Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 30
17. september 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 22 LEIKLIST ★ ★★★★ Maður að mínu skapi ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Höfundur: Bragi Ólafsson. Leikstjórn: Stefán Jónsson. Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson. Búningar: Agnieszka Baranowska. Hljóðmynd: Halldór Snær Bjarnason. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson. Leikarar: Eggert Þorleifsson, Krist- björg Kjeld, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gests- son, Þorleifur Einarsson, Þorsteinn Bachmann. Dramatúrg: Stefán Hallur Stefánsson Aðalpersónan í hinu nýja leikriti Braga Ólafssonar, sem var frumsýnt á laugardag- inn var, er miðaldra háskólakennari. Inn- vígður og innmúraður í gerspillt valdakerfi Íslendinga. Hann er augljóslega „gay“, en greinilega of fínn með sig til að hafa komið sér almennilega út úr skápnum. Líklega býr hann í glerskáp. Maðurinn er að ganga frá bók með fleygum orðum. Hann hefur ungan og sætan lögfræðinema sér til aðstoðar og er alltaf öðru hvoru eitthvað að káfa á honum. Stöku sinnum fer hann í ferðir til Englands þar sem hann hittir frægt fólk í fínum klúbbi og slær um sig með frásögnum af þeim fundum. Við sögu í leiknum kemur einnig kona sem gerir hreint á heimili kennarans. Hún vinnur jafnframt sem næturvörður og leik- ari í Þjóðleikhúsinu. Hún á bróður sem er mislukkaður lögfræðingur og er bitur og reiður út í allt og alla. Þarna er líka af- dankaður og drykkfelldur stjórnmála maður sem hefur hrökklast úr ráðherrastóli, en er nú að reyna að komast aftur í pólitíkina með aðstoð háskólakennarans. Þá er ótalin roskin frænka kennarans, borgaraleg og pen kona sem lætur sér annt um frænda sinn. Hún hefur tapað peningum á einhverjum viðskiptum sem pólitíkusinn, og gott ef ekki frændinn líka, hafa platað hana út í. Þetta er í sem stystu máli persónu- galleríið í leikriti Braga Ólafssonar. Og á víst að vera táknrænt fyrir andstæðurnar í þjóðfélaginu. Sumir tapa, aðrir græða; sumir eru ofan á, aðrir undir. Öllu dýpra en það ristir samfélags greining höfundar varla. Í lokin liggur alþýðan í blóði sínu á sviðinu og yfir stéttin með allt niður um sig. Um fyrirmyndina að aðalpersónunni þarf enginn að velkjast í vafa. Jaðrar þetta nú ekki bara við einelti – mér er spurn?! Alveg burtséð frá því hvaða skoðun menn hafa á þeim sem hér á í hlut, persónu hans og framgöngu. Er svona nokkuð boðlegt á aðal- leiksviði þjóðarinnar? Ég geri ráð fyrir að mörgum í hinni fram- úrstefnudýrkandi leiklistaræsku landsins þyki þetta gamaldags verk, samið út frá alkunnum forskriftum „the well made play“ frá nítjándu öld. En hvað er að forskrift- um, ef þeim er beitt af kunnáttu og færni, fyndni og hugkvæmni og mann þekkingu, svona eins og sum helstu leikskáld Frakka og Breta gátu gert þegar best lét? En hér er ekkert „well made play“ á ferð, öðru nær. Persónurnar eru klisjur, holar að innan, og margt í framgöngu og samskiptum þeirra harla ótrúverðugt; ég nefni aðeins sem dæmi það uppátæki frænkunnar fínu að láta bróður þvottakonunnar hjálpa sér við að ná aftur peningunum. Lokasenan, sem eftir formúlunni á að vera uppgjör og afhjúpun, fer út og suður. Hallærislegt hommagrínið var ofnotað af gríðarlegri elju, ekki síður af leikstjóra en skáldi; aulafyndnin ótæpileg, en ég sleppi tilvitnunum, ekki af tillitsemi við skáldið, heldur lesendur blaðsins. Leikendur náðu að vonum lítt að fóta sig undir reikulli og oft yfirkeyrðri leikstjórn Stefáns Jónssonar. Meira að segja Ólafía Hrönn vissi bersýnilega ekkert hvort hún átti að leika kómedíu eða drama – sem var vitaskuld ekki hennar sök. Aðeins Eggert Þorleifsson slampaðist nokkurn veginn í gegnum þetta óskaddaður. Ungi leikarinn, nýútskrifaður úr Listaháskólanum, fékk að ofleika hressilega, og var ekki einn um það. Í fyrrnefndu lokaatriði leystist sýningin upp í fyrirgang, hlaup og hávaða. Leikmyndin, sem á að sýna borgaralegt glæsiheimili, er ópersónuleg og þung. Ekk- ert í henni segir nokkuð sérstakt um mann- inn sem þar býr og er það þó á slíku sem svona natúralismi lifir. Annars deyr hann. Reyndar skil ég ekki hvers vegna stóra sviðið er lagt undir leik sem kallar alls ekki á víðáttur þess og týnist beinlínis í þeim. Kassinn hefði dugað, og vel það. Þjóðleikhúsið sýndi fyrir þremur árum leikrit Braga, Hænuungana. Það var hug- þekkt og skemmtilegt verk, vel sviðsett af Stefáni, ágætlega leikið af Eggerti og fleir- um. Það eru mikil vonbrigði, að ég ekki segi áfall, að þeir sem hér eiga hlut að máli – að stjórn leikhússins ógleymdri – skuli sýna af sér þann dómgreindarbrest að láta annað eins og þetta frá sér. Jón Viðar Jónsson NIÐURSTAÐA: Leikrit sem þjóðleikhússtjóri hefði átt að senda höfund með heim og segja honum að vinna betur. Gönuhlaup á stóra sviðinu EGGERT ÞORLEIFSSON „Um fyrirmyndina að aðalpersónunni þarf enginn að velkjast í vafa,” segir Jón Viðar í dómi sínum. PRÓTEINRÍKT OG FITULAUST Suðræni Skyr.is drykkurinn er kominn aftur Kolvetnaskertur H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA ENGINN HVÍTUR SYKUR NÝTT MANGÓ & ÁSTARALDIN MENNING

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.