Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 17.09.2013, Blaðsíða 40
FRÉTTIR AF FÓLKI Mest lesið 1 Margrét Edda Gnarr heimsmeistari 2 Brjálað hjá björgunarsveitunum 3 Níu Albana leitað hér á landi 4 Hinsegin kórinn ekki með á styrktar- tónleikum „Þú getur“ 5 Veðrið færist í aukana 6 Fegurðardrottning í loft fi mleikum 7 Pálmi Guðmundsson nýr yfi rmaður ljósvakasviðs Skjás Eins Harmonikkubræður með Nýdönsk Bæst hefur í hóp flytjenda á tvennum tónleikum Nýdanskrar næstkomandi laugardag í Hörpu. Harmonikkubræðurnir Bragi Fannar og Andri Snær Aðalsteinssynir munu leika tónlist Daníels Ágústs og félaga upp úr nýútkominni nótnabók sem inniheldur 25 þekktustu lög Nýdanskrar. Auk þeirra stígur John Grant á svið með hljóm- sveitinni, en uppselt er á fyrri tónleikana kl. 20 og örfá sæti laus á þá síðari, sem hefjast kl. 23. Vitað er um hóp norskra aðdáenda Nýdanskrar sem hyggst fjölmenna á tónleikana, en sveitin spilaði í borginni Drammen í ársbyrjun við góðar undirtektir. -bfb Orðinn fær í flestan sjó Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra þjóðar- innar, er útskrifaður af skriðsunds- námskeiði sem hann innritaðist á síðsumars. Bjarni, sem var á árum áður snjall fótboltakappi, er ánægður með námskeiðið. Í fésbókarfærslu segist hann komast skammlaust milli bakka og finna framfarir í hvert skipti sem hann fari í sund. „Hef haft mjög gaman af kennslunni. Það opnar nýjan heim að geta synt skriðsund sér til ánægju. Um leið er sundið góð líkamsrækt,“ segir hann enn fremur. Af Bjarna er það annars að frétta að hann vinnur nú hörðum höndum ásamt fleirum að gerð fjárlagafrumvarps næsta árs. Frumvarpið verður lagt fram þegar nýtt þing kemur saman 1. október næstkom- andi. - jme VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VÍSIR RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meiri Vísir. ht.is ÞVOTTAVÉLAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.