Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 22
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
4 17. september 2013 ÞRIÐJUDAGUR
Þrátt fyrir að japanski bílafram-
leiðandinn Mitsubishi stefni í 32%
tekjuaukningu á þessu ári er ekki
bara sólskin í herbúðum þeirra.
Mitsubishi er, samkvæmt stjórnen-
dum þess, á fyrstu stigum endur-
reisnar fyrirtækisins og til þess að
flýta þeim bata hefur verið ákveðið
að selja hluta af fyrirtækinu til
árfesta. Meiningin er að selja hluti
að virði 200 milljarða jena, sem
samsvarar 244 milljörðum íslenskra
króna. Mitsubishi hefur ekki greitt
út arð til hluthafa sinna frá árinu
1998 og í því ljósi er ekki sama
eftirspurn eftir hlutum í fyrirtækinu
og í Apple eða Google.
Kaupendur þessara bréfa öðlast
ekki atkvæðisrétt í stjórn Mitsubishi
en á móti kemur að ef fyrirtækinu
tekst að snúa rekstrinum til betra
horfs hækkar virði bréfanna og
eigendurnir gætu margfaldað
árfestingu sína. Tekjuaukning
Mitsu bishi á þessu ári stafar helst
af aukinni eftirspurn eftir bílum
þess í Suðaustur-Asíu.
Mitsubishi selur
eigin bréf
Síðustu fréttir úr herbúðum Skoda
eru á þann veg að sportlegum bílum
frá tékkneska framleiðandanum
muni ölga á næstunni. Skoda hefur
í nokkurn tíma framleitt Octavia RS
og Fabia vRS sportbílana. Heyrst
hefur að Skoda vinni nú að sport-
legum jepplingi sem hvorki verður
hár frá vegi né til þaksins. Einnig
segja raddir að von sé á Octavia-bíl
með coupe-lagi sem verður álíka
sportlegur bíll og Volkswagen CC. Á
bílasýningunni í Frankfurt, sem nú
stendur yfi r, var forstjóri Skoda, dr.
Vahland, spurður að því hvort vænta
mætti fleiri sportlegra bíla og af við-
brögðum hans að dæma má einmitt
eiga von á því.
Skoda hefur að mestu látið
systurfyrirtæki sín, Volkswagen og
Audi, um sviðið í formi tvinnbíla
og hreinna rafmagnsbíla. Þó er á
prjónunum að bjóða plug-in-hybrid
Skoda-bíl, en nokkuð er í að svo
verði. Skoda virðist því ætla að halla
sér fremur í áttina að sportlegri
bílum í bili og láta hinum fyrirtækju-
num í Volkswagen-stór ölskyldunni
eftir þróun umhverfi svænna bíla
sem byggja á nýrri tækni, en bæta
henni svo í vörulínu sína þegar
reynsla er komin á tæknina.
Fleiri sportbílar
frá Skoda
Eitt af útspilum Volvo á bíla-
sýningunni í Frankfurt er þessi
gullfallegi hugmyndabíll, Volvo
Concept Coupe. Hvað Volvo ætlar
sér með þessum bíl er hins vegar
áleitin spurning. Sumir vilja meina
að Volvo, sem flokk ast sem lúxus-
bílaframleiðandi, ætli ekki lengur
að leyfa BMW og Audi að eiga
markaðinn fyrir stærri lúxusbíla
sem ekki kosta hvítuna úr augu-
num, heldur ætli að tefla fram bíl
á næstunni sem keppi við Audi A8
og BMW 7-línuna. Eigandi Volvo
er kínverski bílaframleiðandinn
Geely og þar á bæ virðist vera
áhugi á slíku þó svo að stefna
nýhætts forstjóra Volvo hafi
verið að smíða ekki bíl í þessum
flokki, heldur halda sig við minni
og ódýrari öldasölu bíla. Volvo
áformar að koma fyrst fram með
lengdan S80-bíl hlaðinn lúxus, en
það virðist ekki ætla að duga til að
uppfylla drauma stjórnarmanna
í Geely. Í stefnir að framleiddur
verði bíll undir nafninu S100 og
hann gæti hæglega verið þessi
bíll sem hér sést. Það er Thomas
Ingenlath sem teiknaði þennan
hugmyndabíl og Geely-menn eru
afar ánægðir með hönnun hans
og ætla örugglega ekki að setja
þennan bíl upp á hillu sem skraut.
Ætlar Volvo
að storka
BMW 7 og
Audi A8?
Volvo Coupe Concept er einn af fríðari bílunum sem nú sjást í Frankfurt.
Skoda Octavia RS
Mitsubishi Lancer Evolution
0 kr. útborgun
Langtímaleiga
Vetrarleiga frá46.900 kr.á mánuði!
Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram
allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða.
Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun,
tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert
vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald.
Losnaðu við vesenið með langtímaleigu
Kynntu þér málið í síma 591-4000
Á
R
N
A
S
Y
N
IR