Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 16
17. september 2013 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Þetta er tímamótasýning hjá mér að
mörgu leyti og líka svolítið skrýtin
sýning,“ segir myndlistarmaðurinn
Haukur Dór, sem hefur opnað sýningu
á Mokka, fimmtíu árum eftir að hann
hélt sína fyrstu sýningu á kaffi húsinu
sögufræga á Skólavörðu stígnum
sumarið 1963.
Haukur, sem er fæddur árið 1940 og
stundaði meðal annars nám við Edin-
burgh College of Art, Konunglegu
listaakademíuna í Kaupmannahöfn og
Visual Art Center í Maryland í Banda-
ríkjunum, hefur unnið að leirlist og
myndlist á Íslandi, í Danmörku, Spáni
og Bandaríkjunum. Í dag helgar hann
sig málaralistinni alfarið. Haukur
man vel eftir fyrstu sýningu sinni á
Mokka fyrir fimm áratugum og hefur
auk þess hresst upp á minnið með því
að skoða gamlar blaðaúrklippur frá
þeim tíma sem eru til sýnis á Mokka
af þessu tilefni.
„Ég var kornungur þá, hafði lokið
einu ári af námi mínu í Edinborg og fór
heim til að halda sýningu, en ég vann
líka hjá leirbrennslunni Glit á Óðins-
götu. Þar var Ragnar Kjartansson
aðalmaðurinn, afi alnafna síns lista-
mannsins sem nú gerir allt vitlaust úti
um allar trissur. Hann kenndi mér á
kvöldin í myndlistarskólanum og bar
mikla ábyrgð því að ég fór út í þetta
nám því hann hvatti mig eindregið til
þess,“ segir Haukur Dór.
Þessi tímamótasýning á Mokka
nefnist Föstudagurinn langi og saman-
stendur af fimmtán verkum sem flest
eru frá síðustu árum. „Þetta eru allt
tilbrigði við krossfestingu, en þannig
vill til að fyrri konan mín lést á föstu-
daginn langa fyrir tæpum tuttugu
árum. Þess vegna eru verkin á sýn-
ingunni ekki til sölu, því ég get ekki
haft þennan dag að féþúfu. Það verður
að koma í ljós hvað ég geri við verkin
eftir sýninguna en kannski læt ég
útbúa bók sem verður þá hugsuð fyrir
vini og vandamenn,“ útskýrir Haukur
Dór og bætir við að sýningin, sem
stendur yfir til 14. október, verði sú
síðasta sem hann stendur sjálfur fyrir.
„Ég ætla að loka hringnum hér.
Mér hafa alltaf leiðst opnanir á
sýningum en á Mokka eru engar opn-
anir heldur hengir maður bara upp
myndirnar og svo koma kaffigest-
irnir með tímanum, sem er gott mál.
Það hefur því lengi blundað í mér að
hætta þessu sýningastússi en ég er
ekki hættur að mála. Ég á eftir að
gaufa í því fram í andlátið,“ segir
Haukur Dór. kjartan@frettabladid.is
Lokar hringnum á Mokka
Myndlistarmaðurinn Haukur Dór hefur opnað sýninguna Föstudagurinn langi á Mokka,
fi mmtíu árum eft ir að hann hélt fyrstu sýningu sína á kaffi húsinu. Hann segir sýninguna
verða þá síðustu sem hann stendur fyrir sjálfur, enda löngu orðinn þreyttur á stússinu.
TÍMAMÓTASÝNING Verkin á sýningu Hauks Dórs á Mokka eru tilbrigði við krossfestingu, en fyrri
kona myndlistarmannsins lést á föstudaginn langa og því eru myndirnar ekki til sölu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SVERRIR BJARNASON
húsasmiður og bólstrari,
Gullsmára 11, áður til heimilis
að Ljósabergi 8, Hafnarfirði,
sem lést föstudaginn 13. september,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 20. september kl. 13.00.
