Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 17. september 2013 | SKOÐUN | 15 www.tskoli.is Gítarsmíði Skráning og nánari upplýsingar: Sími 514 9602 www.tskoli.is/gitar | endurmenntun@tskoli.is Kennari: Gunnar Örn Sigurðsson gítarsmiður. Námskeið: 23. september – 28. nóvember. Kennt er tvö kvöld í viku kl. 17:00 – 22:00, alls 100 klst. Verð: 170.000 kr. Allt tréefni er innifalið. Námskeiðið er styrkhæft hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga. Lærðu að smíða Telecaster, Stratocaster eða Jazz bass frá grunni. HEILSA Teitur Guðmundsson læknir Sumir eru hreinskilnari en aðrir, láta bara allt flakka og nenna ekki að vefja orðunum í einhverja dún- sæng áður en þau eru sögð. Aðrir komast upp með að segja nánast hvað sem er við hvern sem er. Þeir nota jafnvel gamanmál og það er ekki ólíklegt að maður hafi gaman af lýsingum þeim sem slíkir aðilar koma með þó að undirtónninn sé alvarlegur. Það er nefnilega oft þannig þegar um málefni er að ræða sem geta legið þungt á við- komandi, valdið pirringi og van- líðan, jafnvel sársauka, að húmor getur auðveldað samskipti. Þar með er ég ekki að draga úr mikilvægi þess að tækla vanda við- komandi, þvert á móti. Sum vanda- mál eru þess eðlis að þau eru að vissu leyti feimnismál, persónuleg og einstaklingarnir nálgast þau á mismunandi hátt, sem er eðlilegt. Í því felst hin skemmtilega fjöl- breytni læknisstarfsins að þurfa að koma til móts við væntingar og hegðun skjólstæðinga hverju sinni. Konur sem eru að ganga í gegnum tíðahvörf kvarta oft sinnis undan einkennum sem getur verið erfitt að eiga við. Miklar hormóna- breytingar eiga sér stað sem geta valdið skapsveiflum, svefntruflun, þyngdaraukningu og ýmsu til við- bótar. Slíkt gerir það að verkum að margar upplifa þennan tíma sem erfiðan og það er í raun áskorun að ganga í gegnum þetta tímabil. „Ég nenni þessu ekki“ „Ég nenni þessu ekki,“ sagði ein konan um daginn við mig á stofu, „ég er búin að tapa brjóstunum og kynlönguninni, fitna og er stöðugt í einhverju hitakófi. Geturðu ekki reddað þessu í hvelli?“ Þessu er ekki auðsvarað og yfirleitt hefur liðið langur tími þar til þessi ein- kenni tíðahvarfa koma fram af fullum þunga. Þá eru einnig til konur sem finna lítið sem ekkert fyrir tíðahvörfum, svo það er ójafnt skipt. Mikilvægt er að átta sig á því að ekki er til neinn ákveðinn aldur þar sem þetta ferli hefst en almennt má segja að konur um fertugt byrji að framleiða minna af kvenhormónum, en þau stýra blæðingum og egglosi, sem aftur gerir það að verkum að frjósemi þeirra minnkar. Það lengist á milli blæðinga eða það verða truflanir á þeim þar til þær hætta alveg, sem að meðaltali er í kringum fimm- tugt. Ýmsar ástæður eru til fyrir því að konur fari fyrr inn í tíða- hvörf og má þar nefna aðgerðir þar sem leg og/eða eggjastokkar eru fjarlægð, krabbameinsmeðferð og við sjálfsónæmissjúkdóma. Þegar hormónavörn kvenna er ekki lengur til staðar aukast líkur á hjarta- og æðasjúkdómum og því er mikilvægt fyrir þær að fylgjast með áhættuþáttum og stunda heil- brigt líferni. Þá minnkar bein- massi hratt eftir tíðahvörf og er afar mikilvægt fyrir konur að láta mæla beinþéttni sína af og til, stunda reglubundna hreyf- ingu og neyta kalks og D-vít- amíns. Hormónaskorturinn dregur úr teygjanleika