Fréttablaðið - 17.09.2013, Page 40
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
1 Margrét Edda Gnarr heimsmeistari
2 Brjálað hjá björgunarsveitunum
3 Níu Albana leitað hér á landi
4 Hinsegin kórinn ekki með á styrktar-
tónleikum „Þú getur“
5 Veðrið færist í aukana
6 Fegurðardrottning í loft fi mleikum
7 Pálmi Guðmundsson nýr yfi rmaður
ljósvakasviðs Skjás Eins
Harmonikkubræður
með Nýdönsk
Bæst hefur í hóp flytjenda á
tvennum tónleikum Nýdanskrar
næstkomandi laugardag í Hörpu.
Harmonikkubræðurnir Bragi Fannar
og Andri Snær Aðalsteinssynir munu
leika tónlist Daníels Ágústs og
félaga upp úr nýútkominni nótnabók
sem inniheldur 25 þekktustu lög
Nýdanskrar. Auk þeirra stígur John
Grant á svið með hljóm-
sveitinni, en uppselt er
á fyrri tónleikana kl.
20 og örfá sæti laus á
þá síðari, sem hefjast
kl. 23. Vitað er um
hóp norskra aðdáenda
Nýdanskrar sem
hyggst fjölmenna
á tónleikana, en
sveitin spilaði í
borginni Drammen
í ársbyrjun við
góðar undirtektir.
-bfb
Orðinn fær í flestan sjó
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsmálaráðherra þjóðar-
innar, er útskrifaður af skriðsunds-
námskeiði sem hann innritaðist á
síðsumars. Bjarni, sem var á árum
áður snjall fótboltakappi, er ánægður
með námskeiðið. Í fésbókarfærslu
segist hann komast skammlaust milli
bakka og finna framfarir í hvert skipti
sem hann fari í sund. „Hef haft mjög
gaman af kennslunni. Það opnar
nýjan heim að geta synt skriðsund
sér til ánægju. Um leið er sundið góð
líkamsrækt,“ segir hann enn fremur.
Af Bjarna er það annars
að frétta að hann vinnur
nú hörðum höndum
ásamt fleirum að gerð
fjárlagafrumvarps
næsta árs. Frumvarpið
verður lagt fram
þegar nýtt þing
kemur saman
1. október
næstkom-
andi.
- jme
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
ht.is
ÞVOTTAVÉLAR