Fréttablaðið - 27.05.2013, Qupperneq 10
27. maí 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
www.mba.is
Kynntu þér MBA-nám við Háskóla Íslands.
Kynningarfundur þriðjudaginn 28. maí kl. 17-18
í stofu 101 á Háskólatorgi.
Skoraðu á þig og taktu skrefið
Margrét Hauksdóttir
Lögfræðingur og forstjóri Þjóðskrár Íslands
„Ég hef tekist á við ný verkefni í starfi
mínu sem ég hefði aldrei gert nema
fyrir tilstilli MBA-námsins“
Vertu í sterkara sambandi á stærsta farsímaneti landsins
Tímalaus klassík
fer aldrei úr tísku
Ég var að landa samningi við verslunareiganda, ótrúlegan spaða.
Eftir fundinn gerði hann mér tilboð í gamla farsímahlunkinn minn
sem var svo retró að menn höfðu ekki séð svoleiðis í langan tíma,
enginn litaskjár, bara pláss fyrir tíu SMS og eini leikurinn var Snake.
Kaupmannahöfn 2011, Steinunn Vala segir sögu af flottum síma
FERÐAÞJÓNUSTA Stjórn-
völd verða að bregðast
strax við vaxandi fjölgun
ferðamanna hér á landi
og hefja vinnu nú þegar
við að útfæra gjaldtöku
meðal þeirra til að standa
straum af kostnaði við
uppbyggingu á vinsæl-
um ferðamannastöðum.
Þetta kom fram í álykt-
un aðalfundar Markaðs-
stofu Norðurlands sem var birt á
fimmtudag. Þar er skorað á nýju
ríkisstjórnina að bregðast við
yfirvofandi hættu á óafturkræf-
um náttúruspjöllum sem steðjar
að fjölförnum ferðmanna-
stöðum.
Arnheiður Jóhanns-
dóttir, framkvæmdastjóri
Markaðsstofu Norðurlands,
segir almenna sátt ríkja
innan ferðaþjónustunnar
um að koma af stað mið-
lægri gjaldtöku með ein-
hvers konar „náttúrupassa“
frekar en að taka gjald af
ferðamönnum þegar þeir
skoða hverja náttúruperlu fyrir
sig. „Það er búið að tala um nátt-
úrupassa í nokkur ár, þar sem verið
er að hugsa um miðlæga gjaldtöku
sem yrði rukkuð inn,“ segir hún.
„Þá munu ferðamenn sem koma til
landsins borga einhverja þúsund-
kalla sem færu í sameiginlegan
sjóð sem nýttist til uppbyggingar á
ferðamannastöðum.“
Að mati Arnheiðar ætti að
rukka alla ferðamenn sem koma
til landsins, hvort sem þeir eru að
koma í helgarferð til Reykjavík-
ur eða hringferð um landið. Nán-
ari útfærsla á rukkun gjaldsins
er ekki komin á hreint, en verður
rædd á næstunni.
Að sögn Arndísar eru fordæmi
fyrir náttúrupössum erlendis, til
dæmis á Galapagoseyjum og viss-
um svæðum Bandaríkjanna. - sv
Markaðsstofa Norðurlands hefur áhyggjur af mikilli fjölgun ferðamanna :
Náttúruperlur í hættu bregðist
ríkisstjórnin ekki strax við
ARNHEIÐUR
JÓHANNSDÓTTIR
DETTIFOSS
Fjölmargar
náttúru-
perlur á
Norður-
landi hafa
látið á
sjá eftir
að ferða-
mönnum
til lands-
ins hefur
fjölgað eins
og raun ber
vitni.
Save the Children á Íslandi