Fréttablaðið - 27.05.2013, Side 23
X
X
EINBÝLI
Haukanes - glæsileg eign.
Glæsilegt tvílyft um 440 fm einbýlishús sem er með auka 3ja
herbergja íbúð. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og
er það mjög reisulegt með súlum, stórum svölum, heitum
potti og miklum þakkanti og sjávarútsýni. Á efri hæðinni
eru stórar stofur, 3 svefnherb.,húsbóndaherb., 2 baðherb.,
þvottahús, búr og eldhús. Á neðri hæðinni er tvöfaldur 60
fm bílskúr auk 3ja herbergja íbúðar. Tilboð 6872
Kaldasel - góð staðsetning
Vandað þrílyft 233 fmeinbýlishús í enda botnlanga. Húsið
hefur töluvert verið endurnýjað, m.a. eldhús, baðherbergi
o.fl. Þá hefur verið byggð n.k. sólstofa (4o fm) yfir verönd-
ina. Næg bílastæði eru við húsið. Lóðin er vel gróin og
með verönd. Glæsilegt útsýni er til vesturs og norðurs.
V. 49,9 m. 2730
Fornaströnd - einbýli
Fallegt og velhannað 333,9 fm einbýlishús á Seltjarnar-
nesi. Húsið hefur fengið gott viðhald en að mestu upp-
runalegt að innan. Mikil lofthæð er í stofu og er húsið
opið, auðvelt er að breyta skipulagi. Tvöfaldur bílskúr.
V. 88,5 m. 2302
PARHÚS/RAÐHÚS
Sogavegur 130 - Nýlegt parhús
Mjög fallegt og nýlegt 142,6 fm parhús á tveimur hæðum
með innbyggðum bílskúr. Húsið er innréttað á fallegan
máta með eikarinnréttingum, parketi og flisum á gólfum.
Stór verönd til suðurs frá stofu. Frábær staðsetning mið-
svæðis í Reykjavík. V. 41,9 m. 2738
Brautarland 7 - raðhús á einni hæð
Mjög vel staðsett raðhús á einni hæð neðarlega í Foss-
vogsdalnum ásamt bílskúr. Gengið er beint út í suðurgarð
frá stofu. Gott aðgengi er að húsinu og næg bílastæði.
Húsið er laust við kaupsamning. V. 49,9 m. 2367
HÆÐIR
Glitvangur - glæsilegt einbýli
Glæsilegt einbýlishús á eftirsóttum stað. Húsið stendur
á 704 fm verðlaunalóð sem er með afgirtri sólverönd,
sólskála, heitum potti o.fl. Húsið er teiknað af Kjartani
Sveinssyni og ber sterkan keim af hans stíl. Húsið skiptist í
forstofu, sjónvarpsrými, tvö baðherbergi, snyrtingu, stofu,
borðstofu, arinstofu, eldhús, þvottaherbergi/geymslu og
fjögur herbergi og innbyggðan bílskúr. V. 69,8 m.
Glaðheimar - Stórar svalir.
Mjög falleg og vel staðsett 90,2 fm 3-4ra herbergja íbúð
á 2. hæð (efstu) í fallegu steinhúsi. Fallegt eldhús með
borðrók við glugga, tvö svefnherbergi en þau voru áður
þrjú, rúmgóð og björt stofa með útgangi út á stórar svalir
til suðurs og vesturs með fallegu útsýni. V. 29,5 m. 2751
Safamýri 67 - Glæsileg sérhæð
Sérstaklega falleg og vel skipulögð 169 fm efri sérhæð
ásamt bílskúr í þríbýlishúsi við Safamýri í Reykjavík. Húsið
er mjög vel staðsett, stutt er í alla þjónustu, skóla, leik-
skóla, heilsugæslu og fl. Ástand íbúðar er gott og margt
verið endurnýjað á síðustu árum. V. 49,9 m. 2727
Hólmgarður - sér inngangur
3ja herb. falleg 81,3 fm íbúð á jarðhæð með sér inngangi.
Íbúðin skiptist í forstofu, lítið herbergi/geymslu, hol, stofu,
borðstofu (sem er teiknað sem herbergi), svefnherbergi,
eldhús og baðherb. Íbúðin er öll í góðu ástandi. Laus
strax. V. 23,5 m. 2384
4RA-6 HERBERGJA
Langalína - Garðabær
Mjög glæsileg og góð 152 fm íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi,
stórar yfirbyggðar svalir til norðurs, glæsilegt útsýni og
góðar svalir til suðurs. Vandaðar innréttingar og gólfefni
og tvö stæði í bílageymslu. V. 56 m. 2753
Bólstaðarhlíð - Góð 4ra herbergja
Góð og vel skipulögð 4ra herbergja 101 fm íbúð við Ból-
staðarhlíð í Reykjavík. Íbúðin er á 2. hæð og hefur töluvert
verið endurnýjuð á síðustu árum. V. 26 m. 2750
Vesturgata 56 - 0201 - 4ra herbergja.
4ra herbergja 98,3 fm íbúð á 2.hæð í fallegu fjórbýli
í vesturbæ Reykjavíkur. Sameiginlegur inngangur. 3
svefnherb. og stofa. Eina íbúðin á hæðinni. Mjög góð
staðsetning. Laus strax. V. 26,5 m. 2737
Kleppsvegur - glæsilegt útsýni
Mjög góð og vel skipulögð 107 fm 4ra herbergja íbúð á
8.hæð (efstu). Húsið er lyftuhús á góðum útsýnisstað í
austurborginni og hefur mikið verið standsett á liðnum
árum, m.a. er búið að endurnýja alla glugga, svalahurðir
og gler ásamt gagngerri endurnýjun á svölum og múr
hússins að utan. Búið er að standsetja þak og hefur verið
skipt um þakjárn, pappa o.fl. V. 27 m. 2733
Langahlíð 13 - 2.hæð m. bílskúr.
