Fréttablaðið - 11.06.2013, Side 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
16
3 SÉRBLÖÐ
Bílar | Hestar | Fólk
Sími: 512 5000
11. júní 2013
135. tölublað 13. árgangur
Nafna-app slær í gegn
Yfir tvö þúsund manns hafa sótt sér
nýtt app fyrir íslensk mannanöfn.
Nýbakaðir foreldrar áttu hugmynd-
ina. 2
Hvalaskoðun Samtök ferðaþjónust-
unnar vilja stækkun hvalaskoðunar-
svæðis í Faxaflóa. 4
Nýjung í Kauphöllinni Sex nýjar
skuldabréfavísitölur verða kynntar í
Kauphöllinni í dag. 8
Færri félagslegar íbúðir Það væru
mistök að byggja jafn margar sam-
liggjandi félagslegar íbúðir í dag og
gert var í Breiðholti á sínum tíma
segir Óskar D. Ólafsson, hverfisstjóri
Breiðholts. 12
Það á eftir að koma
ljós hvort sú staða sem
uppi er núna hafi varanleg
áhrif á tekjumyndun
virkjunarinnar
Haraldur Flosi Tryggvason
stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur
MENNING Fyrrverandi ráðherra,
Guðni Ágústsson, safnar sögum af
sjálfum sér í sagnabálk. 34
SPORT Ágúst Þór Jóhannsson lands-
liðsþjálfari hefur þegar sett stefnuna
á Evrópumeistaramótið 2014. 30
Skyrta
Kr. 2.490.-
KRINGLUNNI • SÍMI 551 3200
Gallabuxur
Verð frá kr. 2.490.-
Heimilis
RIFINN OSTUR
370 g ÍSLENSKUR OSTUR
100%
SPJALDTÖLVUR FYRIR SUMARIÐ
iPad mini
58.990
MENNING Lag Grétu Karenar
Grétarsdóttur, Nothing, vakti á
dögunum athygli stjörnubloggar-
ans Perez Hilton, sem birti upp-
töku af laginu á hinni vinsælu síðu
sinni, Perezhilton.com. Þar líkir
hann Grétu Karen við söngkonuna
heimsfrægu Taylor Swift og hrós-
ar laginu sjálfu í hástert.
„Ég held að hann sé bara að líkja
mér við Taylor Swift út af öllum
þessum ástarlögum sem hún hefur
samið,“ segir Gréta Karen. Lagið
samdi hún ásamt Daniel Capellaro
og nú hafa um 114 þúsund manns
skoðað myndbandið á Youtube.
Gréta Karen hefur verið búsett
í Los Angeles í rúmlega fjögur ár
þar sem hún hefur stundað tónlist-
arnám við Musicians Institute.
- mmm / sjá síðu 34
Vekur athygli í Hollywood:
Hilton hrifin af
Grétu Karen
www.kaupumgull.is – Upplýsingar og tímapantanir: Sverrir s. 661-7000
Græddu á gulli Í Kringlunni alla daga frá kl. 11-18Nánar á bls. 27
SKOÐUN Teitur Guðmundsson
læknir skrifar um hégóma, hrörnun og
hamingju. 17
ORKUMÁL Hugsanlegt tekjutap
Orkuveitu Reykjavíkur vegna
sex megavatta minni afkastagetu
Hellisheiðarvirkjunar er tæplega
fjórtán milljónir króna á mánuði ef
ekki er gripið til aðgerða. Það eru
tæplega 163 milljónir á ársgrund-
velli en sú upphæð tvöfaldast á
hverju ári án aðgerða.
Þetta kemur til vegna nauðsyn-
legra kaupa Orkuveitunnar á orku
frá Landsvirkjun til að vega upp
framleiðslutapið og uppfylla samn-
inga um orkuafhendingu. Orkuveit-
an vill leggja gufulögn frá Hvera-
hlíð til að bæta upp tapið, eins og
Fréttablaðið greindi frá í gær.
Haraldur Flosi Tryggvason,
stjórnarformaður Orkuveitunnar,
segir rekstur og orkuöflun fyrir
jarðgufuvirkjanir vera flókið lang-
tímaverkefni. „Það á eftir að koma í
ljós hvort sú staða sem uppi er núna
hafi varanleg áhrif á tekjumyndun
virkjunarinnar.“
Spurður um skuldbindingar
Orkuveitunnar vegna virkjunar-
innar segir Haraldur að enn sem
komið er sé ekkert uppi á borðinu
sem kippi stoðunum undan rekstri
virkjana á Hellisheiði. Hann segir
að gagnvart Norðuráli verði staðið
við gerða samninga.
