Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 12
17. september 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12
BANDARÍKIN, AP Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa í fyrsta sinn lagt
mat á hversu mörg dauðsföll þar í landi megi rekja til sýklalyfja-
þolinna baktería.
Samkvæmt tölum sem Miðstöð sjúkdómavarna í Bandaríkjunum
birti í gær er gert ráð fyrir að árlega megi rekja yfir 23 þúsund dauðs-
föll og tvær milljónir veikinda til baktería sem erfitt er að fást við
vegna þess að þær hafa byggt upp þol gegn lyfjum.
Sýklalyf urðu fyrst almenn á fimmta áratug síðustu aldar og
tugir slíkra hafa verið í notkun til að drepa eða halda niðri bakteríu-
sýkingum, allt frá streptókokkahálsbólgum til svartadauða. En eftir
því sem áratugirnir hafa liðið hafa sýklalyf misst hluta af virkni sinni.
Sérfræðingar segja að ofnotkun og misnotkun þeirra hafi ýtt undir
minnkandi virkni lyfjanna. - óká
23.000 dauðsföll rakin til sýklalyfjaþolinna baktería:
Sýklalyf glata stöðugt virkni sinni
LEITA LÆKNINGA Fólk hópast á læknamiðstöð í Búrma fyrir alnæmis- og berklaveika.
Í Búrma er árlega talið að 9.000 berklatilvik séu vegna sýklalyfjaþolinna baktería.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Umferðaróhöppum
þar sem ökumaður var grunaður
um akstur undir áhrifum fíkni-
efna fækkaði um helming hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu á
fyrstu átta mánuðum ársins saman-
borið við sama tímabil í fyrra.
Á fyrstu átta mánuðum þessa
árs voru skráð 20 slík óhöpp en
þau hafa verið um 40 að meðaltali
frá árinu 2010. Fjöldi kærðra brota
vegna fíkniefnaaksturs stóð á sama
tíma í stað.
„Þessar tölur gefa vísbendingu
um að þeim fari fækkandi sem
keyra undir áhrifum fíkniefna.
Hins vegar má ekki alhæfa of
mikið út frá þeim en þróunin virð-
ist vera í rétta átt,“ segir Kristján
Ólafur Guðnason, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu.
Breytingar sem gerðar voru á
umferðarlögum árið 2006 gerðu
að sögn Kristjáns það að verkum
að skilgreiningin á fíkniefnaakstri
varð skýrari og við það einfaldað-
ist starf lögreglu við að stöðva þá
sem aka undir áhrifum fíkniefna.
Eftir það varð mikil fjölgun í kærð-
um brotum vegna fíkniefnaaksturs
en eins og áður segir stóð fjöldi
kærðra brota í stað milli áranna
2012 og 2013.
Þegar tölur um fjölda kærðra
brota vegna ölvunaraksturs eru
skoðaðar sést að þeim hefur fækk-
að úr 900 á fyrstu átta mánuðum
ársins 2007 í um 600 á fyrstu átta
mánuðum þessa árs. Umferðar-
óhöppum sem rekja má til ölvun-
araksturs hefur á sama tímabili
fækkað úr 110 í 77.
„Þegar þetta tvennt er skoðað,
að kærum vegna ölvunar aksturs
fækkar og umferðaróhöppum sem
tengjast ölvunarakstri fækkar
einnig, má leiða að því líkur að ölv-
uðum ökumönnum í umferð fari
fækkandi,“ segir Kristján. - hg
Umferðaróhöppum í tengslum við ölvunar- eða fíkniefnaakstur hefur fækkað frá árinu 2007:
Óhöppum vegna fíkniefnaaksturs fækkar
ÞRÓUN Í RÉTTA ÁTT Breytingar á umferðarlögum árið 2006 aðstoðuðu lögreglu við
að stöðva fíkniefnaakstur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
slys þar sem
fíkniefnaakstur
kom við sögu voru skráð á
fyrstu átta mánuðum ársins.
Meðaltal síðustu ára er 40.
20
DANMÖRK Annaðhvort verða full-
orðin börn sjálf að gæta aldraðra
foreldra sinna eða kaupa gæslu.
Þetta er mat dansks prófessors og
heilsuhagfræðings, Kjeld Møller
Pedersen, sem Kristilega dagblað-
ið vitnar í. Stjórnmálamenn verði
að búa Dani undir það að þeir
þurfi í meiri mæli að annast for-
eldra sína sjálfir en þeir gera nú.
Pedersen segir að ekki verði til
nægir fjármunir á komandi áratug
til þess að fjármagna umönnun
aldraðra. Eftir tíu ár verði átt-
ræðir og eldri 30 prósentum fleiri
en þeir eru í dag. - ibs
Undirbúa þarf breytingar:
Börnin greiði
sjálf gæsluna
UMÖNNUN Danskur prófessor segir
opinber framlög ekki ná að kosta
umönnun aldraðra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Gæðaflísar á sanngjörnu verði
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi 7, Rvk - Reykjanesbæ - Akureyri - Vestmannaeyjum
ÖRUGGT START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir
bifreiða. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
18
58 Exide rafgeymarnir fást hjá: