMINOVIC Serbinn skoraði á móti Stjörnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Branislav Ivanovic tryggði Chelsea sigur í Evrópudeildinni í gærkvöldi þegar hann skoraði sigurmarkið í úrslitaleiknum á móti Benfica þegar komið var fram í uppbótartíma. Chelsea vann leikinn 2-1 og hefur því orðið Evrópumeistari tvö ár í röð því liðið vann Meistaradeildina í fyrra. Fernando Torres skoraði fyrsta mark leiksins á 60. mínútu en Óscar Cardozo jafnaði úr víti á 68. mínúta eftir að það var dæmdi hendi á César Azpilicueta. Juan Mata átti stoðsendinguna á Torres og hann lagði líka upp sigurmarkið á þriðju mínútu í uppbótartíma en Ivanovic skoraði þá með frábærum skalla. - óój Chelsea aft ur Evrópumeistari MAÐUR KVÖLDSINS Branislav Ivanovic skoraði sigurmarkið og hér er hann með bikarinn að ofan og uppi á slánni til hægri. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY SPORT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.