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðn-
aðarráðherra sagði í fréttum Stöðv-
ar 2 að það væri vitað að gefa ætti
nýtingu jarðvarma góðan tíma, og
því væri besta nýtingin að blanda
saman vatnsafls- og jarðvarma-
virkjunum. Þess vegna teldi hún
ríkisstjórnina á réttri leið í endur-
skoðun rammaáætlunar með það í
huga að færa „ákjósanlega vatns-
aflsvirkjunarkosti í nýtingarflokk“.
Fulltrúar Vinstri grænna í
umhverfis- og samgöngunefnd og
atvinnuveganefnd hafa óskað eftir
sameiginlegum fundi nefndanna
vegna frétta af vanda virkjunar-
innar. - shá / sjá síðu 6
Hundruð milljóna
þarf til að bæta tap
Orkuveitan þarf að kaupa orku af Landsvirkjun vegna skertra afkasta í Hellisheiðar-
virkjun. Stjórnarformaður segir að staðið verði við gerða samninga við Norðurál og
hagsmunir almennings varðir. Iðnaðarráðherra vill áherslu á vatnsaflsvirkjanir.
Bolungarvík 13° NA 5
Akureyri 18° SSA 4
Egilsstaðir 17° SA 6
Kirkjubæjarkl. 12° A 6
Reykjavík 16° A 10
Bjart norðan og austan til en rigning
með köflum sunnan- og suðvestanlands.
Strekkingur með S-strönd en annars
hægari. Hiti 10 til 20 stig. 4
STJÓRNMÁL Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra
vill að Alþingi feli ríkisstjórn-
inni að framkvæma aðgerða-
áætlun í tíu liðum „sem varða
nauðsynlegar aðgerðir vegna
stöðu heimilanna“, eins og Sig-
mundur sagði í fyrstu stefnuræðu
sinni sem forsætisráðherra.
„Í aðgerðaáætluninni verður
fjallað um undirbúning almennr-
ar skuldaleiðréttingar, höfuðstóls-
lækkun verðtryggðra hús-
næðislána, möguleikann á
stofnun sérstaks leiðrétt-
ingarsjóðs ef önnur fjár-
mögnun gengur of hægt
og setningu svokallaðra
lyklalaga,“ sagði Sig-
mundur á Alþingi í gær-
kvöldi.
Með lyklalögum vísar
forsætisráðherra til laga-
setningar sem gera mun íbúðar-
eigendum kleift að skila
einfaldlega lyklunum að
yfirveðsettum heimilum
sínum.
Meðal annarra skrefa
er að kanna möguleika á
að sekta fjármálafyrir-
tæki vegna tafa á endur-
útreikningi lána. Leggja
á fram tillögur og frum-
vörp samkvæmt aðgerða-
áætluninni í haust. - gar / sjá síðu 4
Ríkisstjórnarflokkarnir leggja fram aðgerðaáætlun vegna stöðu heimilanna:
Skuldaleiðréttingar og lyklalög
SIGMUNDUR D.
GUNNLAUGSSON
RANNSÓKNIR Íslensk erfðagreining
áætlaði arfgerðir 280 þúsund ein-
staklinga án þess að afla nauðsyn-
legs samþykkis segir Persónuvernd
og leggur fyrir ÍE að koma því í lag.
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE,
segir ekki um það að ræða að arf-
gerðir umræddra 280 þúsund ein-
staklinga hafi verið greindar. Til
þess þurfi lífsýni. „Vísindamenn
Íslenskrar erfðagreiningar hafa
hins vegar getið sér til um arf-
gerðir mikils fjölda einstaklinga
án þess að fyrir liggi upplýst sam-
þykki enda eru ágiskanir um fólk
ekki persónuupplýsingar,“ segir
Kári sem kveður úrskurð Persónu-
verndar „með öllu óskiljanlegan“.
- gar / sjá síðu 10
Íslensk erfðagreining:
Áætlaði arfgerð
óvitandi fólks
KÁRI STEFÁNSSON Segir synjun um
leyfi óskiljanlega.
Á SJÓ Það viðraði vel til sjóferða hjá krökkunum sem sóttu siglinganámskeið hjá siglingaklúbbnum Nökkva á Akureyri í
gær. Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði fyrir siglingu seglbáta, kajaka, kanóa og árabáta. Rúmlega 200 krakkar sækja
námskeiðið á hverju sumri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR