Fréttablaðið - 11.06.2013, Page 26

Fréttablaðið - 11.06.2013, Page 26
KYNNING − AUGLÝSINGHestar ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 20134 LÉTTIR 85 ÁRA Hestamannafélagið Léttir á Akureyri fagnar 85 ára afmæli á þessu ári en félagið var stofnað árið 1928. Stofnfélagar voru fimmtán. Afmælismót verður haldið á fimmtudaginn kl. 18 þar sem keppt verður í tölti, 25. júní verður síðan keppt í skeiði. Skoða má frekari viðburði á heimasíðu félagsins lettir.is. Samkvæmt heimasíðunni var tilgangur félagsins að stuðla að réttri og góðri meðferð á hestum, efla áhuga og þekkingu á ágæti þeirra og íþróttum, greiða fyrir því að félagsmenn gætu átt hesta og bæta reiðvegi frá Akureyri. Þessum markmiðum hugðust stofnfélagar ná með því að koma skipan á hagagöngu og hirðingu hesta í eigu félagsmanna, eignast skeiðvöll, efna til kappreiða og vinna að gerð reiðvega í nágrenni Akureyrar. Léttir er þriðja elsta hestmanna- félag landsins, Hestamanna- félagið Fákur í Reykjavík er elst, stofnað 1922, en næstelst er Hestamannafélagið Glaður í Dalasýslu, stofnað 1928. ÍSLENSKIR HESTAR TIL FILIPPSEYJA OG NAMIBÍU Þrír hestar voru sendir af stað til Filippseyja á sunnudag en það eru fyrstu ís- lensku hestarnir sem fluttir eru þangað. Fyrirtækið Horseexport hefur umsjón með flutningunum. Förinni er heitið til svínabóndans Chitos Aniban, sem hafði falast eftir því að kaupa íslenska hesta eftir að hafa séð af þeim myndir á vefsíðunni www. hestafréttir.is fyrr á þessu ári. Um er að ræða stóðhest, hryssu og veturgamalt tryppi. „Aðdragandinn hefur verið langur, enda að ýmsu að hyggja við svona flutninga,“ segir Gunnar Arnarsson hjá Horseexport. „Aðalundirbúningurinn felst í því að fá öll tilskilin leyfi og að hafa alla pappíra til reiðu. Þá þarf að stilla saman ferðaáætlun og flug og þarf hún að standast allar dýraverndunarreglur.“ Gunnar segist fá margar skemmtilegar fyrirspurnir en hann hefur meðal annars flutt hesta til Grænlands og Rússlands. „Ég hef meira að segja fengið fyrirspurn um að flytja hesta til Namibíu og er það í vinnslu.“ VISSIR ÞÚ … … að í heiminum öllum lifa um 75 milljónir hesta? … að arabískir gæðingar hafa einu rifbeini og einum hryggj- arlið færra en aðrir hestar? … að það tekur heilt ár fyrir hófa að vaxa niður? … að í Arizona er kúrekum bannað að ganga með spora um hótelanddyri? … að hestar sofa lengur á sumrin en veturna? … að hestar eru jurtaætur? … að hestakyn byrjaði að þróast í Ameríku fyrir 60 milljón árum en varð þar síðan útdautt og kynnt aftur til sögunnar af spænskum landsnáms- mönnum? … að hestar leggjast fyrir í aðeins 43,5 mínútur á dag? … að engir tveir hestar eru ná- kvæmlega eins? … að folöld fæðast með mjólkur- tennur og fá fullorðinstennur eftir þriggja vetra aldurinn? … að hestum mislíkar verulega fnykur af svínum? Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is BARDAGI ÁRSINS! 16. FEBRÚAR Nú stígur Gunnar Nelson fram á stóra sviðið og mætir hinum sterka Jorge Santiago i UFC. NÓG AÐ GERAST Í FORMÚLU 1 Það verður allt á fleygiferð í Formúlunni í sumar þar sem hinir bestu í heimi takast á. Frábært sumar fyrir áhugafólk þessarar stórkostlegu akstursíþróttar. Í OPINNI DAGSKRÁ HART TEKIST Á Í SUMAR Pepsi-deildin hefur farið frábærlega af stað. Sum lið hafa farið betur af stað en önnur, eins og gengur og gerist, en það er nóg eftir af mótinu og fjöldi spennandi leikja framundan. Snilldartaktar, óvænt úrslit og dramatík – í leiftrandi háskerpu. SPENNAN MAGNAST Í PEPSI-DEILDINNI BORGUNAR- BIKARINN Það verða bikarleikir af bestu gerð í Borgunar-bikarnum í sumar. Hverjir koma á óvart? Hvaða lið fara alla leið? Fylgstu með í allt sumar. F ÍT O N / S ÍA F I0 14 8 8 1 NBA Ert þú með HD sjónvarp? Tryggðu þér aðgang að frábærri dagskrá í bestu mögulegu myndgæðum. FÁÐU MEIRA ÚT ÚR SJÓNVARPINU Línur eru farnar að skýrast í NBA og aðeins fjögur lið eftir. Þegar úrslit ráðast í Austur- og Vesturdeildinni er svo komið að ögurstundu, úrslitunum sjálfum. SUMAR- MÓTIN PEPSI- MÖRKIN Í Pepsi-mörkunum er farið yfir helstu atriði leikja með þjálfurum og leikmönnum, sérfræðingarnir rýna í tölfræði og skoða vafaatriðin frá öllum sjónarhornum. Flottir krakkar sýna snilldartilþrif í stórskemmtilegum þáttum um fótboltaiðkun æskunnar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.