Fréttablaðið - 27.05.2013, Blaðsíða 45
MÁNUDAGUR 27. maí 2013 | MENNING | 17
OG HOLL
TÓ
DÝRT
fyrir
fjölskyld
una
749kr.pk.
FS laxabitar, frosnir, 400 g
DANS ★★★★ ★
Vorblótið
Íslenski dansflokkurinn og Sinfóníu-
hljómsveit Íslands
DANSAR Í ELDBORG, IGOR STRAVINSKI
Í 100 ÁR. LISTAHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR
Verk Stravinskys, Petrúska, fjallar
um þrjár brúður; Petrúsku (karl-
kyns brúðu), Ballerínu og Mára,
sem fyrir tilstilli töframannsins
sem á þær geta dansað og búa yfir
tilfinningum.
Í danssköpun sinni við Petrúsku
einbeitir Jorma Uotinen sér að
persónum brúðanna og samskipt-
um þeirra á milli. Hann undir-
strikar að þetta eru strengjabrúð-
ur og skapar hreyfingar í takt við
það. Hver persóna hafði sinn eigin
dansstíl sem lýsti vel karakter
þeirra, sem var síðan undirstrikað
með skemmtilegum búningum og
lýsingu. Sviðsmyndin var einföld,
aðeins þrír mislitir krossar, og því
mæddi mikið á dönsurunum þrem-
ur sem þurftu að fylla stóra sviðið
í Eldborg með nærveru sinni. Þeim
tókst það í lang flestum tilfellum
sem þýddi margar skemmtilegar
senur en þó vantaði aðeins upp
á dýptina í karaktersköpuninni.
Þannig var mismunurinn á Pet-
rúsku og Máranum ekki málaður
nægilega sterkum litum og sorg
Petrúsku og sálarangist náði ekki
að skila sér sem skyldi.
Það fyrsta sem var eftirtektarvert
við sýninguna á Vorblótinu var
hvað dansflokkurinn hefur marga
góða og vel menntaða karldans-
ara innan sinna raða. Þeir fengu
enda að njóta sín íklæddir svört-
um jakkafötum innan um fjöl-
marga kvendansara sem dönsuðu
um sviðið í skærlitum samkvæm-
iskjólum. Efni verksins; vorið,
ástin, gleði, átök og fórnir var vel
sýnilegt í danssköpuninni. And-
stæður voru áberandi í verkinu
rétt eins og í tónlistinni, sem birt-
ist meðal annars í togstreitunni á
milli einstaklingsins og hópsins.
Þannig var á skemmtilegan hátt
spilað með tilfinninguna fyrir því
að tilheyra hópnum eða vera utan
hans, annaðhvort gegn eigin vilja
eða vegna eigin ákvarðana.
Aðstandendur verksins velja að
sleppa allri leikmynd en skapa
í staðinn sterka umgjörð með
skrautlegum búningum kven-
dansaranna. Sjónrænt kemur
það vel út en verkur upp spurn-
ingar um stöðu kynjanna vegna
stórs hlutverks karldansaranna. Í
heild hafði verkið yfir sér kaótísk-
an blæ þannig að á stundum var
erfitt fyrir áhorfendur að velja
á hvað þeir áttu að horfa. Þess
á milli birtust svo mjög skýr-
ar myndir á sviðinu sem greypt-
ust í huga áhorfenda og sköpuðu
fallegar andstæður við kaótíkina.
Þetta skapaði hættu á að áhorfend-
ur misstu athyglina þegar mest
var um að vera á sviðinu en bauð
líka upp á ímynd af fegurð iðandi
mannlífs. Hreyfiforði verksins er
krefjandi og túlkar á skemmtileg-
an hátt skilin á milli hins mann-
lega og hins dýrslega. Andstæður
eru þannig áberandi í verki Láru
og Melkorku, rétt eins og í tónlist
Stravinskys, sem gefur því kraft
og spennu.
Sesselja G. Magnúsdóttir
NIÐURSTAÐA: Út frá sjónarhorni
dansins var Dansar í Eldborg áhrifarík
sýning og það að takast á við tónlist
Stravinskys og hafa sigur ber vott
um færni danshöfundanna sem og
dansaranna.
Blótað í Hörpu
ÁHRIFARÍK SÝNING Gagnrýnandi var hrifinn af samsýningu Íslenska dansflokksins
og Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg um helgina.