Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 4
17. september 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4 242.492 bifreiðar voru skráðar á landinu í árslok 2012. Árið 2011 voru 238.293 bifreiðar skráðar og árið þar á undan voru þær 237.098. Heimild: Samgöngustofa. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Fimmtudagur 3-8 m/s. VEÐUR BATNAR Vindur gengur að mestu niður í dag en það verður hvasst austan til fram á kvöldið. Það dregur einnig úr úrkomu í dag og á morgun en á fimmtudag lítur út fyrir fallegan dag á Norður- og Austurlandi. 5° 7 m/s 6° 9 m/s 6° 10 m/s 7° 13 m/s Á morgun Hæg norðlæg eða breytileg átt. Gildistími korta er um hádegi 8° 6° 7° 2° 2° Alicante Basel Berlín 27° 22° 15° Billund Frankfurt Friedrichshafen 15° 13° 14° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 14° 14° 26° London Mallorca New York 17° 27° 18° Orlando Ósló París 31° 13° 17° San Francisco Stokkhólmur 19° 15° 8° 8 m/s 8° 20 m/s 4° 12 m/s 4° 12 m/s 2° 9 m/s 4° 9 m/s 0° 8 m/s 8° 6° 10° 7° 4° JÓHANNAVILHJÁLMSDÓTTIR Matur, lífsstíll,sjúkdómar JÓHANNA VILHJÁLM SDÓTTIR KYNNING Í DAG Heilsubók Jóhönnu Í dag milli kl. 15-18 mun Jóhanna Vilhjálmsdóttir kynna og árita nýútkomna bók sína, Heilsubók Jóhönnu, í Heilsutorgi Blómavals í Skútuvogi . 10% afsláttur af öllum vörum á Heilsutorginu, aðeins í dag! Kynningaverð 3.990 kr 4.990 kr HEILBRIGÐISMÁL „Það hefur ekki verið rætt við okkur um að taka á okkur aukna vinnuskyldu. Við erum ekki tilbúin til þess nema við fáum hærri laun,“ segir Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Í svipaðan streng tekur Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Félags íslenskra sjúkraliða. Í yfirlýsingu heilbrigðisráðherra og forstjóra Landspítala Háskólasjúkrahúss frá því í síðustu viku um aðgerð- ir til að bæta stöðu lyflækninga- sviðs Landspítala kemur fram að skipa eigi starfshóp sem á að gera tillögur um hvernig eigi að láta meðal annars hjúkrunarfræð- inga og sjúkraliða styðja við störf lækna. Tillögur þar að lútandi eiga að liggja fyrir í lok nóvember á þessu ári. Ólafur og Kristín segja að áður en yfirlýsingin var send út hafi ekki verið haft neitt samráð við Félag hjúkrunarfræðinga eða Sjúkraliðafélag Íslands. Ólafur segir að hjúkrunar fræðingar telji að kominn sé tími til að endur skipuleggja verksvið allra heilbrigðisstétta svo sú þekk- ing, menntun og færni sem hver stétt býr yfir nýtist til fullnustu. Hjúkrunar fræðingar séu reiðu- búnir að vinna að endurskipulagn- ingu, hins vegar sé gríðarlegt álag á hjúkrunarfræðingum í dag og það gangi ekki að þeir bæti á sig verkefnum bótalaust. Kristín segist fagna umræðu um endurskoðun á störfum heil- brigðisstétta. Það sé löngu tíma- bært að endurskoða starfssvið allra heilbrigðisstétta. Mennt- un sjúkraliða sé bæði vanmet- in og vannýtt á Landspítalan- um og fleiri sjúkrastofnunum. Hjúkrunar fræðingar séu oft og tíðum að vinna störf sjúkraliða og því þurfi að breyta. Að lokinni endurskoðun á starfsskyldum sé komið að því að því að ræða um hvernig eigi að greiða fyrir störf sjúkraliða. Kjarasamningar verði lausir fljótlega eftir áramót og kröfugerð sjúkraliða muni að hluta til byggjast á því hvernig störf þeirra verða skilgreind og metin. „Laun sjúkraliða eru allt of lág í dag en verði gerðar breyt- ingar á starfssviði sjúkraliða ætti að opnast leið til að hækka laun þeirra,“ segir Kristín. johanna@frettabladid.is Ekkert samráð haft við fagstéttir á Landspítala Ekki hefur verið rætt við hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða um fyrirhugaðar breytingar á lyflæknasviði LSH. Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar segjast ekki tilbúnir að taka á sig aukna vinnu nema laun verði leiðrétt. LANDSPÍTALINN Ekki hefur verið rætt við hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á Landspítalanum um að þessar stéttir fari að styðja við störf lækna á lyflækningasviði sjúkrahússins umfram það sem nú er. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KRISTÍN Á. GUÐ- MUNDSDÓTTIR ÓLAFUR G. SKÚLASON Í yfirlýsingu heilbrigðisráðherra og forstjóra LSH um aðgerðir til að bæta stöðu lyflækninga á LSH segir að stuðningur við störf lækna verði aukinn verulega með því að nýta betur krafta og hæfni hjúkrunarfræðinga, sjúkra- liða, klínískra lyfjafræðinga og ritara sérgreina og eftir föngum annarra starfsstétta. Samstarfshópur með fulltrúum ofangreindra stétta verður skipaður undir forystu framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga. Hann á að skila tillögum fyrir lok nóvember 2013. Úr yfirlýsingu ráðherra og forstjóra DÓMSMÁL Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Jóni Garðari Ögmunds- syni fyrir skattsvik í rekstri Lystar ehf., sem var móðurfyrirtæki McDonald‘s á Íslandi og síðar hamborgarastaðarins Metro. Samkvæmt ákæruskjalinu hélt Jón Garðar eftir staðgreiðslu opinberra gjalda af laun- um starfsmanna árin 2009 og 2010 en stóð hins vegar ekki skil á þeim til ríkisins. Alls námu greiðslurnar sem aldrei skiluðu sér rúmum 22,5 milljónum fyrir mánuðina apríl, nóvember og desember 2009 og svo janúar til maí 2010. Í fyrsttalda mánuðinum voru McDonald‘s- staðirnir reknir undir hatti Lystar en Metro frá því í nóvember 2009. Rekstur Metro var seldur frá Lyst yfir til félagsins Lífs og heilsu ehf. í júní 2010 og skömmu síðar fór Lyst í gjaldþrot. Lítið fékkst upp í kröfur. Reksturinn var svo enn seldur frá Lífi og heilsu til félagsins M-Veitinga ehf. haustið 2012. Um síðustu áramót var Líf og heilsa svo gjaldþrota. Sérstakur saksóknari hefur haft fleiri anga þessa rekstrar til rannsóknar, sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins, en það hefur ekki leitt til ákæru. - sh Veitingamaðurinn Jón Garðar Ögmundsson stóð ekki skil á 22,5 milljóna skattgreiðslum: Metro-maður ákærður fyrir undanskot ERFIÐUR REKSTUR Rekstur hamborgarastaðarins Metro hefur í tvígang verið færður í ný félög og þau fyrri farið í þrot. Hér er Jón Garðar með McDonald‘s- borgara og fleira. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FORSJÁ Íslensk kona sem nam börnin sín þrjú á brott frá Dan- mörku hefur falið lögmönnum sínum að undirbúa skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu. Málið er sagt höfðað vegna ólögmætrar aðfarar sumarið 2012. Börnin voru þá, að sögn móðurinnar, flutt nauðug til Dan- merkur. Þetta kemur fram í bréfi frá lögmönnum konunnar fyrir hönd hennar. Jafnframt segir að í erindi innanríkisráðuneytisins til Sýslumannsins á Höfn komi fram mikilvæg viðurkenning á því að ekki hafi verið farið að lögum. - hrs Aðgerðir 2012 ólögmætar: Ætlar í mál við íslenska ríkið BJÖRGUN Kona sem var villt og leitað var að í Súlum er fundin. Björgunarsveitir í Eyjafirði fundu konuna seinnipartinn í gær. Konan var stödd austur af fjall- inu beint niður af Súlutindum og nokkuð frá þeirri leið sem hún hugðist fara. Er talið að hún hafi hrakist af leið undan veðrinu á fjallinu. Í þetta sinn var það hljóðleitin sem bar árangur, konan heyrði í flautum björgunarmanna og gat gert vart við sig. Hún var köld og hrakin og gat illa gengið. Því þurfti að bera hana niður þangað sem fjórhjól komust að, um þriggja kílómetra leið. - hrs Konan var köld og hrakin: Fannst austur af Súlutindum BJÖRGUNARSVEITIR Í EYJAFIRÐI Fundu konuna seinnipartinn í gær.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.