Fréttablaðið - 03.10.2013, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 03.10.2013, Blaðsíða 22
3. október 2013 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Sara McMahon sara@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Staða ríkissjóðs minnir mig á sjúkling með alvarlega blæðingu. Verði blæðingin ekki stöðvuð er sjúklingurinn í bráðri hættu. Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2014 gefur hins vegar fyrirheit um að skorist verði í leikinn og að sjúklingur- inn nái fullri heilsu. Í ár munu 30 milljarðar, sem við eigum ekki til, renna úr ríkiskassanum. Eytt hefur verið um efni fram, eins og undan- farin fjögur ár. Peningana verður að taka að láni og ríkissjóður þarf að sjálf- sögðu að greiða vexti og afborganir af þessu lánsfé. Vextirnir eru blóðpeningar, svo ég noti áfram sömu myndlíkingu, sem annars gætu farið í mikilvæg verk- efni. Ríkissjóður greiðir nú um 70 milljarða í vexti af lánum sínum árlega. Það er eins og nýr Landspítali. Ríkisbókhaldið er í raun og veru ekkert öðruvísi en venjulegt heimilis- bókhald. Hugsum okkur fjölskyldu sem eyðir um efni fram. Á hverju ári þarf hún að taka bankalán til þess að endar nái saman. Þessi snjóbolti er fljótur að stækka og stöðugt fer meira af heimilis- tekjunum í vexti og afborganir. En nú hefur fjölskyldan ákveðið að stokka upp spilin til að losna út úr þessum vítahring. Það er alls ekki sársaukalaust. Hug- myndir um að stækka sumarbústaðinn verður að leggja til hliðar, hinni árlegu utanlandsferð er slegið á frest og ýmis- legt fleira er gert til að endar nái saman. En með því að ná jöfnuði í heimilis- bókhaldinu fær fjölskyldan smátt og smátt meira fé til ráðstöfunar og getur veitt sér ýmsa hluti án þess að taka fyrir því lán. Ný fjárlög fyrir árið 2014 hafa nú verið kynnt. Markmiðið er skýrt, að ná halla- lausum ríkisrekstri. Þetta er algjörlega nauðsynlegt að mínu mati. Hagvöxtur á Íslandi er of lítill og fjárfesting sömu- leiðis. Hvort tveggja leggur grunn að betri lífskjörum til framtíðar. Núverandi ríkisstjórn er með það efst á blaði að snúa við þessari þróun. Við sem tilheyrum stjórnarliðinu höfum fjögur ár til stefnu til að virkja Ísland til framfara á nýjan leik. Þjóðin á það skilið að við skilum okkar verki vel. Blæðingin stöðvuð F réttablaðið sagði þá frétt fyrr í vikunni að stjórnendur og foreldrar nemenda í Menntaskólanum í Reykjavík teldu niðurskurð á kostnaði í skólanum kominn að endamörkum og ekki hægt að ganga lengra án þess að það kæmi niður á gæðum þjónustunnar. Þennan söng kannast menn svo sem við úr flestum stofnunum ríkisins undanfarin niðurskurðarár. Sparnaðurinn er alls staðar sagður kominn inn að beini og stjórnendur, skjólstæðingar og velunnarar stofnananna telja að ekki verði meira að gert. Sjálfsagt er það í ýmsum tilvikum rétt. En skoðum þetta tilfelli aðeins betur. Ef rýnt er í tölur fjár- laganna kemur í ljós að árið 2009 var Menntaskólinn í Reykjavík sá framhaldsskóli á landinu sem var hagkvæmastur í rekstri; þar greiddu skattgreiðendur 576 þúsund krónur fyrir menntun hvers nemanda. Það var innan við helmingur þess sem kostaði að mennta hvern nemanda í skóla á borð við Framhaldsskólann á Laugum í Þingeyjarsýslu og langt undir meðaltalinu í framhaldsskólum landsins, sem var þá um 827 þúsund krónur á nemanda. Næstu þrjú árin var MR síðan sá framhaldsskóli þar sem framlög á hvern nemanda voru skorin mest niður! Árið 2012 voru þau komin í 551 þúsund krónur, en landsmeðaltalið hafði hins vegar hækkað í 882 þúsund á nemanda, enda fengu margir skólar hækkun á fram- lögum á þessu tímabili. Þetta er athyglisverð niðurstaða, ekki sízt í ljósi þess að MR hefur um árabil verið í hópi þeirra framhaldsskóla sem ná beztum árangri, til dæmis þegar horft er til gengis nemenda skólans í háskólum, í alþjóðlegri keppni á sviði raungreina og á ýmsum öðrum vettvangi. Skólinn leggur