Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 34
17. september 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 26 Mörkin: 1-0 Gary Martin (6.), 1-1 Viðar Örn Kjartansson (25.), 2-1 Brynjar Björn Gunnarsson (49.), 3-1 Óskar Örn Haukss. (64.), 4-1 Martin (74.) KR (4-3-3): Hannes Þór Halldórsson 6– Haukur Hauksson 7, Grétar Sigurðars. 6, Jonas Grönner 5, Guðmundur Reynir Gunnarss. 7– Atli Sigurjónsson 5 (46. Emil Atlason 6), Brynjar Björn Gunnarsson 6, Jónas Guðni Sævarsson 8, Baldur Sigurðsson 6, Óskar Örn Hauksson 6– *Gary Martin 8. Fylkir (4-3-3): Bjarni Þórður Halldórsson 5 - Ásgeir Örn Arnþórsson 5, Kristján Hauksson 5, Agnar Bragi Magnússon 5, Tómas Þorsteinsson 5 - Ásgeir Börkur Ásgeirsson 5, Finnur Ólafsson 5, Pablo Punyed 6, - Emil Berger 5, Guy Roger Eschmann 4 (67. Kjartan Ágúst Breiðdal 5), Viðar Örn Kjartansson 6. Skot (á mark): 13-10 (7-1) Horn: 5-5 Varin skot: Hannes 0 - Bjarni Þórður 3. 4-1 KR-völlur 1004 áhorfendur Þóroddur Hjaltalín (8) visir.is Allt um leiki gærkvöldsins PEPSI DEILDIN 2013 STAÐAN KR 18 15 1 2 45-19 46 FH 20 12 5 3 41-22 41 Stjarnan 20 12 4 4 31-19 40 Breiðablik 19 9 6 4 29-22 33 ÍBV 19 8 5 6 23-20 29 Valur 19 6 9 4 37-29 27 Fram 20 6 4 10 25-33 22 Fylkir 20 5 5 10 28-31 20 Keflavík 19 6 2 11 25-40 20 Þór 19 4 5 10 26-41 17 Víkingur Ó. 19 2 8 9 15-28 14 ÍA 18 2 2 14 25-46 8 FÓTBOLTI „Hún hefur haft mjög mikil áhrif á íslenska kvennaknattspyrnu í heild sinni og kannski lyft henni upp á annað plan í gegnum árin,“ segir Vanda Sigurgeirs dóttir, fyrrverandi þjálfari Eddu Garðars- dóttur, í gær. Knattspyrnukonan Edda Garðarsdóttir tók þá ákvörðun eftir að Pepsi-deild kvenna lauk um helgina að leggja skóna á hilluna, tímabundið í það minnsta. Síðasti leikur Eddu var gegn Selfyssingum á laugardaginn þegar Valsmenn unnu góðan sigur, 4-0. Edda skoraði eitt mark í leiknum og kvaddi því íslenskan kvennabolta á viðeigandi hátt. Leikmað- urinn hefur verið að glíma við erfið meiðsli í hné og hefur því ákveðið að koma skónum frægu vel fyrir á hillunni. „Hún lék algjört lykilhlutverk hjá íslenska lands- liðinu þegar liðið gekk í gegnum mesta uppgangs- tímann og er ótrúlegur leiðtogi í klefanum. Sem leikmaður hefur hún alltaf æft meira en allir aðrir í liðinu, hvort sem það voru lyftingar eða auka æfingar innanvallar þá var hún alltaf tilbúin. Edda hafði einnig þann eiginleika að virkja aðra í liðinu með sér og á að baki stórkostlegan feril.“ Mikil reynsla og þekking Vanda lýsir Eddu sem ákveðnum leikmanni með ein- staklega góða sendingagetu, líkamlega yfirburði yfir flestalla á vellinum og með frábæran skotfót. Hún var því eins konar drottning á miðjunni sem erfitt var að stöðva. Edda hefur nú sett stefnuna á knatt- spyrnuþjálfun þar sem hún getur miðlað reynslu sinni og þekkingu áfram til næstu kynslóða. „Hún hefur alla burði til að vera frábær þjálfari og ég veit að Edda hefur tekið nokkur námskeið. Við megum ekki missa svona flottan karakter út úr kvennaknattspyrnunni. Það gerist allt of oft og það er nauðsynlegt fyrir íslenska kvennaknattspyrnu að halda Eddu.“ Miðjumaðurinn lék 103 landsleiki með íslenska landsliðinu og er því næstleikjahæsti leikmaður Íslands í sögunni. Edda skoraði fjögur mörk fyrir Ísland er hún lék sinn fyrsta landsleik 7. september 1997 þegar hún kom inn á af bekknum gegn Úkraínu. 