Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 20
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
2 17. september 2013 ÞRIÐJUDAGUR
OPEL ASTRA GTC
Finnur Thorlacius reynsluekur
O
pel-bílamerkið
hefur ekki verið
mjög áberandi hér
á landi á síðustu
árum, enda ekki
svo langt síðan að
bílar þess voru
aftur í boði eftir nokkurra ára
fjarveru. Opel er einn af hinum
góðu þýsku bíla framleiðendum
og þó svo að merki þess sé ekki
eins þekkt og flestra hinna,
stendur Opel-merkið fyrir gæði
og góða smíð. Því til vitnis hefur
Opel hlotið margs konar viður-
kenningar fyrir bíla sína á síð-
ustu árum og bilanatíðni þeirra
er meðal þeirra allra lægstu.
Opel smíðar bíla í flestum
stærðarflokkum, en einn hinna
smærri er Opel Astra. Hann
kemur í nokkrum útfærslum og
ein þeirra er einkennd með stöf-
unum GTC og er það sportleg-
asta útfærsla Astra. Sá bíll var
tekinn til kostanna og honum
ekið af mikilli áfergju fyrir
stuttu.
Svo breitt er úrvalið á Opel
Astra að eingöngu í GTC-
útfærslu hans má fá þrjár gerð-
ir. Sú aflminnsta er með 140
hestafla bensínvél, en einnig má
fá hann með 170 og 280 hestafla
vélum. Reynd var aflminnsta út-
færsla bílsins með sjálfskipt-
ingu en hann er eingöngu í boði
með þá skiptingu. Athygli vekur
að aðeins munar tvö hundr-
uð þúsund krónum á þessum bíl
og 180 hestafla útfærslu hans
með beinskiptingu, en þannig
vilja vafalaust flestir kaupend-
ur svona sportbíls hafa hann.
Verð reynsluakstursbílsins er
5.190.000 krónur en sá aflmeiri
og beinskipti er á 5.390.000. Það
var því reynsluökumanni næsta
óskiljanlegt af hverju sá afl-
minni var fluttur inn yfir höfuð
en sá aflmeiri sást ekki.
Fríður bíll með glerharða öðrun
Þegar sest er inn í Opel Astra
CTC verður það ökumanni strax
ljóst að þar fer sportlegur bíll.
Sætin eru hörð en halda vel utan
um ökumann. Um leið og lagt
er af stað eykst þessi tilfinning
ef eitthvað er því fjöðrun bíls-
ins er glerhörð, eins og eðlilegt
er fyrir sportbíl. Útlit bílsins
rímar einnig við þessa sport-
legu eiginleika hans, coupe-
lagið og að hann er tveggja
hurða. Hurðirnar eru fyrir vikið
ansi stórar og þungar en stærð
þeirra er einnig kostur hvað
það varðar að ekki er þröngt að
komast í aftursætin.
Það skal þó tekið fram að Opel
Astra GTC er ekki með hrein-
ræktað coupe-lag heldur er
hann í fremur litlum flokki sem
meðal annars inni heldur bíla
eins og Volkswagen Scir occo
og Hyundai Velostar þar sem
genin liggja á milli coupe-útlits
og hefðbundins útlits venjulegra
fólksbíla. Svo ólíkur er Astra
GTC-bíllinn hefðbundnum Astra
að enginn hlutur í ytra byrði
hans er sameigin legur fimm
dyra bílnum. Að mati reynslu-
ökumanns er þessi GTC-bíll
talsvert fallegri en hin venju-
lega Astra. Þó svo að Astra sé
næstminnsti bíll Opel á eftir
Corsa er þetta ekki svo smár
bíll. Vel fer um fjóra farþega en
ekki er hægt að mæla með þeim
fimmta, nema smár sé.
Stærri en sýnist í fyrstu
Þegar inn í bílinn er komið er þó
alls ekki mikill munur á venju-
legum Astra-bíl og GTC-bílnum.
Flest í innréttingunni virðist
vera eins og alveg hægt að rugl-
ast á þeim hvað það varðar.
Með þessu hefur Opel vonandi
sparað sér heilmikinn þróunar-
kostnað en fyrir vikið er fátt
sem segir ökumanni að hann
sé staddur í sportbíl því engir
sportstælar eru þar áberandi.
Allt er þó greinilega vel smíðað
eins og algilt er um bíla Opel.
Báðir eiga bílarnir þó það sam-
eiginlegt að neðarlega er setið í
bílnum og það er helst sú stað-
reynd sem gefur sporttilfinn-
ingu. Vegna þess að bíllinn er
tveggja dyra er langt að sækja
bílbeltið fyrir aftan ökumann
og eins gott að vinstri öxlin sé
liðug til að ná í beltið.
Gluggar bílsins eru litlir, eins
og títt er með sportlega bíla, og
fyrir vikið er útsýnið úr bílnum
ekki með besta móti og aftur-
glugginn er svo smár að erfið-
leikum getur verið bundið að
leggja bílnum í stæði. Nægt
pláss er þó bæði fyrir framsætis-
farþega og í aftursætinu og fóta-
rými er alls ekki skert þar. At-
hyglivert má telja að skottrým-
ið er ári gott og 30 lítrum stærra
en í venjulegum Astra og telst
380 lítrar. Alls ekki slæmt fyrir
bíl í þessum flokki.
Kraftmeiri útfærsla bílsins heillar
Bæði bil á milli hjóla og öxla er
meira en í fimm dyra bílnum og
ekki aðeins bætir það aksturs-
eiginleika bílsins heldur einn-
ig innanrými hans. GTC-bíll-
inn hefur fengið HiPerStrut-
fjöðrunarbúnaðinn að láni frá
stærri bróður hans, Opel In-
signia. Fjöðrunin er glerhörð,
sem við mátti svo sem búast af
svona bíl, en hún er eiginlega
of hörð, sérstaklega í ljósi þess
að ekki er um mjög öflugan bíl
að ræða, aðeins 140 hestöfl. Því
hefði verið meira við hæfi að
vera með 170 hestafla útfærslu
hans með þessari stífu fjöðrun.
Að auki væri betra að hafa bíl-
inn beinskiptan, það hæfir ein-
GLERHÖRÐ SNOPPUFRÍÐ
SPORTÚTGÁFA OPEL ASTRA
Er með sportlega eiginleika og mjög stífa fjöðrun en skortir afl.
Opel Astra GTC er sportútgáfa af hinum hefðbundna Astra og fá má hann með þremur misaflmiklum vélum.
www.bilo.is
ERTU MEÐ KAUPANDA?Skjalafrágangur
frá kr. 15.080
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t
ok
tó
be
r–
de
se
m
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
www.visir.is/bilar
BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbirgir@365.is
Sími 5125432
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
1,4 BENSÍNVÉL, 140 HESTÖFL
Framhjóladrif
Eyðsla 6,1 l/100 km
í bl. akstri
Mengun 159 g/km CO2
Hröðun 10,1 sek.
Hámarkshraði 200 km/klst.
Verð frá 5.190.000 kr.
Umboð BL
OPEL ASTRA GTC