áherzlu á framúrskarandi kennslu í raun- greinum, sem er einmitt það sem atvinnulífið hefur kallað eftir. Yfirvöld menntamála beittu hins vegar ekki einu sinni flötum niðurskurði, heldur skáru mest niður hjá skólanum þar sem skatt- greiðendur fá einna mest fyrir peningana. Ekki virðist hafa verið gerð sú krafa til annarra að þeir reyndu að ná sama árangri með jafnlitlum peningum. Enginn reyndi heldur að komast að því hvað stjórnendur MR væru að gera rétt og aðrir gætu þá lært af þeim. Þetta er dálítið öfgakennt dæmi, en það sama á því miður við víða annars staðar í ríkisrekstrinum. Stjórnendur vel rekinna stofnana, sem fara vel með fé skattgreiðenda og halda sig innan fjárlaga, eru beðnir að skera meira niður – kannski af því að ráðuneytin hafa trú á að þeir geti það. Lélegir stjórnendur, sem árum saman fara fram úr heimildum og fara illa með fé, eru verðlaunaðir með aukafram- lögum og fá að halda vinnunni sinni. Bæði í mennta- og heilbrigðis- málum virðast stjórnvöld hafa verið ákaflega lítið með hugann við mælingar á afköstum stofnananna, gæðum þjónustu og því sem skattgreiðendur fá fyrir peningana sína, en þeim mun uppteknari af til dæmis byggðapólitískum sjónarmiðum, sem leiða af sér að litlum, óhagkvæmum stofnunum er dreift um landið. Ef ríkisstjórninni er alvara með að ætla að auka agann í ríkis- fjármálunum þarf þetta að breytast. Fjárveitingar til stofnana eiga að vera tengdar afköstum og gæðum og það á að yfirfæra stjórnar- hætti þeirra sem reka ríkisstofnanir með hagkvæmustum hætti yfir á aðrar stofnanir, í stað þess að refsa sífellt þeim sem standa sig vel. Af hverju er stofnunum refsað fyrir góðan rekstur? Sá hagkvæmasti skorinn mest niður Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is FJÁRMÁL Elín Hirst alþingismaður ➜ Vextirnir eru blóðpeningar, svo ég noti áfram sömu myndlíkingu, sem annars gætu farið í mikilvæg verkefni. Ríkissjóður greiðir nú um 70 milljarða í vexti af lánum sínum árlega. Það er eins og nýr Land- spítali. 26 tonn á mann! Það skemmtilegasta í fyrstu stefnu- ræðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugs- sonar forsætisráðherra í gærkvöldi var kaflinn um kol. Efnislega snerist hann um að Íslendingar notuðu ekki kol til raforkuframleiðslu, en að ef þeir mundu gera það þá væri það alveg hryllilegt. Ráðherrann málaði ekki fagra mynd af ástandinu sem þá mundi skapast. „Við þyrftum að brenna 26 tonn af kolum á hvern einasta Íslending á ári. 26 tonn á mann!“ sagði Sigmundur. Hann hélt áfram: „63 þingmenn þyrftu meira en 1.600 tonn fyrir sína hlutdeild í raforku- framleiðslunni. Allur þessi salur dygði ekki til að hýsa allt það kolamagn sem þyrfti að brenna bara fyrir þessa 63.“ Og hann var ekki enn búinn: „Það tekur bara til raforkuframleiðslunnar en ekki til húshitunar og annarrar orkufram- leiðslu.“ Lauk þar með vangaveltum forsætisráðherra um kolanotkunina sem engin er. Nýja netlöggan Sigmundur talaði líka um að til skoðunar væru „leiðir til að verja börn fyrir einelti og öðru ofbeldi“ á netinu. Einu sinni talaði Steingrímur J. Sigfússon fyrir sams konar aðgerðum og hlaut bágt fyrir. Gott ef hann var ekki kallaður fasisti. Hinir öfgafullu og ónefndu Og undir lok ræðu sinnar sagði Sigmundur þetta: „En þeir eru til sem hafa ekki trú á Íslandi, þeir sem ala á sundrung og þeir sem aðhyllast öfgakennda hugmyndafræði og líta á hvern þann vanda sem upp kemur í samfélaginu fyrst og fremst sem tækifæri til að innleiða þær öfgar.“ Hann skýrði ekki um hvað hann væri að tala, en hélt áfram: „Íslandssagan í meira en 1100 ár sýnir að þegar við Íslendingar höfum trú á landinu okkar og okkur sjálfum og þegar okkur auðnast að standa saman en látum ekki sundrung og niður- rifsöfl draga úr okkur þrótt, þá farnast okkur vel.“ Fróðlegt væri að fá mat sagnfræðinga á þessari fullyrðingu. stigur@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.