þvagrásarinnar með tilhneigingu til þvagleka og blöðruvandamála, brjóstin minnka og skreppa saman. Þetta ástand veldur líka slímhúðarþurrki í kyn- færum, dregur úr næmni og ýtir undir óþægindi vegna þessa bæði almennt og við það að stunda kyn- líf. Slíkt dregur úr löngun og getu, en talið er að ríflega 40% kvenna finni fyrir slíkri truflun í kjölfar tíðahvarfa. Lykilvenjur Yfirleitt finna konur það best sjálf- ar þegar breytingar verða á þess- ari viðkvæmu hormónastarfsemi og leita sér þá aðstoðar. Einkennin eru mismikil og hafa mismunandi áhrif á konur og umhverfi þeirra. Greiningin felst aðallega í sögunni, stundum mælingum á hormónum og jafnvel skoðun. Meðferðin bygg- ir fyrst og fremst á meðhöndlun einkenna. Mikil umræða átti sér stað um uppbótarmeðferð og þarf að vega og meta slíkt hverju sinni, staðbundin meðferð sem beinist að slímhúð kynfæra, þunglyndis- og kvíðalyf, beinþéttnilyf og ýmislegt fleira er til. Allar konur ættu þó að hafa í huga að ákveðnar aðstæður, nær- ing og venjur geta ýtt undir ein- kenni. Reykingar geta til dæmis flýtt fyrir tíðahvörfum, aukið ein- kenni þeirra og líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum, beinþynningu og krabbameinum. Skynsamlegt er að draga úr koffíndrykkjum, það bætir svefn og dregur úr hita- kófi. Stunda kynlíf reglubundið, en slíkt eykur blóðflæði og við- heldur slímhúð kynfæra, ef þarf með hjálp sleipiefnis. Draga úr streitu, gera slökunaræfingar og grindarbotnsæfingar auk þess að stunda reglubundna hreyfingu og jafnvægi í mataræði. Lykilvenjur sem geta haft afgerandi áhrif á lífsánægju kvenna á þessu tímabili í lífi þeirra. Hangandi brjóst og hitakóf Það er ljóst að margir sem eru fylgjandi því að flug- völlur sé til staðar í Vatns- mýri nefna sjúkraflugið sem aðalástæðu fyrir þeirri skoðun sinni. Ýmsir þeirra segja að það séu til næg svæði önnur til að byggja. Ef fólksfjölgun er viðvar- andi munu þessi svæði þó einnig að lokum fyllast og uppbygging utarlega heldur áfram. Eru einhver neikvæð áhrif af því fyrir bráðveikt fólk að búa í t.d. Úlfarsárdal miðað við að búa í Vatnsmýri? Rannsókn sem gæti svarað þess- ari spurningu var birt í Emergency Medical Journal árið 2007. Höf- undarnir, Nicholl o.fl., athuguðu hvernig 10.315 sjúklingum í bráðri lífshættu reiddi af miðað við fjar- lægð í beinni loftlínu frá sjúkrahús- inu sem tók fólkið til með höndlunar. Niðurstaðan var að fyrir hvern kíló- metra sem fjarlægð jókst um jukust dánarlíkur viðkomandi einstaklings um 2%. Úlfarsárdalur er u.þ.b. 8-9 km fjær Landspítala en Vatns mýrin, sem myndi þýða að bráð veikindi þar hefðu í för með sér um 15-20% auknar líkur á láti sjúklingsins. Höfundarnir reikna út að þessi munur nægi til að skýra 1% allra dauðsfalla, þegar fjarlægð til sjúkrahúss er komin yfir 10 km. Nokkrir útreikningar til viðbótar gefa manni þá um það bil 1,5 við- bótar dauðsföll árlega ef byggt er í Úlfarsárdal í stað Vatnsmýrar, miðað við 20.000 manna byggð. Sumir hafa lagt til flutning Land- spítalans til Keflavíkur. Það myndi leggjast misþungt á sveitarfélögin eftir því hvernig þau eru staðsett með tilliti til Keflavíkur en gróf- lega áætlað myndu tapast 50 mannslíf á ári á höfuð- borgarsvæðinu. Til þess að sjúklingur af landsbyggðinni verði fyrir skaða vegna aukins