16 árum síðar hefur hún lagt skóna á hilluna. Gæti orðið mjög góður þjálfari „Edda gæti orðið mjög góður þjálfari og ég veit að hún hefur tekið þjálfara- námskeið. Hún hefur alltaf verið dug- leg að skrifa niður og punkta hjá sér, sem mun reynast henni vel þegar út í þjálfun er komið,“ segir Vanda, sem er ein af alltof fáum konum sem hafa farið á fullt í þjálfun í meistaraflokki. Edda lék með KR, Breiðabliki, Örebro, Chelsea og að lokum Val á sínum ferli. „Hún fer sannarlega í þann flokk að vera ein af þeim bestu í íslenskri kvennaknattspyrnusögu. Hún var kannski ekki tæknilega besti leik- maðurinn en ótrúlegur karakter sem reif ávallt alla með sér.“ stefanp@365.is Drottning á miðjunni Edda Garðarsdóttir hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eft ir magnaðan feril. Leikmaðurinn átti stóran þátt í því að lyft a kvennalandsliðinu á þann stall sem það er á í dag. Edda er næstleikjahæsti leikmaður landsliðsins í sögunni. EDDA HÆTT Nú taka aðrir hlutir við hjá þessum frábæra leikmanni og stefnan sett á þjálfun í knattspyrnu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Mörkin: 0-1 Almarr Ormarsson (42.), 0-2 Kristinn Ingi Halldórsson (56.), 1-2 Sjálfsmark (57.). Breiðablik (4-3-3): Gunnleifur Gunnleifsson 4 - Þórður Steinar Hreiðarsson 6, Sverrir Ingi Ingason 7, Renee Gerard Troost 5(80. Gísli Páll Helgason), Kristinn Jónsson 6 - Finnur Orri Margeirsson 6, Tómas Óli Garðasson 7(67. Viggó Kristjánsson 5), Ellert Hreinsson 4 - Nichlas Rohde 4(28. Jökull I. Elísabetarson 5), Guðjón Pétur Lýðsson 6, Árni Vilhjálmsson 6. Fram (4-3-3): Ögmundur Kristinsson 7 - Orri Gunnarsspon 7, Alan Lowing 7, Halldór Arnarsson 6, Jordan Halsman 6 - Halldór Hermann Jónsson 6, Jón Gunnar Eysteinsson 6, Sam Hewson 6 - *Almarr Ormarsson 7, Jon André Röyrane 4(61. Aron Bjarnason 5), Hólmbert Aron Friðjónsson 4(45. Kristinn Ingi Halldórsson 6).. Skot (á mark): 14-6 (7-3) Horn: 4-4 Varin skot: Gunnleifur 0 - Ögmundur 6 1-2 Kópavogsvöllur 620 áhorfendur Kristinn Jakobsson (8) Mörkin: 1-0 Ingimundur Níels Óskarss. (8.), 1-1 Haukur Páll Sigurðss. (13.), 1-2 Magnús Lúðvíkss., víti (17.), 1-3 Patrick Pedersen (27.), 2-3 Atli Viðar Björnsson (69.), 3-3 Atli Viðar (90.+2). FH (4-3-3): Daði Lárusson 5 - Jón Ragnar Jónsson 3 (56. Atli Guðnason 6), Pétur Viðarsson 2, Guðmann þórisson 4 (25. Freyr Bjarnason 6), Sam tillen 6– Davíð Viðarsson 4, Björn Daníel Sverrisson 6, Emil Pálsson 5– Ólafur Páll Snorrason 4, Ingimundur Níels Óskarsson 4 (66. *Atli Viðar Björnsson 8),Albert Brynjar Ingason 5. Valur (4-4-2): Fjalar Þorgeirsson 7 - Magnús Már Lúðvíksson 7, Jónas Tór Næs 6, Matar Jobe 6, Bjarni Ólafur Eiríksson 6 - Haukur Páll Sigurðarsson 7, Daniel Craig Racchi 5, Indriði Áki Þorláksson 7 - Lucas Ohlander 3 (62. Kristinn Freyr Sigurðsson 5), Arnar Sveinn Geirsson 7 (82. Andri Fannar Stefánsson -), Patrick Pedersen 7.. Skot (á mark): 11-6 (8-4) Horn: 9-2 Varin skot: Daði 1 - Fjalar 4. 3-3 Kaplakrikavö. 472 áhorfendur Vilhjálmur Alvar (6) Mörkin: 1-0 Ian Jeffs (90+3). ÍBV (4-4-2): David James 7 - Arnór Eyvar Ólafsson 7, Matt Garner 6, Eiður Aron Sigurbjörnsson 6, Jón Ingason 6 - Tonny Mawejje 7, Byrnjar Gauti Guðjónsson 6, Gunnar Þorsteinsson 6 (84., Ragnar Pétursson -), Arnar Bragi Bergsson 6 (69., Ian Jeffs 6) - Gunnar Már Guðmundsson 5, Víðir Þorvarðarson 5 (84., Aaron Spear -). Stjarnan (4-4-2): *Ingvar Jónsson 7 - Jóhann Laxdal 6, Tryggvi Sveinn Bjarnason 6, Daníel Laxdal 6, Robert Sandnes 5 - Kennie Chopart 6 (88., Gunnar Örn Jónsson -), Michael Præst 5, Atli Jóhannsson 6, Halldór Orri Björnsson 6 - Garðar Jóhannsson 6, Veigar Páll Gunnarsson 5 (30., Ólafur Karl Finsen 5). Skot (á mark): 8-10 (6-3) Horn: 5-4 Varin skot: James 3 - Ingvar 5 1-0 Hásteinsvöllur xxx áhorfendur Guðmundur Ársæll (8) ENSKA ÚRVALSD. SWANSEA- LIVERPOOL 2-2 1-0 Jonjo Shelvey (2.), 1-1 Daniel Sturridge (4.), 1-2 Victor Moses (36.), 2-2 Michu (64.) STAÐA EFSTU LIÐA Liverpool 4 3 1 0 5-2 10 Arsenal 4 3 0 1 8-5 9 Tottenham 4 3 0 1 4-1 9 FÓTBOLTI Riðlakeppni Meistaradeildarinnar í fótbolta fer af stað í kvöld með fyrstu leikjum liðanna sem eru í riðlum A til D. Á morgun hefst síðan keppnin í hinum fjórum riðlunum. Íslendingaliðið FC Kaupmannahöfn fær alvöru verkefni þegar liðið tekur á móti ítölsku meisturunum í Juventus á Parken. Ragnar Sigurðsson (til hægri) var rekinn út af um síðustu helgi en verður vonandi með í kvöld. Rúrik Gíslason hefur svo verið meiddur. Manchester-liðin eru bæði í eldlínunni. United tekur á móti Bayer 04 Leverkusen í fyrsta leik stjórans Davids Moyes í Meistaradeildinni en City heimsækir tékkneska liðið Viktoria Plzen. Sami Hyypiä stýrir nú liði Leverkusen og fær verðugt verkefni á Old Trafford. Það er pressa á Manuel Pellegrini, knattspyrnu- stjóra Manchester City, enda hefur lítið gengið í Meistara- deildinni síðustu tímabil. City vann ekki leik í fyrra og komst hvorugt árið upp úr sínum riðli. Ekkert nema sigur í Tékklandi í kvöld er því ásættanleg úrslit. Pep Guardiola og lærisveinar hans í Bayern München hefja titilvörnina á móti rússneska liðinu CSKA Moskvu. Allir leikirnir hefjast klukkan 18.45 en á undan verður Hjörtur Hjartarson með upphitun á Stöð 2 Sport. Manchester United - Leverkusen verður í beinni á Stöð 2 Sport en á sama tíma er hægt að horfa á FCK - Juventus á Stöð 2 Sport 3 og Bayern München - CSKA Moskva á Stöð 2 Sport 4. Hjörtur verður síðan með Meistaramörkin eftir leikina þar sem öll mörk kvöldsins verða sýnd. Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu hefst í kvöld D-vítamínbættur KR-ingar stigu stórt skref í átt að Íslandsmeistara-titl- inum í gær þökk sé góðri hjálp frá Eyjamönnum og Valsmönnum. KR vann 4-1 sigur á Fylki í 20. umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta á sama tíma og FH náði bara jafntefli á heimavelli á móti Val og Stjarnan tapaði í Eyjum. Þessi úrslit þýða að KR-ingar eru með fimm stiga forskot á toppnum og fá fjóra leiki til þess að ná í þau tvö stig sem vantar til að tryggja liðinu 26. Íslandsmeistaratitilinn. KR getur því orðið meistari með sigri á Breiðabliki á Kópavogsvelli á fimmtudaginn en það verður frítt á leikinn þar sem fyrri leikurinn var flautaður af vegna höfuðmeiðsla Blikans Elfars Árna Aðalsteinssonar. Takist það ekki fær KR leiki á móti Val (úti, 22. september), ÍA (úti, 26. september) og Fram (heima, 29. september) til að tryggja sér titilinn. Geta orðið meistarar á fi mmtudaginn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.