Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 19
BÍLAR
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2013
M
ikið er um dýrðir
á bílasýningunni
sem nú stendur
yfir í Frankfurt
í Þýskalandi.
Bílablað Frétta-
blaðsins var á
staðnum í síðustu viku, fyrstu
daga sýningarinnar sem ætlað-
ir eru blaðamönnum. Nærfellt
allir bílaframleiðendur eru á
sýningunni og sýnendur í heild
tæplega 1.100 talsins. Fjöldi
bíla á sýningunni er á annað
þúsund. Mikil upplifun er að
koma á þessa sýningu, sem er
ævinlega talin sú mikilvægasta
og stærsta í Evrópu á hverju
ári. Stærð sýningar hallanna,
sem eru margar, er nánast ógn-
vænleg og heildarstærð sýn-
ingarsvæðisins er 230.000 fer-
metrar. Til samanburðar var
Kringlan 30.000 fermetrar er
hún opnaði.
Hugmyndabílar til að kanna viðbrögð
Dvelja þarf í nokkra daga til
að komast með góðu móti yfir
sýninguna alla, en þó nokkuð
margir sýnenda eru ekki bíla-
framleiðendur heldur íhluta-
framleiðendur eða tengjast bíl-
greininni. Á tveimur dögum má
þó sjá svo til alla bíla sýningar-
innar og flokkast það undir
hátíðar veislu fyrir bílaáhuga-
menn. Margir bílaframleiðend-
ur kynntu nýja hugmyndabíla,
sem allsendis óvíst er að fari
í framleiðslu. Það eru einmitt
viðbrögð almennings og blaða-
manna á svona sýningum sem
ráða mestu um hvort slíkir bílar
verða að framleiðslubílum eða
hilluskrauti.
Ávallt er mikið um frumsýn-
ingar nýrra bíla eða á nýjum
kynslóðum þekktra bíla. Mynd-
ir af sumum þeirra hafa lekið
út fyrir frumsýningu þeirra en
aðrir hafa sloppið við slíkt og
þess athygliverðara að sjá þá
meðal fyrstu manna. Mjög ein-
kennandi fyrir sýninguna í ár er
áhersla bílaframleiðenda á raf-
magnsbíla og bíla með tvinn-
tækni. Svo til allir framleiðend-
ur sýndu þannig bíla og greini-
legt er að enginn þeirra vill
missa af lestinni þar. Þessi sýn-
ing nú í Frankfurt mun öðru
fremur skilja eftir sig þessa
áherslu og því virðist framtíð
rafmagnsbíla vera björt.
Þýskir með sér sýningarhallir
Hreint ótrúlegt er að sjá hversu
mikið bílaframleiðendur leggja
í sín sýningarsvæði. Nokkrir
þeirra eru með sérhús og eru
þau engin smásmíði. Á þetta
helst við um þýsku bílaframleið-
endurna, enda eru þeir þarna á
heimavelli. Sýningarhús Audi
vakti líklega mesta athygli en
húsið tók Audi með sér og reisti
á svæðinu. Glæsileiki þess var
inn er komið var slíkur að and-
litið ætlaði hreinlega að detta
af og fallegir bílar Audi rímuðu
vel við.
Mercedes Benz og BMW voru
líka með eigin hallir, stórglæsi-
legar, og hjá BMW var heillöng
akstursbraut sem náði bæði
undir og yfir sýningargesti. Þar
var ekið með gesti í rafmagns-
bílnum BMW i3 og fleiri gerð-
um BMW-bíla. Stærsti einstaki
sýnandinn var þó Volkswagen,
sem var í stærstu sýningarhöll-
inni ásamt öllum öðrum bíla-
merkjum sem tilheyra Volks-
wagen-stórfjölskyldunni nema
Audi. Volkswagen sýndi 56 bíla
af öllu færri bílgerðum en í
mismunandi útfærslum. Undir
Volkswagen og undirmerki þess
dugði ekkert minna en 19.000
fermetrar.
Enn fylgja fögrum bílum fögur fljóð
Athyglivert er að upplifa mis-
muninn á þeim dögum sem
eingöngu eru ætlaðir blaða-
mönnum og svo almenningi. Á
blaðamannadögunum, þar sem
myndavélar þeirra smella ótt
og títt, er vart þverfótað fyrir
fallegum stúlkum sem standa
við bílana og setja sig í viðeig-
andi stellingar og með hel frosið
bros eftir erfiðan dag. Þeim
fækkar mjög er kemur að dög-
unum fyrir almenning. Vera
hinna fögru fljóða á þessum
sýningum hefur orðið mörg-
um femínistanum skotspónn, en
svo virðist sem það sé alls ekki
á undanhaldi að para saman
fagrar stúlkur og flotta bíla á
bílasýningum. Á blaðamanna-
dögunum eru miklu færri
gestir og mjög rúmt um þá sem
vilja ná góðum myndum af
bílunum.
VEISLA FYRIR AUGUN Í FRANKFURT
Nær allir bílaframleiðendur sýna bíla sína á þessari stærstu bílasýningu í Evrópu á 230.000 fermetrum.
LEGUR OG PAKKDÓSIR
VAGNHÖFÐI 7 – SÍMI 5 17 5 000