Sigurrós Sverrisdóttir Sigurjón Ingi Ingólfsson
Lillý Halldóra Sverrisdóttir
Björn Sverrisson Elísabet Benónýsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR ÞÓRÐARSON
áður til heimilis að Skálholti 17, Ólafsvík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri,
Ólafsvík laugardaginn 14. september.
Jarðarförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju
laugardaginn 21. september kl. 14.00.
Egill Þórðarson Yoko A. Þórðarson
Þórður Þórðarson Kari Heidenreich Raa
Karitas Anna Þórðardóttir Guðjón Elísson
Svanfríður Þórðardóttir Björn Arnaldsson
Guðríður Þórðardóttir Björn Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra
HALLVEIG HALLDÓRSDÓTTIR
Sólheimum 24,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi þann 9. september, verður jarðsett
frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 19. september kl. 13.00.
Guðríður Axelsdóttir Friðrik Kárason
Viktor Ólason Inga Eiríksdóttir
Sigurður Axel Ólason Carlotta Tate Ólason
Steinunn Kr. Friðriksdóttir
Valgeir Guðjónsson Ásta Kristrún Ragnarsdóttir
Sigríður Anna Guðjónsdóttir Ragnar Björn Marteinsson
Guðrún Arna Guðjónsdóttir Tryggvi Tryggvason
og fjölskyldur.
Elsku móðir mín, amma og langamma,
GUÐRÍÐUR ÁRMANNSDÓTTIR
ljósmóðir frá Myrká,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð 12. september.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 19. september kl. 13.30.
Hreinn Hrafnsson
Elvý Guðríður Hreinsdóttir Eyþór Ingi Jónsson
Óðinn Snær Óðinsson
Birkir Blær Óðinsson
Hreinn Orri Óðinsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGURLAUG JAKOBSDÓTTIR
Strikinu 12, Garðabæ,
áður til heimilis á Akureyri,
lést á líknardeild Landspítalans 8. september.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 20. september kl. 13.30.
Gunnar Valur Guðbrandsson Margrét Jóhannsdóttir
Matthildur Guðbrandsdóttir Baldur Björnsson
Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir Björn Eiríksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS EINARSSON
lögg. fasteignasali,
Skúlagötu 10, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 20. september kl. 13.00.
Guðrún Þ. Jóhannsdóttir
Einar Þór Magnússon Hanna Símonardóttir
Elvar Örn Magnússon Anna María Snorradóttir
Agnar Már Magnússon Berglind Helga Sigurþórsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGÞRÚÐUR KRISTÍN
GUNNARSDÓTTIR
Boðaþingi 6,
lést á heimili sínu fimmtudaginn
12. september. Útförin verður auglýst síðar.
Jón Óskar Carlsson
Róbert Örn Jónsson
Karl Ómar Jónsson Berglind Tryggvadóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Elskuleg eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir og amma,
ANNA SIGRÚN BÖÐVARSDÓTTIR
Ásakór 5, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
laugardaginn 14. september.
Sigurður Sigfússon
Sigurður Óli Sigurðarson Camilla Ósk Hákonardóttir
Svavar Sigurðarson Vaka Önnudóttir
Karen Lind Sigurðardóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir, tengdamóðir,
amma og systir,
ÁSRÚN AMALÍA ZOPHÓNÍASDÓTTIR
Álftamýri 34, Reykjavík,
lést hinn 6. september síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 19. september kl. 13.00.
Jarðsett verður frá Þingmúlakirkju
laugardaginn 21. september kl. 14.00.
Arnar Þór Sævarsson Gerður Beta Jóhannsdóttir
Arnar Freyr Arnarsson
Ásrún Inga Arnarsdóttir
Eyrún Anna Arnarsdóttir
og systkini hinnar látnu.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR MARGRÉTAR
SÖLVADÓTTUR
frá Efri-Miðvík í Aðalvík,
Norðurbrún 1,
áður til heimilis að Álftamýri 38.
Marta Lunddal Friðriksdóttir Gestur Halldórsson
Ásta Lunddal Friðriksdóttir Eðvarð Björgvinsson
Gunnar Lunddal Friðriksson Helena Bragadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.