Fréttablaðið - 11.06.2013, Síða 23
HESTAR
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2013
Kynningarblað
Heimsmeistaramót íslenska
hestsins, reiðnámskeið,
útbúnaður og sleppitúrar.
Hafliði Halldórsson hefur farið á öll heimsmeistaramót íslenska hestsins frá því hann keppti á mótinu í fyrsta
sinn árið 1987. Hann hefur komið að mótinu
sem keppandi, var í fjöldamörg ár aðstoðar-
maður Sigurðar Sæmundssonar landsliðs-
einvalds og síðustu tvö skiptin hefur hann
deilt þeirri stöðu með Einari Öder Magnús-
syni. Í ár ber hann titilinn einsamall og því
fylgir nokkuð álag, enda mikið starf að velja
saman besta liðið.
„Starf landsliðseinvaldsins er marg-
snúið. Í vetur hefur það snúist um að búa
til æfinga plan sem nýtist knöpum á úr-
tökumótum sem hefjast á þriðjudag (í dag)
í Reykjavík. Ég hef staðið fyrir fræðsluerind-
um og sett upp æfingaprógrömm. Meðal
annars var fenginn virtur reiðkennari frá
Portúgal, Julio Borba, auk Rúnu Einarsdótt-
ur og Olil Amble til að halda námskeið fyrir
ungmenni og fullorðna knapa,“ segir Haf-
liði en tekur fram að hann velji ekki sjálfur
allt landsliðið heldur sé stór hluti knapa sem
komist inn á mótið með því að vera efstir á
úrtökumótum. „Síðan er það mitt að full-
velja í landsliðið og eru það fjórir eða sex
knapar. Ég var til dæmis að koma að utan
núna þar sem ég hef verið að fylgjast með
Íslendingum sem búa þar,“ segir Hafliði en
fullskipað landslið verður kynnt til leiks
þann 9. júlí. Í því verður 21 knapi. „Þetta
eru sjö fullorðnir og fimm ungmenni, auk
þess sem þrír heimsmeistarar hafa rétt á að
verja sinn titil. Það eru Bergþór Eggertsson,
Jóhann Skúlason og Eyjólfur Þorsteinsson
en ég þarf aftur á móti að samþykkja þeirra
hestkost,“ upplýsir Hafliði. Við þetta bæt-
ast svo sex kynbótahross. „Eigendum efstu
hesta í hverjum aldursflokki hryssa og stóð-
hesta er boðin þátttaka. Ef eigendur hafna
boðinu er þeim næstu í röðinni boðið að
koma,“ segir Hafliði og hefur ekki áhyggj-
ur af gæðum hrossanna. „Það er að koma
berlega í ljós núna þegar kynbótasýning-
ar eru rúmlega hálfnaðar að við erum með
gríðarlega sterkan flota sem kemur til með
að fara.“
Haf liði segir keppnisferðina enga
skemmtiferð þó að vitanlega sé góð stemn-
ing meðal keppenda. „Við leggjum upp úr
aga og viljum að knapar séu vel undirbúnir
og vel hvíldir,“ segir Hafliði sem fær til liðs
við sig frægar handboltakempur, þá Guð-
mund Guðmundsson, fyrrverandi lands-
liðsþjálfara, og Alfreð Gíslason, til að halda
fyrirlestra fyrir liðið. „Við verðum mættir
mjög tímanlega á mótssvæðið. Knapar
koma viku fyrir mót en hestarnir fara með
flugi til Belgíu níu dögum fyrir mótið,“ segir
Hafliði. Hann telur mikilvægt að hestarn-
ir nái að jafna sig en þó sé ekki gott að þeir
mæti of snemma því þá sé hætta á að þeir fái
sótt, eins og algengt er þegar hestar koma úr
einangruninni á Íslandi.
Hafliða líst afar vel á að mótið sé haldið í
stórborginni Berlín í ár. „Persónulega held
ég að þetta verði eitt stærsta mót sem hald-
ið hefur verið fyrir íslenska hestinn,“ segir
hann en gert er ráð fyrir 25-30 þúsund gest-
um á mótið og telur Hafliði að Íslending-
ar verði þrjú til fjögur þúsund talsins. „Ég
hef ekki komið á svæðið sjálfur en af tölvu-
myndum að dæma er líkt og maður sé kom-
inn til Rómar. Ef maður trúir og treystir á
hvernig Þjóðverjar vinna þá verður þetta vel
skipulagt og flott mót.“
Persónulega
held ég að
þetta verði
eitt stærsta
mót sem
haldið hefur
verið fyrir
íslenska
hestinn
Býr sig undir heims meistara mót
Hafliði Halldórsson landsliðseinvaldur mun standa í ströngu á næstunni en fyrir dyrum stendur heimsmeistaramót íslenska hestsins
í Berlín 4. til 11. ágúst. Hafliði sér um að velja í landsliðið en 21 knapi heldur utan og keppir fyrir Íslands hönd.
Jóhann Skúlason á Hnokka frá Fellskoti varð heimsmeistari í tölti á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í
Austurríki árið 2011. Hann er því sjálfkjörinn á mótið í ár til að verja titil sinn.
Hafliði Halldórsson og Einar Öder Magnússon, landsliðseinvaldar á HM 2011, kampakátir með íslenska fánann
og verðlaunagrip að loknu vel heppnuðu heimsmeistaramóti í Austurríki.
Íslenska landsliðið á síðasta heimsmeistaramóti árið 2011 í Austurríki.