Glæsileg 5 herbergja 111,2 fm hæð. ásamt 27,8 fm bílskúr,
samtals 139 fm. Hæðin er endaíbúð og skiptist í 2-3
samliggjandi stofur og 2-3 herbergi. Íbúðin hefur öll erið
endurnýjuð. Húsið var nær endurnýjað frá grunni á sínum
tíma. V. 39,5 m. 1999
3JA HERBERGJA
Búðagerði - vel skipulögð
Vel skipulögð 3ja herbergja 65,9 fm íbúð á 1. hæð. Íbúðin
skiptist í forstofugang, eldhús, baðherbergi, barnaher-
bergi, hjónaherbergi og stofu með yfirbyggðum svölum. Í
kjallara er sér geymsla og sameiginlegt þvottahús.
V. 18,9 m. 2711
Hörðukór 1 - 11. hæð
Mjög falleg og björt 97,8 fm 3ja herbergja íbúð á 11. hæð
í álklæddu lyftuhúsi í Kópavogi. Íbúðinni fylgir stæði í
bílageymslu fylgir og er hún parketlögð með flísum á
þvottahúsi og baðherbergi. Fallegar og vandaðar innrétt-
ingar, rúmgóðar svalir til suðurs og vesturs. Baðherbergi
með baðkari og sturtuklefa. Íbúðin er laus til afhendingar.
V. 29,4 m. 2714
Perlukór - glæsil. útsýni
Einstaklega falleg og velskipulögð 3ja herb. íbúð á efri
hæð í litlu húsi á einstökum útsýnisstað með sérinngangi.
Íbúðin skiptist í forstofu, gang, stofu, eldhús, þvottaherb.,
tvö herbergi og baðherb.. Geymsla á 1.hæð tilheyrir íbúð-
inni og bílastæði í bílag. Möguleiki að yfirtaka hagstæð
lán. V. 31,5 m. 1578
2JA HERBERGJA
Álfkonuhvarf - íbúð 0202
2ja herbergja nýleg og glæsileg 71,8 fm íbúð á 2. hæð.
Góðar suðursvalir eru út af stofu en þaðan er glæsilegt
útsýni m.a. að Elliðavatni, Bláfjöllum o.fl. Lyfta er í húsinu.
V. 22,5 m. 2565
Víðimelur - sérinngangur
Vel staðsett 61,6 fm 2ja herbergja íbúð í kj., með sérinn-
gangi, við Víðimel í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu,
hol, eldhús, baðherbergi, geymslu, svefnherbergi og
stofu. Í sameign er sér geymsla og sameiginlegt þvotta-
hús. V. 16,9 m. 2745
Krummahólar - Lyftuhús.
Vorum að fá rúmgóða 75,6 fm 2ja herbergja íbúð á 3.
hæð í lyftuhúsi. Rúmgóð og björt stofa með útgangi út á
stórar svalir með glerlokunum sem hægt er að opna. Sér
inngangur af svölum og þvottahús innan íbúðar. Íbúðin er
laus til afhendingar - lyklar á skrifstofu. V. 14,9 m. 2632
Orrahólar - 0302 m. bílskýli.
Falleg og björt 72,8 fm íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi við Orra-
hóla í Reykjavík. Eigninni fylgir stæði í nýju bílskýli. Stórar
svalir til suðurs með glæsilegu útsýni. Íbúðin hefur veirð
mikið endurnýjuð. Húsvörður í húsinu. V. 18,5 m. 2448
50 ÁRA OG ELDRI
Árskógar 8 - eldri borgarar
Falleg og björt 4ra herbergja íbúð með glæsilegu útsýni á
5.hæð í húsi fyrir eldri borgara í Mjóddinni. Íbúðin er laus
við kaupsamning. V. 33,5 m. 2744
SUMARHÚS
Þingvellir - Skálabrekka
Glæsilegur nýr 106 fm sumarbústaður í landi Skálabrekku
við Þingvallavatn. Bústaðurinn stendur í eftirsóttu
skipulögðu sumarhúsahverfi sem er aðeins í rúmlega 30
km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Svæðið er lokað
með járnhliði sem tengt er farsíma. 8.200 fm eignarlóð.
V. 37 m. 2743
Súðavík - einbýlishús.
Fallegt og velstaðsett hús í gamla bænum í Súðavík, húsið
hefur tölvert verið endurnýjað á s.l. árum og stendur rétt
við höfnina með glæsilegu útsýni yfir fjörðinn. Lóðin er
eignarlóð og er mjög falleg og gróin. V. 7,5 m. 2278
FERJUVAÐ 1-3
- NÝJAR ÍBÚÐIR
FERJUVAÐ 1-3
- NÝJAR ÍBÚÐIR
Ferjuvað 1-3 er 4ra hæða fjölbýlishús í Norðlingaholti í Reykjavík. Í húsinu eru 34 íbúðir með tvö stiga/lyftuhús og
svalagangi. Íbúðirnar í húsinu eru bjartar og rúmgóðar og samanstanda af tveggja, þriggja, fjögurra og fimm her-
bergja íbúðum. Húsið er byggt af Sérverk sem er þekkt fyrir vönduð og góð vinnubrögð,. Nánari upplýsingar á www.
eignamidlun.is/nybyggingar Verð frá 22,0 - 44,0 m. 2326