flutn- ingstíma verður hann í fyrsta lagi að þurfa inngrip sem eru oftast ekki á færi lækna í heimabyggð. Það er hér sem þynnast verulega raðir þeirra sem gætu skað- ast. Allir læknar hafa lært að greina og meðhöndla stóran hluta bráðra veikinda sem ógna lífi. Súrefni, vökvar, nálar og litlir hnífar eru einföld en mikilvæg meðul en allir geta einnig gefið önd- unarstuðning með lyfjum eða tækj- um, hjartalyf, lyf til að viðhalda blóðþrýstingi, segaleysandi með- ferð, sýklalyf, rafvendingu og fleira. Vissa innsýn í hlutfall sérhæfðra inngripa má til dæmis fá í grein í Emergency Medical Journal árið 2005 eftir Mushtaq og Ritchie, þar sem athugað var hverjar algeng- ustu dánarorsakir fólks væru á bráðamóttökum. Fyrir stóran hluta bráðra veikinda þýðir þetta að búseta í 5 km fjarlægð frá lítilli heilbrigðisstofnun á landsbyggðinni getur verið betri en búseta í 6 km fjarlægð frá Landspítalanum. Er sjálfgefið að tefja alla sjúkra- flutninga ákveðins hóps vegna þess að sumir telja að hluti af sjúkra- flutningum annars hóps tefjist? Er öruggt að þeir tefjist? Mitt mat er að það sé ekki óum- flýjanlegt að töf yrði á sjúkraflutn- ingum utan af landi við brotthvarf Reykjavíkurflugvallar. Það eru ýmsar ódýrar mótvægisaðgerðir mögulegar sem geta jafnað og jafn- vel stytt flutningstímann frá lands- byggðinni. Allir geta átt líf Niðurstöður nýlegrar rann- sóknar Félagsvísindastofn- unar Háskóla Íslands um traust til Alþingis eru borð- liggjandi. Þjóðin treystir ekki Alþingi og er umræðu- hefð þingmanna helsta ástæðan. Um 80% lands- manna vantreysta Alþingi vegna samskiptamáta þing- manna. Meiri hlutinn telur líka að það myndi auka traust Alþingis mikið ef við þing- menn sýndum hver öðrum meiri kurteisi og stunduðum málefna- legri umræðu á Alþingi. Þetta ætti ekki að koma þing- mönnum á óvart. Við sáum þetta skýrt í kosningabaráttunni í vor. Frambjóðendurnir Sigmundur Davíð Gunn- laugsson og Katrín Jak- obsdóttir, sem voru áber- andi málefnaleg og kurteis í sínum málflutningi, voru hvað eftir annað kosin af netverjum sem sigur - vegarar umræðna í sjón- varpssal. Rannsókn Félags- vísindastofnunar segir að þjóðin er þreytt á karpi og virð- ingarleysi þingmanna sín á milli, og einnig í sinn garð. Hún sýnir að þjóðin vill nýja umræðuhefð og að þingmenn viðurkenni mistök. Stjórnmálahefðin á Íslandi hefur verið sú að viðurkenna ekki mistök. En nýr þingmaður Fram- sóknarflokksins, hann Frosti Sigur jónsson, baðst á dögunum opinberlega afsökunar á mistökum og fékk réttilega mikið lof fyrir. Nú fer hann fyrir óformlegum hópi nýrra þingmanna sem mun hittast á næstu vikum til að vinna að bættri umræðuhefð á Alþingi. Markmið hópsins er að sam mælast um góð fordæmi að kurteisari og málefnalegri umræðu í þingsal. Undir ritaður styður Frosta heils- hugar og mun að hans beiðni starfa í hópnum. Komum okkur að verki og hleypum einhverju mikilvægara að í umræðuna. Kurteisi og málefnaleg umræða STJÓRNMÁL Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata SKIPULAG Þorgeir Gestsson sérfræðingur í tauga- og lyfl ækn- ing um í Stokkhólmi Allar konur ættu þó að hafa í huga að ákveðnar aðstæður, næring og venjur geta ýtt undir einkenni. PI PA R\ TB W A · S ÍA · 1 32 36 6

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.